
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Þór Hauksson flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Félag atvinnurekenda, VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og Rafiðnaðarsamband Íslands hafa óskað eftir fundum með matvælaráðherra og fjármálaráðherra til að ræða lækkun og niðurfellingu tolla í þágu neytenda. Í kjarasamningum sem þessir aðilar gerðu í lok síðasta árs var gerð bókun um þetta, tollabreytingar væru meðal áhrifaríkustu leiða til að bæta hag launþega. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda kom til okkar og ræddi þessi mál.
Við litum fram á veginn í efnahagsmálum með Ásgeiri Brynjari Torfasyni sérfræðingi í fjármálum. Áfram verða sömu mál í forgrunni í alþjóðahagkerfinu, en stóra málið eru umhverfismálin.
Macron Frakklandsforseti hefur tilkynnt að á þessu ári verði ráðist í breytingar á eftirlaunakerfinu í Frakklandi, og lífeyrisaldur hækkaður í skrefum úr 62 árum í 65. Þetta er mjög umdeilt mál, og þriðjungur þjóðarinnar segist mótfallinn samkvæmt nýrri könnun. Rósa Björk Brynjólfsdóttir er búsett í París og fylgist vel með, hún sagði okkur frá þessu. Við ræddum líka um loftslagsmálin, síðasta ár var það hlýjasta frá því mælingar hófust í Frakklandi.
Tónlist:
That's where it's at - Sam Cooke
Just a memory - Duke Ellington
Paris sera toujours Paris - Zaz

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30

Útvarpsfréttir.

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Þórir hefur alltaf haft brennandi áhuga á fólki og segir frá í bók sinni Í návígi við fólkið á jörðnni sögur af venjulegu fólki sem hefur ótrúlegan styrk þrátt fyrir hrikalegar aðstæður. Hann segir frá því þegar hann tók viðtal við hryðjuverkaleiðtogan Bhindranwale.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Ragnar Bjarnason syngur nokkur lög sem hann hljóðritaði á tímabilinu 1960 til 1961, annarsvegar með Hljómsveit Svavars Gests í útvarpssal og hinsvegar með Arvid Sundin og Swedish All Stars.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Ólöf Ingólfsdóttir er afar fjölhæf listakona en hún er menntuð í myndlist, dansi og söng auk þess að vera með meistaragráðu í menningarmiðlun. Hún hefur nú bætt markþjálfun við menntun sína og sagði okkur í þættinum í dag frá því hvernig listræn nálgun getur hjálpað fólki að ná markmiðum sínum.
Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í dag bar hann vinkilinn við matarsóun, þorrann, skoska skáldið Robert Burns og þjóðargersemina Þórarin Eldjárn.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Sólveig Jónsdóttir rithöfundur og textasmiður. Hún gaf út núna fyrir jólin bókina Móðurlíf, sem er örsagnasafn um allar mögulega og ómögulegar tilfinningar tengdar móðurhlutverkinu. En við fengum að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sólveig sagði frá eftirfarandi bókum:
Bréfið eftir Katheryn Hughes
Nú brosir nóttin eftir Theódór Gunnlaugsson
Greppikló eftir Júlía Donaldson
Býr Íslendingur hér eftir Leif Muller
Tónlist í þættinum í dag:
Fyrrverandi / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir)
Söngur fjallkonunnar / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon og Egill Ólafsson
Auld Lang Syne / The Dan Air Scottish Pipe Band og Peter Weekers (Skoskt þjóðlag - Robert Burns)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Hlín Agnarsdóttir rithöfundur

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Landsbyggðafjölmiðillinn N4 hefur verið svolítið í sviðsljósinu undanfarið. Fjárhagsstaða miðilsins er slæm og hefur framkvæmdastjórinn sagt að einungis séu til peningar til að starfa út mánuðinn. Meirihluti fjárlaganefndar ákvað að veita þeim 100 milljóna króna styrk í desember, en hætti við samdægurs. N4 var stofnað á Akureyri 2006 og er eini sjónvarpsmiðillinn sem starfar alfarið utan höfuðborgarsvæðisins. Þau halda úti sjónvarpi, hlaðvarpi, internetrásum og svo gefa þau út auglýsingablað, sem í daglegu tali er kölluð Dagskráin. Framleiðslan er mikil og áhorfið líka. N4 skilgreina sig ekki sem fréttastöð, það er enginn ritstjóri og þau gera ekki fréttir, heldur segja sögur. Kostuð umfjöllun er stór hluti af starfsemi N4 og hafa þau stundum verið gagnrýnd fyrir gagnrýnisleysi í umfjöllunum í því ljósi - og að þau séu ekki bara háð voldugum stórfyrirtækjum, heldur eru þau í eigu þeirra líka. Sunna Valgerðardóttir fjallar um fjölmiðlaveldið N4 í Þetta helst í dag.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Við ætlum að velta fyrir okkur nýjustu tækni og hvað ber þar hæst á nýju ári. Hjálmar Gíslason forstjóri Grid, birtir árlega svokallaða tæknispá þar sem hann fer yfir það helsta sem vænta má að sjá í tækni. Við rýnum í nýjustu spá Hjálmars.
Við ætlum að rýna í tölur um lífmassa í heiminum og hvernig hlutdeildin skiptist á milli lífvera. Hvað er mannkyn mikill hluti lífmassa á jörðinni? Og hvaða áhrif hefur maðurinn á lífmassa annarra lífvera? Það kemur kannski ekki á óvart að villtum spendýrum fækkar viðstöðulaust og það er helst út af útþenslu mannsins, sem ræktar endalaust af búfénaði til manneldis á kostnað villtra dýra og plönturíkisins. Sigurður Loftur Thorlacius umhverfisverkfræðingur hjá Eflu fer yfir þetta með okkur
Málfarsmínúta
Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri kíkir til okkar með gamla upptöku í farteskinu að þessu sinni heyrum við brot úr áramótaávarpi Sveins Björnssonar forseta árið 1951

Útvarpsfréttir.

Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>
Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á hlaðvarpi RÚV <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>
Þórólfur Árnason segir frá kynnum sínum af Rússlandi og Rússum, en hann fór margar vinnuferðir á vegum Marels til Kamsjatka bæði fyrir og eftir hrun kommúnismans.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Brasilíumenn kvöddu sinn dáðasta son í vikunni. Knattspyrnugoðsögnin Pelé lést rétt fyrir áramót og var borinn til grafar á fimmtudaginn. Kóngurinn sem átti svo stóran þátt í að móta sjálfsmynd brasilísku þjóðarinnar og sameina hana er af mörgum talinn besti fótboltamaður sem stundað hefur íþróttina fögru. Bjarni Pétur Jónsson fer með okkur til Brasilíu.
Tuttugasta og fjórða febrúar verður eitt ár liðið frá því Rússar réðust inn í Úkraínu. Innrásin hófst að morgni dags með stórsókn meðal annars að Kyiv, höfuðborg Úkraínu, en rússneskar hersveitir sóttu einnig fram í austur og suðurhluta landsins. Þeim varð nokkuð ágengt í upphafi, en undanfarna mánuði hafa átökin markast af undanhaldi Rússa á stórum svæðum í Kharkiv héraði í norðausturhluta landsins og Kherson héraði í suðri - og nokkurs konar kyrrstöðuhernaði í héruðunum Donetsk og Luhansk í austri. Rússar hafa gert ítrekaðar eldflauga- og drónaárásir á borgir og bæi; árásir sem beinst hafa að innviðum á borð við raforkukerfi Úkraínu - markvisst í því skyni að draga úr baráttuvilja almennings og valda efnahagslegum skaða. En hvernig er útlitið fyrir næstu vikur og mánuði? Björn Malmquist ræddi við úkraínsku þingkonuna Kiru Rudik, Ben Hodges, fyrrverandi yfirmann bandaríska heraflans í Evrópu og Albert Jónsson sérfræðing í öryggis og utanríkismálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Rússlandi.
Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Talsverð umræða hefur skapast á síðustu mánuðum og misserum um stöðuveitingar og tilfærslur æðstu stjórnenda menningarstofnanna landsmanna og svo er enn. Deilt hefur verið á orðalag í auglýsingum og er nýjasta dæmið auglýsing um rektorsstöðuna við Listaháskóla Íslands. Við reifum þessi mál og ræðum við Þórunni Sigurðardóttur og Karl Ágúst Þorbergsson í þætti dagsins.
En við hefjum þáttinn á rýni Evu Halldóru Guðmundsdóttur í nýtt íslenskt leikverk, sem frumsýnt var í Tjarnarbíó um liðna helgi, Ég lifi enn - sönn saga, eftir Rebekku A. Ingimundardóttur, Þórey Sigþórsdóttur, Ásdísi Skúladóttur og leikhópinn Blik.

Útvarpsfréttir.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Fréttir af gervigreindartækni virðast vera næstum daglegt brauð um þessar mundir. Í síðustu viku tilkynnti tæknirisinn Apple nýja þjónustu, hljóðbækur sem lesnar eru með gervigreind Í frétt breska blaðsins The Guardian er talað um endalok mennskra sögumannaradda - sem er kannski full vel í lagt og óvíst hvort eftirspurn hlustenda eftir svona gervilestri sé svona mikil. Við heyrum í Jóni Guðnasyni dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og einn forstöðumanna mál og raddtækni seturs skólans og einnig Sólu Þorsteinsdóttur framleiðslustjóra hjá Storytel.
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir flytur sinn fjórða og síðasta pistil um samspil tækni og fötlunar og veltir fyrir sér raddstýringu og rafrænum skilríkjum, fyrirbærum sem einfalda sumum lífið en eru ekki aðgengileg öllum hópum.
Elsa María Jakobsdóttir, leikstjóri, frumsýndi þann 6. janúar myndina Villibráð, sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Myndin sem er endurgerð ítalskrar kvikmyndar, eftir Paulo Genovese, sem á heimsmet í fjölda endurgerða. Handritið að myndinni skrifaði hún ásamt Tyrfingi Tyrfingssyni leikskáldi, og þau staðfærðu og gerðu söguna að sinni. Lestin heimsækir tökustað í Mosfellsbæ, þar sem Elsa María er að vinna að gerð nýrra íslenskra þátta. Við ræðum við hana um Villibráð og þættina Aftureldingu, sem eru í bígerð um þessar mundir. Við náum einnig stuttu tali af Hafsteini Gunnari Sigurðssyni, höfundi og leikstjóra þáttanna.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn, 9. janúar 2023.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
Sjúklingar á gjörgæsludeild Landspítalans eru álíka margir og voru í fyrstu covid-bylgjunni, að sögn Kára Hreinssonar, framkvæmdastjóra skurðlækninga, svæfinga og gjörgæsluþjónustu á Landspítalanum. Mikið hefur borið á öndunarfærasýkingum á borð við streptókokka. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við hann.
Loftmengun hefur farið langt yfir heilsuverndarmörk á höfuðborgarsvæðinu strax á einungis fyrstu dögum ársins. Svava Steinarsdóttir, Heilbrigðisfulltrúi hjá Reykjavíkurborg segir beinar aðgerðir stranda á stjórnvöldum - skýra þurfi verkferla svo hægt sé að takmarka umferð. Gunnhildur Kjerjúlf Birgisdóttir talaði við hana.
Háskóli Íslands hefur hríðfallið niður lista Times Higher Education yfir bestu háskóla heims. Munar mest um færri tilvitnanir í greinar eftir vísindamenn skólans segir Halldór Jónsson, sviðsstjóri vísindasviðs HÍ. Listar um bestu skóla eru umdeildir en allir vilji vera á þeim. Alexander Kristjánsson tók saman..
Norska utanríkisráðuneytið hefur boðað sendiherra Írans til fundar í Osló, til að ræða aftökur íranskra stjórnvalda á mótmælendum þar í landi. Alls hafa sautján verið dæmdir til dauða. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.
Smámunasafn Sverris Hermannssonar er einstakt á landsvísu en óvissa ríkir um framtíð þess. Húsnæðið er nú til sölu og Félag íslenskra safna og safnmanna hefur lýst yfir áhyggjum sínum. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Finn Yngva Kristinsson, sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar og Dagrúnu Ósk Jónsdóttur, verkefnastjóri Félags íslenskra safna og safnmanna.
------------
Á annað þúsund stuðningsmenn fyrrverandi forseta Brasilíu eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á áhlaupi þeirra á æðstu stofnanir landsins. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Ibaneis Rocha héraðsstjóra, Lula Da Silva forseta, Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu og Joao Gomes Cravhino, utanríkisráðherra Portúgals.
Lögreglu er ekki heimilt að stofna til tálbeituaðgerða, en hún má stíga inn í samskipti barna við meinta gerendur. María Rún Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá Ríkislögreglustjóra segir ógnvekjandi hversu auðvelt er að leiða meinta barnaníðinga í gildru það segi sína sögu.
Meðal frændþjóða okkar á Norðurlöndum er ný þróun í veitingamennsku áberandi. Ungt fólk sækir öðru fremur áfengislaus hús þar sem bara er boðið uppá kaffi og kökur ? og þráðlaust internet. Veitingamenn hlaupa á eftir tískunni og ný og stærri áfeng

Í Krakkakiljunni er fjallað um barnabækur úr öllum áttum, bæði gamlar og nýjar. Fulltrúar bókaormaráðs KrakkaRÚV koma í heimsókn til okkar, segja frá og spyrja höfundinn út í bókina.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Sigyn Blöndal
Rut Guðnadóttir rithöfundur er gestur Krakkakiljunnar í dag. Hún segir okkur frá bókinni sinni Vampírur, vesen og annað tilfallandi. Svo fræðumst við um danska barnabókahöfundinn H.C. Andersen.
Umsjón: Ísabel Dís Sheehan og Sölvi Þór Jörundsson Blöndal.

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Bæverska útvarpsins sem fram fóru í Isarphilarmonie tónleikahúsinu í München, 16. desember s.l.
Á efnisskrá eru verk eftir Richard Strauss, William Walton og Béla Bartók.
Einleikari: Tabea Zimmermann víóluleikari.
Stjórnandi: Iván Fischer.
Umsjón: Guðni Tómasson.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Við ætlum að velta fyrir okkur nýjustu tækni og hvað ber þar hæst á nýju ári. Hjálmar Gíslason forstjóri Grid, birtir árlega svokallaða tæknispá þar sem hann fer yfir það helsta sem vænta má að sjá í tækni. Við rýnum í nýjustu spá Hjálmars.
Við ætlum að rýna í tölur um lífmassa í heiminum og hvernig hlutdeildin skiptist á milli lífvera. Hvað er mannkyn mikill hluti lífmassa á jörðinni? Og hvaða áhrif hefur maðurinn á lífmassa annarra lífvera? Það kemur kannski ekki á óvart að villtum spendýrum fækkar viðstöðulaust og það er helst út af útþenslu mannsins, sem ræktar endalaust af búfénaði til manneldis á kostnað villtra dýra og plönturíkisins. Sigurður Loftur Thorlacius umhverfisverkfræðingur hjá Eflu fer yfir þetta með okkur
Málfarsmínúta
Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri kíkir til okkar með gamla upptöku í farteskinu að þessu sinni heyrum við brot úr áramótaávarpi Sveins Björnssonar forseta árið 1951
Í túninu heima kom úit árið 1975 og er fyrsta minningarskáldsaga Halldórs Laxness en þær urðu alls fjórar á hans ferli. Bókin fjallar um fyrstu tólf árin í lífi Halldórs.
Höfundur les. Hljóðritað árið 1986.
Lestrar Halldórs Laxness úr safni RÚV eru færðir þjóðinni að gjöf í samstarfi við Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur, dætur skáldsins.
eftir Halldór Laxness.
Höfundur les.
(Hljóðritað 1986)

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Ólöf Ingólfsdóttir er afar fjölhæf listakona en hún er menntuð í myndlist, dansi og söng auk þess að vera með meistaragráðu í menningarmiðlun. Hún hefur nú bætt markþjálfun við menntun sína og sagði okkur í þættinum í dag frá því hvernig listræn nálgun getur hjálpað fólki að ná markmiðum sínum.
Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í dag bar hann vinkilinn við matarsóun, þorrann, skoska skáldið Robert Burns og þjóðargersemina Þórarin Eldjárn.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Sólveig Jónsdóttir rithöfundur og textasmiður. Hún gaf út núna fyrir jólin bókina Móðurlíf, sem er örsagnasafn um allar mögulega og ómögulegar tilfinningar tengdar móðurhlutverkinu. En við fengum að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sólveig sagði frá eftirfarandi bókum:
Bréfið eftir Katheryn Hughes
Nú brosir nóttin eftir Theódór Gunnlaugsson
Greppikló eftir Júlía Donaldson
Býr Íslendingur hér eftir Leif Muller
Tónlist í þættinum í dag:
Fyrrverandi / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir)
Söngur fjallkonunnar / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon og Egill Ólafsson
Auld Lang Syne / The Dan Air Scottish Pipe Band og Peter Weekers (Skoskt þjóðlag - Robert Burns)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Fréttir af gervigreindartækni virðast vera næstum daglegt brauð um þessar mundir. Í síðustu viku tilkynnti tæknirisinn Apple nýja þjónustu, hljóðbækur sem lesnar eru með gervigreind Í frétt breska blaðsins The Guardian er talað um endalok mennskra sögumannaradda - sem er kannski full vel í lagt og óvíst hvort eftirspurn hlustenda eftir svona gervilestri sé svona mikil. Við heyrum í Jóni Guðnasyni dósent við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og einn forstöðumanna mál og raddtækni seturs skólans og einnig Sólu Þorsteinsdóttur framleiðslustjóra hjá Storytel.
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir flytur sinn fjórða og síðasta pistil um samspil tækni og fötlunar og veltir fyrir sér raddstýringu og rafrænum skilríkjum, fyrirbærum sem einfalda sumum lífið en eru ekki aðgengileg öllum hópum.
Elsa María Jakobsdóttir, leikstjóri, frumsýndi þann 6. janúar myndina Villibráð, sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Myndin sem er endurgerð ítalskrar kvikmyndar, eftir Paulo Genovese, sem á heimsmet í fjölda endurgerða. Handritið að myndinni skrifaði hún ásamt Tyrfingi Tyrfingssyni leikskáldi, og þau staðfærðu og gerðu söguna að sinni. Lestin heimsækir tökustað í Mosfellsbæ, þar sem Elsa María er að vinna að gerð nýrra íslenskra þátta. Við ræðum við hana um Villibráð og þættina Aftureldingu, sem eru í bígerð um þessar mundir. Við náum einnig stuttu tali af Hafsteini Gunnari Sigurðssyni, höfundi og leikstjóra þáttanna.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
7:15 - Nú á nýju ári tekur við breytt skipulag á aðgengi að sánunni í Sundhöll Ísafjarðar. Þau sem sótt hafa sundlaugina vita vel að aðgengi að sánu er takmarkað við annan búningsklefa sundhallarinnar og hefur hann því verið karla- og kvennaklefi til skiptis. Karlar hafa komist í sánuna á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum, og konur hina daga vikunnar og hafa því kallað eftir sanngjarnari skiptum. Því hefur verið ákveðið að aðgengi verði breytilegt eftir vikum; í sléttum vikum hafa konur aðgang að sánunni á föstudögum og í oddavikum hafa karlar aðgengi að henni á föstudögum. Við ætlum að ræða sánuna og sundið og breytt fyrirkomulag við Hafdísi Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Ísafjarðarbæjar, en mögulega einnig um veðrið sem gengur yfir landið en veðurviðvaranir hafa verið í gildi á Vestfjörðum síðan í gærkvöldi.
7:30 - Rammasamnignur milli ríkis og borgar um skjótari uppbyggingu húsnæðis í Reykjavík var undirritaður í lok síðustu viku. Athyglu vakti að uppbyggingarheimildir verða tímabundnar til þess að byggja hraðar og koma í veg fyrir lóðabrask. Þannig á að koma í veg fyrir að fyrirtæki sem eigi byggingarréttinn liggi á lóðum án þess að hefja uppbyggingu. Við ætlum að ræða þá nálgun við Ólaf Margeirsson, doktor í hagfræði, sem sagði úrræðið minna sig á þegar bærinn Wörgl í Austurríki gaf út sína eigin peninga árið 1932 í miðri kreppu sem voru einfaldlega stimplaðir á miða. Við spyrjum hann betur út í þá samlíkingu.
7:45 - Það eru margir að taka svokallaðan þurran janúar í mánuðinum, þ.e. að bragða ekki áfengi þar til um næstu mánaðamót. En skiptir þetta einhverju máli fyrir hófdrykkjufólk? Er einhver ávinningur af því að sleppa rauðvínsglasinu á föstudögum og neita sér þannig um lífsins lystisemdir? Við athuguðum málið og fengum Hörpu Þorsteinsdóttur verkefnastjóra lýðheilsu hjá Reykjavíkurborg til að koma til okkar með svörin.
8:05 - Eftir átta fréttir ætlum við að ræða siðferðislega umdeilanlegar fjármögnunaraðferðir hér á landi. Það vakti nokkra athygli þegar Umhverfisstofnun fór af stað með átak í síðasta mánuði þar sem stofnunin spurði hvernig fólk gæti minnkað þörfina fyrir flugelda og hvað það gæti gert í staðinn fyrir að sprengja. Flugeldasala er stærsta og mikilvægasta fjáröflunarleið björgunarsveitanna á Íslandi og því fannst fólki það sett í erfiða stöðu. Þá hefur ítrekað verið gagnrýnt að Háskóli Íslands sé fjármagnaður að hluta með rekstri spilakassa og að íþróttafélögin þurfi að reiða sig á sölu á áfengi á þorrablótum. Við ræðum siðferðileg álitamál og möguleg

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 9. janúar 2022
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Hipsumhaps - Lsmlí
TOTO - Hold the line
Emilíana Torrini & The Colorist Org. - Mikos
Barry Manilow - Can?t smile without you
A-ha - True north
Maus - Allt sem þú lest er lygi
Beach Weather - Sex, drugs etc
Madness - It must be love
Madonna - Hung up
Omar Apollo - Evergreen
Pink - Never gonna not dance again
Myrkvi - Draumabyrjun
Harry Styls - Music for a sushi restaurant
10:00
Nylon - Allstaðar
Weeknd - Nothing is lost
Fleetwood Mac - Everywhere
Guðmundur R - Einmunatíð
Lucy Dacus - It?s to late
Scissor sisters - Take your mama
Lady Gaga - Bloody Mary
Turtles - Happy together
Simple Minds - Traffic
Teskey Brothers - This will be our year
Sometime - Heart of spades
Offbít & Steingrímur Teague - Allt á hvolf
PIL - Disappointed
Skaupið - Búið og bless
11:00
GDRN - Áður en dagur rís Ft. Birnir
Eló - Ljósalagið
Air - Sexy boy
Andrew McMahon in the wilderness - Stars
Plan B - She said
Phoebe Bridges - So much wine
Iggy Pop - Strung out Johnny
Primal Scream - Rocks
Írafár - Aftur heim
Ultraflex - Baby - (Plata vikunnar)
Undra - Feral
Metro Boomin - Creepin?Ft. Weeknd & 12 Savage
12:00
Berndsen & Bubbi - Úlfur úlfur
Tara Mobee - For now
Adele - I drink wine
Nýdönsk & Svanhildur Jakobs - Á sama tíma að ári

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut og Siggi Gunnars stýrðu Popplandi dagsins.
Allskonar skemmtilegt á boðstólnum í dag. Nýtt frá Myrkva, Mukka, Chilli Jesson og fleirum. Héldum upp á fyrstu plötu Bruce Springsteen, Greetings From Asbury Park, N.J og tvíeykið Ultraflex kynnti plötu vikunnar, Infinite Wellness.
12.40 til 14.00 LR
Gus Gus - Ladyshave
Gugusar - Annar Séns
The Dare - Girls
George Michael - Faith
Árstíðir - Bring Back The Feel
Biig Piig - This Is What They Meant
Mukka - Heather
David Bowie - Let?s Dance
Emmsjé Gauti - Klisja
Ultraflex - Relax
10CC - Dreadlock Holiday
Offbít & Steingrímur Teague - Allt á Hvolfi
Emilíana Torrini - Jungle Drum
Joan Baez - The Night They Drove Old Dixie Down
Myrkvi - Draumabyrjun
Bruce Springsteen - Spirit In The Sky
Bruce Springsteen - It?s Hard To Be A Saint In The City
Pálmi Gunnars - Hvers Vegna Varst?ekki Kyrr
Teitur Magnússon - Kamelgult
Lorde - Royals
14.00 til 16.00 SG
Systur - Goodbye
Sam Fender - Getting Started
Foo Fighters - Love Dies Young
Tove Lo - Love Dies Young
Tove Lo - Grapefruit
Inhaler - Love Will Get You There
Taylor Swift & Lana Del Rey - Snow On The Beach
Sam Cooke - Twistin' The Night Away
Caroline Polacheck - Welcome To My Island
Leaves - Breath
Death Cab For Cutie - Pepper
Ultraflex - Melting Away
Mammút - Blóðberg
Cigarettes After Sex - Pistol
Sigrún Stella - Circles
Páll Óskar - Stanslaust stuð
Beyoncé - CUFF IT
Bríet, Aron Can, Páll Óskar og Diddú - Búið og bless
Júníus Meyvant & KK - Skýjaglópur
Soul 2 Soul - Back To Life
SZA - Kill Bill
Hurts - Stay
LF System - Afraid To Feel
Chilli Jesson - Caroline Reaper
Rolling Stones - She's A Rainbow
Sálin hans Jóns míns - Okkar nótt
Stevie Wonder - A Place In The Sun
Umsjón: Lovísa Rut & Sigurður Þorri Gunnarsson

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningar seturs og Ásthildur Sturludóttur, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í síðustu viku samning um samræmda móttöku flóttafólks á Akureyri. Samningurinn kveður á um að Akureyrarbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 350 flóttamönnum fram til ársloka 2023. Er Akureyrarbær í stakk búinn til að taka á móti öllu þessu fólki ? Heimir Örn Árnason forseti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar verður á línunni hjá okkur á eftir.
Í mörg ár beitti ég sjálfa mig grimmilegu andlegu ofbeldi með neikvæðu sjálfsniðurrifi og sjálfsásökun. Ég gerði mér enga grein fyrir því hversu skaðlegt og vont þetta ofbeldi var sem ég beitti sjálfa mig, daglega skrifar Sara Pálsdóttir dáleiðari og lögmaður í pistli í Fréttablaðið 14. desember sl. Sara hefur öðlast nýtt líf í dag og hún kemur til okkar og segir okkur frá þessari lífsreynslu og hvernig henni tókst að snúa við blaðinu.
Gulleggið er stærsta frumkvöðlakeppni landsins og við ætlum að kynna okkur hana í þættinum. En þarf fólk að vera með góða viðskiptahugmynd til að vera með ? Ása María Þórhallsdóttir verkefnastjóri Gulleggsins og Freyr Friðfinnson verkefnastjóri og alþjóðafulltrúi KLAK ræða við okkur hér á eftir.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður er staddur í Þýskalandi ásamt íslenska karlalandsliðinu í Handbolta en liðið er á förum til Svíþjóðar þar sem fyrsti leikur liðsins á HM fer fram núna á fimmtudaginn. Þorkell Gunnar ræddi við landsliðsmanninn Viggó Kristjánsson og við fáum að heyra það hér síðar í þættinum.
Við heyrum í meindýraeyði í þættinum en undanfarið höfum við rekið nefið í fréttir sem fjalla meðal annars um kakkalakka og veggjalýs Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir verður á línunni og við spyrjum hann út í kakkalakka, rúmpöddur, veggjalýs og rottugang.
En við byrjum á ástandinu í Brasilíu þar sem allt er á suðupunkti. Oddur Þórðarson fréttamaður kemur til okkar hér eftir smá stund og fer í saumana á því.

Útvarpsfréttir.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn, 9. janúar 2023.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
Sjúklingar á gjörgæsludeild Landspítalans eru álíka margir og voru í fyrstu covid-bylgjunni, að sögn Kára Hreinssonar, framkvæmdastjóra skurðlækninga, svæfinga og gjörgæsluþjónustu á Landspítalanum. Mikið hefur borið á öndunarfærasýkingum á borð við streptókokka. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við hann.
Loftmengun hefur farið langt yfir heilsuverndarmörk á höfuðborgarsvæðinu strax á einungis fyrstu dögum ársins. Svava Steinarsdóttir, Heilbrigðisfulltrúi hjá Reykjavíkurborg segir beinar aðgerðir stranda á stjórnvöldum - skýra þurfi verkferla svo hægt sé að takmarka umferð. Gunnhildur Kjerjúlf Birgisdóttir talaði við hana.
Háskóli Íslands hefur hríðfallið niður lista Times Higher Education yfir bestu háskóla heims. Munar mest um færri tilvitnanir í greinar eftir vísindamenn skólans segir Halldór Jónsson, sviðsstjóri vísindasviðs HÍ. Listar um bestu skóla eru umdeildir en allir vilji vera á þeim. Alexander Kristjánsson tók saman..
Norska utanríkisráðuneytið hefur boðað sendiherra Írans til fundar í Osló, til að ræða aftökur íranskra stjórnvalda á mótmælendum þar í landi. Alls hafa sautján verið dæmdir til dauða. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.
Smámunasafn Sverris Hermannssonar er einstakt á landsvísu en óvissa ríkir um framtíð þess. Húsnæðið er nú til sölu og Félag íslenskra safna og safnmanna hefur lýst yfir áhyggjum sínum. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Finn Yngva Kristinsson, sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar og Dagrúnu Ósk Jónsdóttur, verkefnastjóri Félags íslenskra safna og safnmanna.
------------
Á annað þúsund stuðningsmenn fyrrverandi forseta Brasilíu eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á áhlaupi þeirra á æðstu stofnanir landsins. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Ibaneis Rocha héraðsstjóra, Lula Da Silva forseta, Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu og Joao Gomes Cravhino, utanríkisráðherra Portúgals.
Lögreglu er ekki heimilt að stofna til tálbeituaðgerða, en hún má stíga inn í samskipti barna við meinta gerendur. María Rún Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá Ríkislögreglustjóra segir ógnvekjandi hversu auðvelt er að leiða meinta barnaníðinga í gildru það segi sína sögu.
Meðal frændþjóða okkar á Norðurlöndum er ný þróun í veitingamennsku áberandi. Ungt fólk sækir öðru fremur áfengislaus hús þar sem bara er boðið uppá kaffi og kökur ? og þráðlaust internet. Veitingamenn hlaupa á eftir tískunni og ný og stærri áfeng

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.
Spjall um íslenska karlalandsliðið í handbolta og HM í handbolta 2023.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
Íþróttavarpið er í Þýskalandi í dag og ræðir við landsliðsmenn eftir leikina tvo gegn Þýskalandi um helgina, og spáir í spilin fyrir HM sem hefst á fimmtudag. Viðmælendur dagsins eru reynsluboltarnir Björgvin Páll Gústavsson og Ólafur Guðmundsson.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Að venju af nógu að taka í nýrri tónlist og það er það sem við gerum þennan mánudag á Kvöldvaktinni sem býður upp á nýtt og nýlegt frá Hannes ft Waterboy, Gorillaz, Phoenix, Kvikindi, Chilli Jesson, Alex G, Mt Joy og mörgum fleirum.
Lagalistinn
Systur - Goodbye
Kári - Something Better
Júníus Meyvant - Hailslide
Hannes ft Waterbaby - Stockholmsvy
Al Green - Lets Stay Togehter
Gorillaz - Skinny Ape
Future Islands - King of Sweden
Phoenix - After Midnight
Kvikindi - Enginn kann að lifa
Chilli Jesson - Carolina Reaper
Santigold - Disparate Youth
Phoebe Bridgers - So Much Vine
Metronomy x Sebastien Tellier - J'en Ai Assez Vu
Offbít og Steingrímur Teague - Allt á hvolf
Beach Weather - Sex, Drugs, Etc
Charlotte Fever - Septembre
Alex G - Runner
David Bowie - It's No Game
Mt Joy - Evergreen
New Order - Age of Consent
Patti Smith - Until the End of the World
Weyes Blood - It's Not Just Me, It?s Everybody
Sault - Fight For Love
Yazmin Lacey - Bad Company
Sza - Kill Bill
Little Simz - Gorilla
Notorious BIG - Hypnotize
Fatoumata Diawara, Damon Albarn - Nsera
Andri Már - Perlur
The Dare - Girls
Lúpína - Ástarbréf
Ladytron - City Of Angels
Faithless - God Is a DJ
Channel Tres - 6am
Bondax ft. Dur-Dur Band - Yabaal to London
Blessed Madonna - Seretonin Moonbeams
Feist - 1234
Lucy Dacus - It's Too Late
Gaz Coombes - Dont Say Its Over
Dry Cleaning - Kwenchy Kups
Karma Brigade - Waiting Man
Inhanler - Love Will Get You Down
Hotel Lux - Common Sense

Útvarpsfréttir.

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Hljómsveitin Ultraflex hefur verið í góðu sprelli undanfarin ár og þær Katrín og Kari sent nokkuð reglulega frá sér glaðlega rafpopp-slagara. Þær gáfu út aðra plötu sína í fullri lengd, Infinite Wellness, í byrjun október.

Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson, Katrín Helga Ólafsdóttir og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Snæbjörn ferðaðist norður til Akureyrar um jólin og fangaði tækifærið til að ná spjalli við hljómsveitina Brenndu Bananana. Þau Grétar Ólafur, Hekla Sólveig og Sigrún Freygerður komu við í höfuðstöðvum Ríkisútvarpsins á Akureyri, og ræddu við Snæja um tónlistina, lífið á Akureyri og sögu hljómsveitarinnar.
Tilraunasveitin Tucker Carlson?s Jonestown Massacre sendi á dögunum frá sér sína sjöttu breiðskífu, Tucker II, og hafa nú gefið út plötur á hverju ári í fimm ár samfleytt. Í tilefni af þessu rýnir Bjarni Daníel í feril þessarar dularfullu sveitar.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson & Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack
Lagalisti:
Andrés Þór Þorvarðarson - Ólátagarður
Brenndu bananarnir - Grétar er farinn
Brenndu bananarnir - Komdu með hann strax
Brenndu bananarnir - Íslenskt ferðalag
Brenndu bananarnir - Gamlir kallar á hjólum
Brenndu bananarnir - Prófatíð
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Víðalín
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Stupid Cloudy
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - The Moon (The Microphones Cover)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Montevideo
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Kursk (brot)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Darling Range (brot)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Flágil
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Dusterlagið (brot)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Post-sessions 2020 (viðtalsbrot)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - lalala (brot)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Tucker bolli (brot)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Prime 5
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Twang (brot)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - James 4 (brot)
Tucker Carlson?s Jonestown Massacre - Þá Flýðu Fyrir Hans Ofríki
Sniglarnir í töfraskógi - Grámann regnbogi
Lempi Elo - Ullakko
Lilja María Ásmundsdóttir, Inês Zinho Pinheiro - IV. Spiders draw lines between my thoughts
Ægir, MSEA - accepting uncertainty