16:05
Síðdegisútvarpið
9.janúar

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningar seturs og Ásthildur Sturludóttur, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í síðustu viku samning um samræmda móttöku flóttafólks á Akureyri. Samningurinn kveður á um að Akureyrarbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 350 flóttamönnum fram til ársloka 2023. Er Akureyrarbær í stakk búinn til að taka á móti öllu þessu fólki ? Heimir Örn Árnason forseti bæjarstjórnar Akureyrarbæjar verður á línunni hjá okkur á eftir.

Í mörg ár beitti ég sjálfa mig grimmilegu andlegu ofbeldi með neikvæðu sjálfsniðurrifi og sjálfsásökun. Ég gerði mér enga grein fyrir því hversu skaðlegt og vont þetta ofbeldi var sem ég beitti sjálfa mig, daglega skrifar Sara Pálsdóttir dáleiðari og lögmaður í pistli í Fréttablaðið 14. desember sl. Sara hefur öðlast nýtt líf í dag og hún kemur til okkar og segir okkur frá þessari lífsreynslu og hvernig henni tókst að snúa við blaðinu.

Gulleggið er stærsta frumkvöðlakeppni landsins og við ætlum að kynna okkur hana í þættinum. En þarf fólk að vera með góða viðskiptahugmynd til að vera með ? Ása María Þórhallsdóttir verkefnastjóri Gulleggsins og Freyr Friðfinnson verkefnastjóri og alþjóðafulltrúi KLAK ræða við okkur hér á eftir.

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður er staddur í Þýskalandi ásamt íslenska karlalandsliðinu í Handbolta en liðið er á förum til Svíþjóðar þar sem fyrsti leikur liðsins á HM fer fram núna á fimmtudaginn. Þorkell Gunnar ræddi við landsliðsmanninn Viggó Kristjánsson og við fáum að heyra það hér síðar í þættinum.

Við heyrum í meindýraeyði í þættinum en undanfarið höfum við rekið nefið í fréttir sem fjalla meðal annars um kakkalakka og veggjalýs Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir verður á línunni og við spyrjum hann út í kakkalakka, rúmpöddur, veggjalýs og rottugang.

En við byrjum á ástandinu í Brasilíu þar sem allt er á suðupunkti. Oddur Þórðarson fréttamaður kemur til okkar hér eftir smá stund og fer í saumana á því.

Var aðgengilegt til 09. janúar 2024.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,