06:50
Morgunútvarpið
9. jan - Sána, þurr janúar og bílaumferð

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

7:15 - Nú á nýju ári tekur við breytt skipulag á aðgengi að sánunni í Sundhöll Ísafjarðar. Þau sem sótt hafa sundlaugina vita vel að aðgengi að sánu er takmarkað við annan búningsklefa sundhallarinnar og hefur hann því verið karla- og kvennaklefi til skiptis. Karlar hafa komist í sánuna á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum, og konur hina daga vikunnar og hafa því kallað eftir sanngjarnari skiptum. Því hefur verið ákveðið að aðgengi verði breytilegt eftir vikum; í sléttum vikum hafa konur aðgang að sánunni á föstudögum og í oddavikum hafa karlar aðgengi að henni á föstudögum. Við ætlum að ræða sánuna og sundið og breytt fyrirkomulag við Hafdísi Gunnarsdóttur, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Ísafjarðarbæjar, en mögulega einnig um veðrið sem gengur yfir landið en veðurviðvaranir hafa verið í gildi á Vestfjörðum síðan í gærkvöldi.

7:30 - Rammasamnignur milli ríkis og borgar um skjótari uppbyggingu húsnæðis í Reykjavík var undirritaður í lok síðustu viku. Athyglu vakti að uppbyggingarheimildir verða tímabundnar til þess að byggja hraðar og koma í veg fyrir lóðabrask. Þannig á að koma í veg fyrir að fyrirtæki sem eigi byggingarréttinn liggi á lóðum án þess að hefja uppbyggingu. Við ætlum að ræða þá nálgun við Ólaf Margeirsson, doktor í hagfræði, sem sagði úrræðið minna sig á þegar bærinn Wörgl í Austurríki gaf út sína eigin peninga árið 1932 í miðri kreppu sem voru einfaldlega stimplaðir á miða. Við spyrjum hann betur út í þá samlíkingu.

7:45 - Það eru margir að taka svokallaðan þurran janúar í mánuðinum, þ.e. að bragða ekki áfengi þar til um næstu mánaðamót. En skiptir þetta einhverju máli fyrir hófdrykkjufólk? Er einhver ávinningur af því að sleppa rauðvínsglasinu á föstudögum og neita sér þannig um lífsins lystisemdir? Við athuguðum málið og fengum Hörpu Þorsteinsdóttur verkefnastjóra lýðheilsu hjá Reykjavíkurborg til að koma til okkar með svörin.

8:05 - Eftir átta fréttir ætlum við að ræða siðferðislega umdeilanlegar fjármögnunaraðferðir hér á landi. Það vakti nokkra athygli þegar Umhverfisstofnun fór af stað með átak í síðasta mánuði þar sem stofnunin spurði hvernig fólk gæti minnkað þörfina fyrir flugelda og hvað það gæti gert í staðinn fyrir að sprengja. Flugeldasala er stærsta og mikilvægasta fjáröflunarleið björgunarsveitanna á Íslandi og því fannst fólki það sett í erfiða stöðu. Þá hefur ítrekað verið gagnrýnt að Háskóli Íslands sé fjármagnaður að hluta með rekstri spilakassa og að íþróttafélögin þurfi að reiða sig á sölu á áfengi á þorrablótum. Við ræðum siðferðileg álitamál og möguleg

Var aðgengilegt til 09. janúar 2024.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,