20:35
Samfélagið
Nýjasta tækni, lífmassi í heiminum, málfar og áramótaávarp frá 1951

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: [email protected]

Við ætlum að velta fyrir okkur nýjustu tækni og hvað ber þar hæst á nýju ári. Hjálmar Gíslason forstjóri Grid, birtir árlega svokallaða tæknispá þar sem hann fer yfir það helsta sem vænta má að sjá í tækni. Við rýnum í nýjustu spá Hjálmars.

Við ætlum að rýna í tölur um lífmassa í heiminum og hvernig hlutdeildin skiptist á milli lífvera. Hvað er mannkyn mikill hluti lífmassa á jörðinni? Og hvaða áhrif hefur maðurinn á lífmassa annarra lífvera? Það kemur kannski ekki á óvart að villtum spendýrum fækkar viðstöðulaust og það er helst út af útþenslu mannsins, sem ræktar endalaust af búfénaði til manneldis á kostnað villtra dýra og plönturíkisins. Sigurður Loftur Thorlacius umhverfisverkfræðingur hjá Eflu fer yfir þetta með okkur

Málfarsmínúta

Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri kíkir til okkar með gamla upptöku í farteskinu að þessu sinni heyrum við brot úr áramótaávarpi Sveins Björnssonar forseta árið 1951

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 59 mín.
e
Endurflutt.
,