06:50
Morgunvaktin
Tollar, umhverfismál og eftirlaunamál

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Félag atvinnurekenda, VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og Rafiðnaðarsamband Íslands hafa óskað eftir fundum með matvælaráðherra og fjármálaráðherra til að ræða lækkun og niðurfellingu tolla í þágu neytenda. Í kjarasamningum sem þessir aðilar gerðu í lok síðasta árs var gerð bókun um þetta, tollabreytingar væru meðal áhrifaríkustu leiða til að bæta hag launþega. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda kom til okkar og ræddi þessi mál.

Við litum fram á veginn í efnahagsmálum með Ásgeiri Brynjari Torfasyni sérfræðingi í fjármálum. Áfram verða sömu mál í forgrunni í alþjóðahagkerfinu, en stóra málið eru umhverfismálin.

Macron Frakklandsforseti hefur tilkynnt að á þessu ári verði ráðist í breytingar á eftirlaunakerfinu í Frakklandi, og lífeyrisaldur hækkaður í skrefum úr 62 árum í 65. Þetta er mjög umdeilt mál, og þriðjungur þjóðarinnar segist mótfallinn samkvæmt nýrri könnun. Rósa Björk Brynjólfsdóttir er búsett í París og fylgist vel með, hún sagði okkur frá þessu. Við ræddum líka um loftslagsmálin, síðasta ár var það hlýjasta frá því mælingar hófust í Frakklandi.

Tónlist:

That's where it's at - Sam Cooke

Just a memory - Duke Ellington

Paris sera toujours Paris - Zaz

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,