06:50
Morgunútvarpið
2. nóv - Guðni Ágústsson, Lögreglustjóri, Efling, CCP og Árborg

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, gaf í dag út bókina Guðni á ferð og flugi. Þar fer Guðni með lesandann í ferðalag um hinar dreiðu byggðir Íslands og heimsækir fólk af öllu tagi. Við ræddum við þennan sagnamann um bókina, en einnig um stöðu stjórnmálanna og Framsóknarflokksins í kjölfar Alþingiskosninga.

Fjölmiðar undanfarið hafa fjallað um meintan byrlunarfaraldur í miðbæ Reykjavíkur sem og á Akureyri. Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, kom til okkar og ræddi um þetta mál en einnig um samfélagsmiðlareglur lögreglumanna.

Mikið hefur gengið á í Eflingu undanfarna sólarhringa. Við ræddum við Kolbein Marteinsson, almannatengil, og Sumarliða Ísleifsson, lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands, um þessa fordæmalausu stöðu, orðræðuna og möguleg áhrif á kjarabaráttu.

Hverjum hefði grunað að tölvuleikjaspilarar gætu hjálpað vísindamönnum um allan heim að leysa flókin rannsóknarefni? Að minnsta kosti starfsfólki CCP en innan leiksins Eve Online má finna verkefnið Project Discovery þar sem spilarar hjálpa vísindamönnum að finna exóplánetur og flokka prótein sem meðal annars aðstoða við rannsóknir gegn Covid-19. Við ræddum við Berg Finnbogason, creative director hjá CCP.

Íbúðaverð hefur víða hækkað meira en á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Í þéttbýliskjörnum umhverfis höfuðborgarsvæðið hækkaði íbúðaverð mest í Árborg á þriðja ársfjórðungi eða um 36 prósent. Íbúðasala eykst einmitt einna mest á Suðurlandi þar sem nú seljast hátt í 40% fleiri íbúðir en fyrir ári síðan. Við ræðum við Gísla Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Árborgar, um þessa þróun í byggða- og íbúðamálum.

Sævar Helgi Bragason var hjá okkur með stútfullt farteski af vísindum, eins og vanalega.

Tónlist:

Sváfnir Sig - Stund milli stríða

Hákon - Barcelona

Vök - Running Wild

Ske - Juliette 2

Snorri Helgason - Haustið 97

Ed Sheeran - Bad habits

GDRN - Næsta líf

Var aðgengilegt til 02. nóvember 2022.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,