06:50
Morgunvaktin
Hagnaður, óbólusettur knattspyrnumaður og mexíkóskir tónar

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir hagnað viðskiptabankanna þriggja á fyrstu níu mánuðum ársins en hagnaður þeirra nam 60,3 milljörðum króna og jókst umtalsvert á milli ára. Eins var afkoma sjávarútvegsfyrirtækjana mjög góð og greiddu þau eigendum sínum arð upp á 21,5 millj­arða króna. Það var hæsta arð­greiðsla sem atvinnu­greinin hefur greitt til eig­enda sinna á einu ári. Á árinu 2020 greiddu útgerðarfélög lands­ins 17,4 millj­arða króna í opin­ber gjöld. Þar af veiði­gjald upp á 4,8 milljarða króna. Leið­togar G20-­ríkj­anna hafa kom­ist að sam­komu­lagi um 15 pró­sent lág­marks­skatt á alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki. Mark­mið skatt­lagn­ing­ar­innar er að koma í veg fyrir að stór­fyr­ir­tæki á borð við Facebook, Google og Apple nýti sér skatta­skjól þar sem fyr­ir­tækja­skattar eru lágir, svo sem á Írlandi.

Arthúr Björgvin Bollason fjallaði um ákvörðun þýska knattspyrnumannsins Joshua Kimmichs að láta ekki bólusetja sig við kórónuveirunni og áhrif þess á þýska umræðu að undanförnu. Í Berlínarspjalli dagsins var einnig rætt um siðbreytingardaginn sem haldinn var hátíðlegur í lúterskum kirkjum í Þýskalandi á sunnudag í tilefni þess að Lúther mun á þessum degi, 31. október 1517, hafa hengt andmæli sín við katólskunni á kirkjuhurðina í Wittenberg.

Svana Jóhannsdóttir söngkona var síðan með örnámskeið fyrir hlustendur í mexíkóskri tónlist en í dag er Dagur hinna dauðu. Þá er látinna minnst í Mexíkó og tónlist er ríkur þáttur í hátíðarhöldunum þar í landi.

Tónlist: Black Coffee með Sarah Vaughan, Las Simples cosas með Chavela Vargas, Como quien pierde una estrella með Alejandro Fernandes og Con toda palabra með Lhasa Se Sela.

Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,