12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 2. nóvember 2021

Útvarpsfréttir.

Sólveig Anna Jónsdóttir hefur ekki sagt af sér embætti annars varaforseta ASÍ en forseti sambandsins á von á að hún tilkynni fljótlega um afsögn. Mál Eflingar verða til umræðu á miðstjórnarfundi ASÍ á morgun.

Rúmlega hundrað þjóðarleiðtogar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafa sammælst um að stöðva eyðingu skóga í heiminum fyrir árið 2030. Brasilíumenn eru þeirra á meðal.

Sérfræðingar Vegagerðarinnar meta nú aðstæður í Norðfjarðargöngum þar sem hluti af klæðningu féll úr lofti í gær. Göngin eru lokuð en frá hádegi verður stærri bílum hleypt í gegn í hollum. Minni bílar notast við gömlu göngin uppi í Oddsskarði.

Nýtútskrifaðir sálfræðingar fá ekki starfsleyfi hér á landi þar sem verklega þjálfun vantar í námið. Minnst tveir sálfræðingar hafa lent í vandræðum í Svíþjóð því íslenska námið stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru annars staðar á Norðurlöndunum.

85 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Búist er við talsverðum fjölda í sýnatöku á Selfossi í dag og reynir lögreglan að liðka fyrir umferð í kringum sýnatökustað.

Enn er beðið fregna af knattspyrnumanninum Emil Pálssyni, sem hneig niður í leik með liði sínu Sogndal í norsku b-deildinni í gærkvöldi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,