
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Arnaldur Máni Finnsson flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir hagnað viðskiptabankanna þriggja á fyrstu níu mánuðum ársins en hagnaður þeirra nam 60,3 milljörðum króna og jókst umtalsvert á milli ára. Eins var afkoma sjávarútvegsfyrirtækjana mjög góð og greiddu þau eigendum sínum arð upp á 21,5 milljarða króna. Það var hæsta arðgreiðsla sem atvinnugreinin hefur greitt til eigenda sinna á einu ári. Á árinu 2020 greiddu útgerðarfélög landsins 17,4 milljarða króna í opinber gjöld. Þar af veiðigjald upp á 4,8 milljarða króna. Leiðtogar G20-ríkjanna hafa komist að samkomulagi um 15 prósent lágmarksskatt á alþjóðleg stórfyrirtæki. Markmið skattlagningarinnar er að koma í veg fyrir að stórfyrirtæki á borð við Facebook, Google og Apple nýti sér skattaskjól þar sem fyrirtækjaskattar eru lágir, svo sem á Írlandi.
Arthúr Björgvin Bollason fjallaði um ákvörðun þýska knattspyrnumannsins Joshua Kimmichs að láta ekki bólusetja sig við kórónuveirunni og áhrif þess á þýska umræðu að undanförnu. Í Berlínarspjalli dagsins var einnig rætt um siðbreytingardaginn sem haldinn var hátíðlegur í lúterskum kirkjum í Þýskalandi á sunnudag í tilefni þess að Lúther mun á þessum degi, 31. október 1517, hafa hengt andmæli sín við katólskunni á kirkjuhurðina í Wittenberg.
Svana Jóhannsdóttir söngkona var síðan með örnámskeið fyrir hlustendur í mexíkóskri tónlist en í dag er Dagur hinna dauðu. Þá er látinna minnst í Mexíkó og tónlist er ríkur þáttur í hátíðarhöldunum þar í landi.
Tónlist: Black Coffee með Sarah Vaughan, Las Simples cosas með Chavela Vargas, Como quien pierde una estrella með Alejandro Fernandes og Con toda palabra með Lhasa Se Sela.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason

Útvarpsfréttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fyrir helgi fór fram málstofan Birtingarmyndir kynbundins ofbeldis og viðbrögð við því þar sem fjallað var um kynbundið ofbeldi frá ýmsum hliðum. Þar var, í nokkrum erindum, leitast við að svara eftirfarandi spurningum: Hvað eiga konur sem leitað hafa á bráðamóttöku vegna heimilisofbeldis sameiginlegt? Hvernig bregðast konur við kynferðislegri valdbeitingu á vinnustað? Hver eru viðbrögð þeirra sem sökuð eru um kynferðisofbeldi? Falla meiðyrðamál stefnendum eða stefndu í vil? Og hvaða áhrif hefur skrímslaorðræðan á gerendur? Við fengum Drífu Jónasdóttur, afbrotafræðing og doktorsnema við læknadeild Háskóla Íslands, til að segja okkur meira frá erindi sínu og doktorsverkefni þar sem hún rannsakar komu kvenna á bráðamóttöku Landspítala vegna áverka í kjölfar heimilisofbeldis eða annars konar ofbeldis.
Út er komin Arnar saga Björnssonar fyrrverandi útibússtjóra Íslandsbanka á Húsavík, Ekki standa á öðrum fæti allt lífið. Það er dóttir Arnar, Kristín Erna sem skráði söguna. Það skiptast á skin og skúrir í lífi Arnar sem og í íslensku samfélagi. Hann er hestamaður, veiðimaður, eiginmaður, faðir, skrifstofumaður, bóndi í Gauksmýri og síðast útibússtjóri. Feðginin Örn og Kristín komu í þáttinn í dag.
Áki Guðni Karlsson leggur stund á doktorsnám í þjóðfræði og rannsakar auk þess ýmislegt áhugavert sem á fjörur hans rekur. Sem dæmi má nefna að hann hélt fyrir stuttu fyrirlestur sem hann kallaði Covid og dauðinn. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Áka og fékk hann til að segja frá þessum þjóðfræðivangaveltum.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.
Morð á ungri bandarískri stúlku, Gabrielle Petito, hefur hrundið af stað samtali og umræðu og varpað ljósi á ýmis konar samfélagsleg vandamál og misbresti. Til dæmis kerfislæga mismunun, fjölmiðlaumfjöllun, kynbundið ofbeldi, lífið í netheimum og sjálfskipaða internet-rannsóknarlögreglumenn, vopnaða tölvum og nettengingu - og ágæti þeirra.
Loftslagsráðstefna Sameinuðu Þjóðanna, COP26 var sett í Glasgow á sunnudag. Þar eru samankomnir um 120 þjóðarleiðtogar, auk ríkiserindrekaa, vísindamanna, sérfræðinga, fréttafólks og baráttufólks í loftslagsmálum. Markið ráðstefnunnar er ærið: að samþykkja nýjar skuldbindingar ríkja gagnvart Parísarsamkomulaginu, sem samþykkt var á síðustu loftslagsráðstefnu í París - 2015. Í síðari hluta þáttarins förum yfir það helsta sem gerðist á ráðstefnunni í gær.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.

Útvarpsfréttir.
Sólveig Anna Jónsdóttir hefur ekki sagt af sér embætti annars varaforseta ASÍ en forseti sambandsins á von á að hún tilkynni fljótlega um afsögn. Mál Eflingar verða til umræðu á miðstjórnarfundi ASÍ á morgun.
Rúmlega hundrað þjóðarleiðtogar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafa sammælst um að stöðva eyðingu skóga í heiminum fyrir árið 2030. Brasilíumenn eru þeirra á meðal.
Sérfræðingar Vegagerðarinnar meta nú aðstæður í Norðfjarðargöngum þar sem hluti af klæðningu féll úr lofti í gær. Göngin eru lokuð en frá hádegi verður stærri bílum hleypt í gegn í hollum. Minni bílar notast við gömlu göngin uppi í Oddsskarði.
Nýtútskrifaðir sálfræðingar fá ekki starfsleyfi hér á landi þar sem verklega þjálfun vantar í námið. Minnst tveir sálfræðingar hafa lent í vandræðum í Svíþjóð því íslenska námið stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru annars staðar á Norðurlöndunum.
85 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Búist er við talsverðum fjölda í sýnatöku á Selfossi í dag og reynir lögreglan að liðka fyrir umferð í kringum sýnatökustað.
Enn er beðið fregna af knattspyrnumanninum Emil Pálssyni, sem hneig niður í leik með liði sínu Sogndal í norsku b-deildinni í gærkvöldi.

Dánarfregnir

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Við verðum áfram í tengingu við Loftlagsráðstefnuna í Glasgow - Þórey Þórðardóttir framkvæmdastjóri Landsamtaka lífeyrissjóða er þar.
Við ætlum líka að forvitnast um stóra rannsókn á áhrifum covid faraldursins á framhaldsskólana - Ómar Örn Magnússon doktorsnemi við menntavísindasvið er einn rannsakenda.
Í gær bárust fréttir af því að beinagrind af hval, sem rak á land á Snæfellsnesi fyrir nokkrum árum hefði verið stolið - Hilmar Malmquist forstöðumaður náttúruminjasafns Íslands ræðir framboð á og eftirspurn eftir hvalbeinum.

Útvarpsfréttir.

Lofthelgin býður hlustendum að fljóta frjálslega í tíma og rúmi á lignu hafi hughrifatónlistar. Frá endurómi fortíðar til nýjustu strauma 21. aldarinnar leitum við heimshornanna á milli að réttri stemningu og andrúmslofti til að leiða hlustandann á ný mið andans. Út fyrir endimörk algleymis.
Umsjón er í höndum Friðriks Margrétar-Guðmundsson.

Útvarpsfréttir.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Fyrir ári las Illugi Jökulsson úr minningum Vigfúsar Guðmundssonar þar sem hann sagði frá ævintýrum sínum í Klettafjöllum á árum heimsstyrjaldarinnar fyrri. Að þessu sinni grípur Illugi niður í ferðasögu Vigfúsar til Suður-Ameríku, einkum Brasilíu, og hann segir ekki síst frá hinum íslensku Brasilíuförum.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Við sláum á þráðinn til Önnu Grétu Sigurðardóttur, en hún hefur verið búsett í Stokkhólmi síðustu 7 ár og gert garðinn frægan sem djasspíanisti. Anna hlaut meðal annars hin virtu Fasching verðlaun árið 2018, var valin bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum árið 2015 og lék á Nóbelsverðlaunahátíðinni í fyrra. Nú kemur hún fram sem söngkona í fyrsta sinn með sólóplötu sinni ?Nightjar in the northern sky?.
Snorri Rafn Hallsson, dagskrárgerðarmaður og textasmiður í Vín heldur áfram pistlaröð sinni um möguleika og ómöguleika tækninnar. Dómsdagsklukkan tifar og endalokin nálgast, segir Snorri. En er leiðin út, sú sem Kísildalurinn boðar, að fara hratt og skemma hluti, sú eina rétta? Heyrum meira af því hér á eftir.
Og svo skoðum við eitt orð (orðið estrano, eða skrítið) innan úr einni óperu. La Traviata eftir Verdi verður tekin aftur til sýninga hjá Íslensku óperunni um helgina í Hörpu og um þar næstu helgi í Hofi á Akureyri. Við skoðum að þessu tilefni hvernig eitt orð getur táknað það þegar gæfan í lífi persóna getur snúist um 180 gráður.
Og við lítum líka inn í geymslur Ljósmyndasafns Íslands, þar sem Kristín Halla Baldvinsdóttir hefur starfað sem sérfræðingur í yfir áratug. Kristín Halla hefur sérstakan áhuga á ljósmyndum sem teknar voru í híbýlum fólks á fyrri hluta síðustu aldar, ljósmyndum sem sýna hvað prýddi veggi heimila Íslendinga. Kristín hélt fyrirlestur í hádeginu í dag þar sem hún deildi þessum myndum og áhuga sínum á efninu en ég leit til hennar í gær og við heyrum það spjall hér á eftir.

Útvarpsfréttir.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Á dögunum kom út önnur sería af óvenjulegustu stefnumótaþáttum síðasta árs, Love on the Spectrum eða ást á rófinu. Í þáttunum er fylgst með ungu áströlsku fólki á einhverfurófinu stíga sín fyrstu skref í ástarlífinu og kolfella þá staðhæfingu að einhverft fólk hafi ekki áhuga á nánd, hlýju og rómantískri ást. Í tilefni nýrrar þáttaraðar rifjum við upp viðtal frá því í ágúst í fyrra við einhverfa konu, Elínu Sigurðardóttur, um hennar upplifun af þáttunum.
Í hverju felst fyrirbærið ást? Kristín Anna Hermannsdóttir er ekki viss, en veit það fyrir víst að ástin hlýtur að fela í sér einhvers konar grín. Í öðrum pistli sínum af þremur leitar hún í þjóðsögur fortíðar og uppistand í nútímanum, en meðal þess sem ber á góma eru þunglyndir grínistar og prinsessa sem hlær ekki.
Hvernig hljómar heimsendir. Það er spurning sem drífur áfram tónlistarsköpun þeirra Tómasar Manoury og Daníels Friðriks Böðvarssonar. Við kíkjum á æfingu hjá dúettinum Okuma, sem segist gera póst-apokalyptíska tónlist, heimsendatóna.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er bjartsýn á að á loftslagsráðstefnunni í Glasgow sjáist breyting frá ráðstefnunni í París. Í Glasgow sé rætt um beinar aðgerðir en ekki aðeins markmið. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hana.
Yfir áttatíu þjóðir heita því að draga úr losun metangass úr andrúmsloftinu um þrjátíu af hundraði á næstu níu árum. Aðgerðirnar eru sagðar kosta lítið sem ekkert. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri hjá Reykjavíkurborg á næsta ári. Auknar fjárfestingar eru fyrirhugaðar en skuldir aukast sömuleiðis. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Knapi sem vikið var úr landsliði hestamanna um helgina segir stjórnarmenn Landssambands hestamannafélaga og forsvarsmenn landsliðsins hafa lengi vitað um dóm sem hann hlaut fyrir kynferðisbrot árið 1994. Landsliðseinvaldur segist hafa vitað óljóst af málinu. Bjarni Rúnarsson sagði frá.
Mjólkursamsalan stendur árlega fyrir teiknisamkeppni fyrir fjórðubekkinga í grunnskólum landsins í tilefni alþjóðlega skólamjólkurdagsins. Foreldrar hafa nokkrir gagnrýnt að stórfyrirtæki fái slíkan aðgang að börnum og einnig fullyrðingar um hollustu mjólkur sem þykja úreltar. Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við Eyrúnu Gísladóttur, móður og grænkera.
----------
Það virðast örlög afgönsku þjóðarinnar að vera á stöðugum flótta. Margir þeirra sem sneru heim úr útlegð fyrir 20 árum, við fall Talíbanastjórnarinnar, flýja nú landið enn á ný, segir fréttaritari okkar í Kabúl. Jón Björgvinsson í Kabúl sagði frá.
Þing Norðurlandaráðs hófst í Kaupmannahöfn í gær í Kristjánsborgarhöll. Þar er rætt um hvaða lærdóm megi draga af kórónuveirukreppunni og hvernig efla megi samstarfið. Viðbrögð Norðurlandanna hvers um sig þegar brast á með faraldri þótti sýna fram á nokkra bresti, til dæmis þegar bætt var í takmarkanir á landamærum þeirra á milli og ríkin fóru hvert í sína áttina með ráðstafanir, segir Kristján Sveinsson sagnfræðingur.Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.
Bretar og Frakkar hafa gert hlé á fiskirimmu sinni en deilan er ekki á enda. SIgrún Davíðsdóttir hefur fylgst með þeirri rimmu.
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.
Fríða María elskar að ferðast og í hverjum þætti tekur hún fyrir land sem hún hefur nú þegar ferðast til eða langar að koma til í framtíðinni. Í þessum þætti er Svíþjóð til umfjöllunar: popptónlist, kanelsnúðavika, Emil og Lína, Nóbelsverðlaun og fleira.
Gestur þáttarins er Eva Margrét en hún er fjórtán ára og bjó lengi í Svíþjóð! Hvað ætli sé uppáhaldið hennar við land og þjóð?
Viðmælandi: Eva Margrét Halldórsdóttir.
Stjórnandi: Fríða María Ásbergsdóttir.
Verkleg umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.

Dánarfregnir

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum Mozarteum hljómsveitarinnar á Salzborgar-hátíðinni í ágúst s.l.
Á efnisskrá eru tvö verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, píanókonsert nr. 25 í C-dúr K. 503 og Serenaða nr. 10 í B-dúr, K. 361, Gran Partita.
Einleikari: Kristian Bezuidenhout.
Stjórnandi: Antonello Manacorda.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fyrir helgi fór fram málstofan Birtingarmyndir kynbundins ofbeldis og viðbrögð við því þar sem fjallað var um kynbundið ofbeldi frá ýmsum hliðum. Þar var, í nokkrum erindum, leitast við að svara eftirfarandi spurningum: Hvað eiga konur sem leitað hafa á bráðamóttöku vegna heimilisofbeldis sameiginlegt? Hvernig bregðast konur við kynferðislegri valdbeitingu á vinnustað? Hver eru viðbrögð þeirra sem sökuð eru um kynferðisofbeldi? Falla meiðyrðamál stefnendum eða stefndu í vil? Og hvaða áhrif hefur skrímslaorðræðan á gerendur? Við fengum Drífu Jónasdóttur, afbrotafræðing og doktorsnema við læknadeild Háskóla Íslands, til að segja okkur meira frá erindi sínu og doktorsverkefni þar sem hún rannsakar komu kvenna á bráðamóttöku Landspítala vegna áverka í kjölfar heimilisofbeldis eða annars konar ofbeldis.
Út er komin Arnar saga Björnssonar fyrrverandi útibússtjóra Íslandsbanka á Húsavík, Ekki standa á öðrum fæti allt lífið. Það er dóttir Arnar, Kristín Erna sem skráði söguna. Það skiptast á skin og skúrir í lífi Arnar sem og í íslensku samfélagi. Hann er hestamaður, veiðimaður, eiginmaður, faðir, skrifstofumaður, bóndi í Gauksmýri og síðast útibússtjóri. Feðginin Örn og Kristín komu í þáttinn í dag.
Áki Guðni Karlsson leggur stund á doktorsnám í þjóðfræði og rannsakar auk þess ýmislegt áhugavert sem á fjörur hans rekur. Sem dæmi má nefna að hann hélt fyrir stuttu fyrirlestur sem hann kallaði Covid og dauðinn. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Áka og fékk hann til að segja frá þessum þjóðfræðivangaveltum.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Sjálfsævisaga Theódórs Friðrikssonar (1876-1948) sem kom út árið 1941 í tveimur bindum. Friðrik segir frá lífskjörum alþýðufólks á seinni hluta 19. aldar og fyrri hluta 20. aldar á einstæðan hátt.
Gils Guðmundsson les stytta útgáfu sögunnar.
(Áður á dagskrá 1974)

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Við verðum áfram í tengingu við Loftlagsráðstefnuna í Glasgow - Þórey Þórðardóttir framkvæmdastjóri Landsamtaka lífeyrissjóða er þar.
Við ætlum líka að forvitnast um stóra rannsókn á áhrifum covid faraldursins á framhaldsskólana - Ómar Örn Magnússon doktorsnemi við menntavísindasvið er einn rannsakenda.
Í gær bárust fréttir af því að beinagrind af hval, sem rak á land á Snæfellsnesi fyrir nokkrum árum hefði verið stolið - Hilmar Malmquist forstöðumaður náttúruminjasafns Íslands ræðir framboð á og eftirspurn eftir hvalbeinum.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Á dögunum kom út önnur sería af óvenjulegustu stefnumótaþáttum síðasta árs, Love on the Spectrum eða ást á rófinu. Í þáttunum er fylgst með ungu áströlsku fólki á einhverfurófinu stíga sín fyrstu skref í ástarlífinu og kolfella þá staðhæfingu að einhverft fólk hafi ekki áhuga á nánd, hlýju og rómantískri ást. Í tilefni nýrrar þáttaraðar rifjum við upp viðtal frá því í ágúst í fyrra við einhverfa konu, Elínu Sigurðardóttur, um hennar upplifun af þáttunum.
Í hverju felst fyrirbærið ást? Kristín Anna Hermannsdóttir er ekki viss, en veit það fyrir víst að ástin hlýtur að fela í sér einhvers konar grín. Í öðrum pistli sínum af þremur leitar hún í þjóðsögur fortíðar og uppistand í nútímanum, en meðal þess sem ber á góma eru þunglyndir grínistar og prinsessa sem hlær ekki.
Hvernig hljómar heimsendir. Það er spurning sem drífur áfram tónlistarsköpun þeirra Tómasar Manoury og Daníels Friðriks Böðvarssonar. Við kíkjum á æfingu hjá dúettinum Okuma, sem segist gera póst-apokalyptíska tónlist, heimsendatóna.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, gaf í dag út bókina Guðni á ferð og flugi. Þar fer Guðni með lesandann í ferðalag um hinar dreiðu byggðir Íslands og heimsækir fólk af öllu tagi. Við ræddum við þennan sagnamann um bókina, en einnig um stöðu stjórnmálanna og Framsóknarflokksins í kjölfar Alþingiskosninga.
Fjölmiðar undanfarið hafa fjallað um meintan byrlunarfaraldur í miðbæ Reykjavíkur sem og á Akureyri. Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, kom til okkar og ræddi um þetta mál en einnig um samfélagsmiðlareglur lögreglumanna.
Mikið hefur gengið á í Eflingu undanfarna sólarhringa. Við ræddum við Kolbein Marteinsson, almannatengil, og Sumarliða Ísleifsson, lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands, um þessa fordæmalausu stöðu, orðræðuna og möguleg áhrif á kjarabaráttu.
Hverjum hefði grunað að tölvuleikjaspilarar gætu hjálpað vísindamönnum um allan heim að leysa flókin rannsóknarefni? Að minnsta kosti starfsfólki CCP en innan leiksins Eve Online má finna verkefnið Project Discovery þar sem spilarar hjálpa vísindamönnum að finna exóplánetur og flokka prótein sem meðal annars aðstoða við rannsóknir gegn Covid-19. Við ræddum við Berg Finnbogason, creative director hjá CCP.
Íbúðaverð hefur víða hækkað meira en á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Í þéttbýliskjörnum umhverfis höfuðborgarsvæðið hækkaði íbúðaverð mest í Árborg á þriðja ársfjórðungi eða um 36 prósent. Íbúðasala eykst einmitt einna mest á Suðurlandi þar sem nú seljast hátt í 40% fleiri íbúðir en fyrir ári síðan. Við ræðum við Gísla Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Árborgar, um þessa þróun í byggða- og íbúðamálum.
Sævar Helgi Bragason var hjá okkur með stútfullt farteski af vísindum, eins og vanalega.
Tónlist:
Sváfnir Sig - Stund milli stríða
Hákon - Barcelona
Vök - Running Wild
Ske - Juliette 2
Snorri Helgason - Haustið 97
Ed Sheeran - Bad habits
GDRN - Næsta líf

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 2. nóvember 2021
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Emiliana Torrini - Me and Armini
Bee Gees - Nights on Broadway
Tom Dice- Me and my guitar
Chris rea - Fool (if you think is over)
Pale moon - Strange days
The Jam - Going underground
Amy Winehouse - Back to black
Lón - Earthquake
Ásgeir Trausti - Öldurót
Grafík - Tangó
Gladys Knight n the Pips - Midnight train to Georgia
Parcels - Somerhinggreater
Hjálmar - Yfir hafið
10:00
Snorri Helgason - Ingileif
Adele - Ease on me
Post Malone - Onlu wanna be with you
Weeknd & House Mafia - Moth to a flame
Eyjaa - The Wrecking crew
Dusty Springfield - You don?t have to say you love me
Moses Hightower - Lífsgleði
Unnsteinn - Er þetta ást
Source & Candy Staton - You got the love
Sunday Girls - Where is my mind
Jennifer Lopez - If I had your love
Barry White - Your the first, my last, my everything
Lights on the highway - Heart of moon
11:00
Thin Jim & Castaways - Confession
Spice girls - Mama
Bríet - Feimin(n)
U2 - The Fly
Justin Bieber - Peaches
Cars - Drive
Michael Kiwanuka - Beautiful life
Eddie Vedder - Long way
Tvö dónaleg haust - Miðaldra (Plata vikunnar)
Sturla Atlas - Kviksyndi
A tribe called quest - Scenerio
Retro Stefson - Glow
12:00
GDRN - Lætur mig Ft. Flóni
Waterboys - Fisherman?s blues
Baggalútur - Ég á það skilið

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Sólveig Anna Jónsdóttir hefur ekki sagt af sér embætti annars varaforseta ASÍ en forseti sambandsins á von á að hún tilkynni fljótlega um afsögn. Mál Eflingar verða til umræðu á miðstjórnarfundi ASÍ á morgun.
Rúmlega hundrað þjóðarleiðtogar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafa sammælst um að stöðva eyðingu skóga í heiminum fyrir árið 2030. Brasilíumenn eru þeirra á meðal.
Sérfræðingar Vegagerðarinnar meta nú aðstæður í Norðfjarðargöngum þar sem hluti af klæðningu féll úr lofti í gær. Göngin eru lokuð en frá hádegi verður stærri bílum hleypt í gegn í hollum. Minni bílar notast við gömlu göngin uppi í Oddsskarði.
Nýtútskrifaðir sálfræðingar fá ekki starfsleyfi hér á landi þar sem verklega þjálfun vantar í námið. Minnst tveir sálfræðingar hafa lent í vandræðum í Svíþjóð því íslenska námið stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru annars staðar á Norðurlöndunum.
85 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Búist er við talsverðum fjölda í sýnatöku á Selfossi í dag og reynir lögreglan að liðka fyrir umferð í kringum sýnatökustað.
Enn er beðið fregna af knattspyrnumanninum Emil Pálssyni, sem hneig niður í leik með liði sínu Sogndal í norsku b-deildinni í gærkvöldi.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson og Orri Freyr Rúnarsson
Góð stemning í Popplandi dagsins, alls konar tónlist úr ýmsum áttum, plata vikunnar heitir Miðaldra og er með hljómsveitinni Tvö Dónaleg Haust.
Lagalisti:
ÓPG:
Katrín Halldóra og Páll Óskar - Ástardúett
The War on Drugs - I don?t live here anymore
Hjálmar og Prins Póló - Grillið inn
Regína Ósk - Eins og það var
Elton John & Glen Campbell - I?m not gonna miss you
Tvö Dónaleg haust - Meistari
Júlí Heiðar - Ástin heldur vöku
Vök - Running wild
The Police - Born in the 50?s
Dua Lipa - Love again
Erla og Gréta - Ég á heiminn með þér
Jasmine Thompson - After goodbye
Tom Jones - Not dark yet
Rolling Stones - Waiting on afriend
Coldplay feat. Selena Gomez - Let somebody go
OFR:
Nýdönsk - Ég kýs
Sinead O'Connor - Nothing Compares 2 U
Big Red Machine - Renegade (ft. Taylor Swift)
Björk - Joga
U2 - New Years Day
Emilíana Torrini - Jungle Drum
Feldberg - Don't be a Stranger
GDRN - Næsta líf
Franz Ferdinand - Michael
Gabriels - Love and Hate in a Different Time
Blur - Parklife
Kiss - Detroit Rock City
Ásgeir Trausti - Öldurótið
Adele - Easy on Me
Alicia Keys & Jay-Z - Empire State of Mind
Foo Fighters - Times Like These
Emmsjé Gauti & Helgi Sæmundur - Pabbi
Rihanna - We Found Love
Tvö dónaleg haust - Bognum ekki í bráð (Plata vikunnar)
Johnny Marr - Spirit, Power & Soul
Staind - Outside
Kacey Musgraves - Justified
Kött Grá Pjé og Nolem - Aheybaró

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Skógræktin hefur að undanförnu verið að taka við stafafurukönglum frá fólki og greiða þau 2000kr fyrir kílóið af tveggja ára stafafurukönglum en 1200kr fyrir kíló af eldri könglum. Nú þegar hafa safnast tvö tonn af könglum. Aðalsteinn Sigurgeirsson fagmálastjóri Skógræktarinnar veit meira um málið.
Segja má að það sé heldur betur farið að hitna í kolunum á COP26 loftslagsráðstefnunni sem fer nú fram í Glasgow í Skotlandi. Aðgerðasinnar og mótmælendur hafa fjölmennt í borginni ásamt helstu þjóðarfulltrúum heims. Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra Umhverfissinna er í Glasgow og gagnrýndi hún íslensk stjórnvöld í gær fyrir að hafa ekki sýnt nægan metnað í því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Við sláum á þráðinn til Tinnu í Glasgow.
Micro Macro: Glæpaborgin er nýtt spil sem hefur skapað spilaæði sem ekki hefur sést síðan Trivial Pursuit kom fyrst á markað. Spilið hefur nú þegar verið valið spil ársins á hinum virtu spilaverðlaunum Spiel des jahres í Þýskalandi. Spilið hefur komið út í þónokkrum löndum á mismunandi tungumálum og er nú til á íslensku þökk sé Spilaborg. Stefán Sigurjónsson forstjóri Spilaborga segir okkur betur frá spilinu og tilvonandi spilaverðlaunum sem eru á næsta leiti.
Eins og venja er þá vekur fréttaskýringaþátturinn Kveikur umtal í þjóðfélaginu og þáttur kvöldsins verður engin undantekning á því. Þóra Arnórsdóttir ritstjóri þáttarins mun segja okkur frá viðfangsefni þáttarins sem verður á dagskrá í kvöld og einnig fáum við að leika brot úr viðtali sem má svo sjá í fullri lengd í kvöld.
Reglugerð um takmarkanir á landamærunum rennur út í lok vikunnar og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vinnur að minnisblaði til heilbrigðisráðherra varðandi næstu skref við landamærin. Forsvarsmenn Icelandair hafa kallað eftir því að ferðamenn hætti að þurfa að sýna fram á neikvætt covid-próf við komuna til landsins. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair kemur til okkar.
Í gær tilkynnti teiknimyndasögu stórveldið DC comics, heimili Superman, Batman, Suicide Squad o.fl., að 9.nóvember næstkomandi kæmi út saga af syni Superman, Jon Kent sem væri tvíkynhneigður og myndi sagan að miklu leiti fjalla um það. Margir aðdáendur Superman tóku þessu fagnandi en ansi margir tóku þessu vægt til orða tekið illa. Svo illa að höfundarnir á bak við söguna hafa þurft lögreglufylgd í og úr vinnu og einnig eru aðal höfuðstöðvar DC comics vaktaðar af lögreglu. Þórhallur Björgvinsson sem er yfir teiknimyndasögudeild Nexus segir okkur nánar frá málinu.

Útvarpsfréttir.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra er bjartsýn á að á loftslagsráðstefnunni í Glasgow sjáist breyting frá ráðstefnunni í París. Í Glasgow sé rætt um beinar aðgerðir en ekki aðeins markmið. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hana.
Yfir áttatíu þjóðir heita því að draga úr losun metangass úr andrúmsloftinu um þrjátíu af hundraði á næstu níu árum. Aðgerðirnar eru sagðar kosta lítið sem ekkert. Ásgeir Tómasson sagði frá.
Gert er ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri hjá Reykjavíkurborg á næsta ári. Auknar fjárfestingar eru fyrirhugaðar en skuldir aukast sömuleiðis. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman.
Knapi sem vikið var úr landsliði hestamanna um helgina segir stjórnarmenn Landssambands hestamannafélaga og forsvarsmenn landsliðsins hafa lengi vitað um dóm sem hann hlaut fyrir kynferðisbrot árið 1994. Landsliðseinvaldur segist hafa vitað óljóst af málinu. Bjarni Rúnarsson sagði frá.
Mjólkursamsalan stendur árlega fyrir teiknisamkeppni fyrir fjórðubekkinga í grunnskólum landsins í tilefni alþjóðlega skólamjólkurdagsins. Foreldrar hafa nokkrir gagnrýnt að stórfyrirtæki fái slíkan aðgang að börnum og einnig fullyrðingar um hollustu mjólkur sem þykja úreltar. Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við Eyrúnu Gísladóttur, móður og grænkera.
----------
Það virðast örlög afgönsku þjóðarinnar að vera á stöðugum flótta. Margir þeirra sem sneru heim úr útlegð fyrir 20 árum, við fall Talíbanastjórnarinnar, flýja nú landið enn á ný, segir fréttaritari okkar í Kabúl. Jón Björgvinsson í Kabúl sagði frá.
Þing Norðurlandaráðs hófst í Kaupmannahöfn í gær í Kristjánsborgarhöll. Þar er rætt um hvaða lærdóm megi draga af kórónuveirukreppunni og hvernig efla megi samstarfið. Viðbrögð Norðurlandanna hvers um sig þegar brast á með faraldri þótti sýna fram á nokkra bresti, til dæmis þegar bætt var í takmarkanir á landamærum þeirra á milli og ríkin fóru hvert í sína áttina með ráðstafanir, segir Kristján Sveinsson sagnfræðingur.Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.
Bretar og Frakkar hafa gert hlé á fiskirimmu sinni en deilan er ekki á enda. SIgrún Davíðsdóttir hefur fylgst með þeirri rimmu.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Það er köntrí og ballöðu fílingur í Undiröldu kvöldsins þar sem Soffía Björg og Krummi ríða á vaðið með þeysireið sína Rodeo Clown. Önnur sem koma við sögu er tónlistarkonan Anna Gréta sem gefur út sína fyrstu plötu á þekktri þýskri jazzútgáfu auk Láru Ómars, Kólumkilla, Karma Brigade, Kahnans og Supersport! ásamt K Óla.
Lagalistinn
Soffía Björg ásamt Krumma - Rodeo Clown
Anna Gréta - Nightjar In the Northern Sky
Supersport! ásamt K Óla - Upp í sófa
Lára Ómarsdóttir - Þá sé ég þig
Karma Brigade - Release
Kahnin - Man of Steel
Kólumkilli - RythmaGuð

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Þriðjudagstilboð af nýrri tónlist á Kvöldvaktinni þar sem Mono Town, Smile & Robyn, Zöe, Vitalic, Nas ft Lauryn Hill, Richard Ashcroft, Sleaford Mods, Swedish House Mafia ft Weeknd, Manic Street Preachers, Little Simz, Jack White og fleiri fara á kostum.
Lagalistinn
Mono Town - Because Of You
Sundays - Here's Where The Story Ends
Richard Ashcroft - This Thing Called Life
Manic Street Preachers - Complicated Illusions
Lorde - Mood Ring
Una Schram - Crush
Ariel Pinks Haunted Graffiti - Round & Round
Smile & Robyn - Call My Name
Eyjaa - Wrecking Crew
Parcels - Somethinggreater
SHM, Weeknd - Moth To a Flame
Jungle - All Of the Time (DJ Streaks Remix)
Quantic - Heaven Or Hell
Giorgio Moroder - Chase
Vitalic - Haute Definition
Cat Power - Sea Of Love
OMAM - Phantom
Ásgeir Trausti - Öldurótið
ZÖE - Blood In the Water
Lana Del Rey - Brooklyn Baby
Hamilton Leithauser & Kevin Morby - Virginia Beach
Kings Of Leon - Time In Disguise
Oasis - Sunday Morning Call
James Blake, Slowthai - Funeral
GDRN - Næsta líf
NAS, Lauryn Hill - Nobody
Digable Planets - Rebirth of Slick
Nightmares On Wax, ft Haile Supreme - Own Me
Little Simz - I Love You, I Hate You
Gang Starr - Family and Loyalty
Gugusar - Röddin í klettunum
Kælan Mikla - Hvítir sandar
Placebo - Beautiful James
Billie Eilish - Bad Guy
Salóme Katrín og K Óla - Heyra í þér
Peaches - Fuck the Pain Away
Sleaford Mods, Orbital - I Dont Rate You

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Fyrir viku kom út safn laga með Nick Cave & The Bad Seeds ? safnplata ? tvöfaldur diskur, 27 lög sem heitir B- sides and rarities part II. Þetta eru upptökur með Cave og Bad Seeds frá árabilinu frá 2005 og 2020 sem hafa ekki komið út fyrr en núna ? hvalreki fyrir aðdáendur Nick Cave og framhald af B-Sides and Rarities sem kom út 2005. Við heyrum nokkur lög af þessu nýja Cave safni í þættinum auk þess sem Cave og Warren Ellis, hans hægri hönd í Bad Seeds og öðru undanfarin ár, segja okkur frá þessu safni. Við heyrum líka aðeins í Brandi Carlile, David Gahan úr Depeche Mode, War on Drugs, OMAM, og endum svo á splunkunýju en eldgömlu lagi með Abba.
En svo var líka að koma út plata með Coldplay sem við skoðum aðeins í þættinum. Platan sem kom út 15. október sl. fór beinustu leið á toppinn á Breska vinsældalistanum. en allar 9 plötur Coldplay hafa náð alla leið á toppinn heima í Bretlandi og selst líka vel um allan heim.
Platan heitir Music of the Spheres og hún er sú plata sem hefur selst mest og best á árinu í Bretlandi. 85% af sölunni enn sem komið er er alvöru sala ? niðurhal eða geisladiskar og vinyll. Við skoðum plötuna og Arnar Eggert Thoroddsen sendir okkur pistil og segir okkur hvað honum finnst.