18:30
Undiraldan
Sófarokk um trúða og náttfara

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .

Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Það er köntrí og ballöðu fílingur í Undiröldu kvöldsins þar sem Soffía Björg og Krummi ríða á vaðið með þeysireið sína Rodeo Clown. Önnur sem koma við sögu er tónlistarkonan Anna Gréta sem gefur út sína fyrstu plötu á þekktri þýskri jazzútgáfu auk Láru Ómars, Kólumkilla, Karma Brigade, Kahnans og Supersport! ásamt K Óla.

Lagalistinn

Soffía Björg ásamt Krumma - Rodeo Clown

Anna Gréta - Nightjar In the Northern Sky

Supersport! ásamt K Óla - Upp í sófa

Lára Ómarsdóttir - Þá sé ég þig

Karma Brigade - Release

Kahnin - Man of Steel

Kólumkilli - RythmaGuð

Var aðgengilegt til 02. nóvember 2022.
Lengd: 30 mín.
,