16:05
Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Skógræktin hefur að undanförnu verið að taka við stafafurukönglum frá fólki og greiða þau 2000kr fyrir kílóið af tveggja ára stafafurukönglum en 1200kr fyrir kíló af eldri könglum. Nú þegar hafa safnast tvö tonn af könglum. Aðalsteinn Sigurgeirsson fagmálastjóri Skógræktarinnar veit meira um málið.

Segja má að það sé heldur betur farið að hitna í kolunum á COP26 loftslagsráðstefnunni sem fer nú fram í Glasgow í Skotlandi. Aðgerðasinnar og mótmælendur hafa fjölmennt í borginni ásamt helstu þjóðarfulltrúum heims. Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra Umhverfissinna er í Glasgow og gagnrýndi hún íslensk stjórnvöld í gær fyrir að hafa ekki sýnt nægan metnað í því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Við sláum á þráðinn til Tinnu í Glasgow.

Micro Macro: Glæpaborgin er nýtt spil sem hefur skapað spilaæði sem ekki hefur sést síðan Trivial Pursuit kom fyrst á markað. Spilið hefur nú þegar verið valið spil ársins á hinum virtu spilaverðlaunum Spiel des jahres í Þýskalandi. Spilið hefur komið út í þónokkrum löndum á mismunandi tungumálum og er nú til á íslensku þökk sé Spilaborg. Stefán Sigurjónsson forstjóri Spilaborga segir okkur betur frá spilinu og tilvonandi spilaverðlaunum sem eru á næsta leiti.

Eins og venja er þá vekur fréttaskýringaþátturinn Kveikur umtal í þjóðfélaginu og þáttur kvöldsins verður engin undantekning á því. Þóra Arnórsdóttir ritstjóri þáttarins mun segja okkur frá viðfangsefni þáttarins sem verður á dagskrá í kvöld og einnig fáum við að leika brot úr viðtali sem má svo sjá í fullri lengd í kvöld.

Reglugerð um takmarkanir á landamærunum rennur út í lok vikunnar og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vinnur að minnisblaði til heilbrigðisráðherra varðandi næstu skref við landamærin. Forsvarsmenn Icelandair hafa kallað eftir því að ferðamenn hætti að þurfa að sýna fram á neikvætt covid-próf við komuna til landsins. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair kemur til okkar.

Í gær tilkynnti teiknimyndasögu stórveldið DC comics, heimili Superman, Batman, Suicide Squad o.fl., að 9.nóvember næstkomandi kæmi út saga af syni Superman, Jon Kent sem væri tvíkynhneigður og myndi sagan að miklu leiti fjalla um það. Margir aðdáendur Superman tóku þessu fagnandi en ansi margir tóku þessu vægt til orða tekið illa. Svo illa að höfundarnir á bak við söguna hafa þurft lögreglufylgd í og úr vinnu og einnig eru aðal höfuðstöðvar DC comics vaktaðar af lögreglu. Þórhallur Björgvinsson sem er yfir teiknimyndasögudeild Nexus segir okkur nánar frá málinu.

Var aðgengilegt til 02. nóvember 2022.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,