16:05
Síðdegisútvarpið
23. júlí

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Munu hakkarar bjarga heiminum, að minnsta kosti umhverfinu? Hvernig þá? Um helgina verður haldið hakkaþon í þágu loftslagsbaráttunnar þar sem markmiðið er að leggja baráttunni við lofstlagsbreytingar lið. Stefán Örn Snæbjörnsson er einn skipuleggjenda mótsins og verður á línunni.

Það hefur verið brjálað að gera hjá smitrakningarteyminu undanfarið, sem gerir hvað það getur til að ná utan um smit og koma fólki í sóttkví. Jóhann B. Skúlason er yfirmaður teymisins, hann ætlar að segja okkur hvernig gengur.

Fréttir af því að gengi ungmenna væri að gera keppendum á ReyCup lífið leitt með ógnandi framkomu hafa vakið athygli og óhug í dag. Sagt var frá því að tíu manna gengi ungmenna á aldrinum 18-20 ára hefði setið um Laugarnesskóla í Reykjavík síðustu tvö kvöld. Þar gista keppendur á fótboltamótinu Rey Cup og hefur hópurinn verið ógnandi í framkomu við keppendur, hent eggjum í þá og unnið skemmdarverk. Keppendurnir eru á aldrinum 13-16 ára. Við ætlum að heyra meira um þetta mál og hvernig gengur að stoppa þessi skrílslæti - Gunnhildur Ásmundsdóttir er framkvæmdastjóri mótsins.

Það er margt að gerast um helgina og óvissan talsverð vegna yfirvofandi sóttvarnaraðgerða. Meðal viðburða er tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði Eystra sem fer að óbreyttu fram annað kvöld. Við heyrum í Bræðslustjóranum Áskeli Heiðari Ásgeirssyni.

Núna klukkan fjögur hófst fundur ríkisstjórnarinnar á Egilsstöðum þar sem ákveðið verður til hvaða aðgerða verður gripið vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar og sprengingar í covid 19 tilfellum. Meira en þúsund eru nú í sóttkví og 370 í einangrun. Landspítalinn er á hættustigi og þar er búist við að innlögnum fjölgi vegna faraldursins en þrír liggja nú inni vegna covid 19. Við vitum ekki hvenær þessum ríkisstjórnarfundi lýkur, en munum miðla fréttum af honum eins fljótt og auðið er.

Var aðgengilegt til 23. júlí 2022.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,