20:35
Er ofbeldi fyndið?
Fjórði þáttur af fimm

Þáttur um ofbeldi og húmor í víðustu merkingu.

Rætt er við dr. Helga Gunnlaugsson, afbrotafræðing og prófessor við Háskóla Íslands, um ofbeldi, húmor og samfélagsgerðir. Einnig er rætt við Pétur Yngva Yamagata, deildarstjóra í versluninni Nexus sem sérhæfir sig í teiknimyndasögum, um þessa menningu og ofbeldi í þessum sögum.

Viðar Eggertsson les kafla úr Gerplu eftir Halldór Laxness.

Umsjón: Lísa Pálsdóttir.

(Áður á dagskrá 2006)

Þáttur um ofbeldi og húmor í víðustu merkingu.

Rætt við Ómar Stefánsson myndlistarmann og annan höfund teiknimyndasagna um Bandorminn.

Rætt við Ísleif Þórhallsson framkvæmdastjóra Event um Quentin Tarrantino kvikmyndagerðarmann en hann flutti Tarrantino til Íslands til að halda fyrirlestur um uppáhaldsmyndir hans og um kvikmyndir hans.

Rætt við Kristínu Einarsdóttur þjóðfræðing um "meiðileik" sem börn stunda og börn og ofbeldisleiki og barnabrandara.

Umsjón: Lísa Pálsdóttir.

Var aðgengilegt til 23. júlí 2022.
Lengd: 39 mín.
e
Endurflutt.
,