06:50
Morgunútvarpið
23. júlí - Rey Cup, Leifsstöð, fréttir vikunnar og Benedikt Gylfason

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Alþjóðlega knattspyrnumótið Rey Cup stendur nú yfir í Laugardal og Fossvogi. Margt af okkar besta knattspyrnufólki hefur spilað sinn fyrsta leik gegn erlendum andstæðingum á Rey Cup í gegnum tíðina en mótið fagnar nú 20 ára afmæli. Að þessu sinni eru þó engir erlendir gestir, í ljósi heimsfaraldursins. 147 lið eru skráð til leiks og þátttakendur eru á aldrinum 13 - 16 ára. Í fyrra kom upp smit á mótinu og nú hefur það sama gerst aftur, en boltinn rúllar áfram engu að síður. Gunnhildur Ásmundsdóttir framkvæmdastýra mótsins kom til okkar.

Gríðarlega mikill fjöldi fer um Leifsstöð þessa dagana og hafa langar raðir myndast í brottfararsalnum. Flugfélög hafa beðið fólk um að mæta fyrr en vanalega, enda fylgir bólusetningarvottorðum og fleiri eyðublöðum mikil og tímafrek vinna. Í byrjun mánaðar fóru meira en 10 þúsund manns um völlinn, í fyrsta skipti síðan í mars í fyrra. Nú er föstudagsmorgunn og viðbúið að mikið sé um að vera í Leifsstöð, bæði vegna komu og brottfara. Við hringdum í Arngrím Guðmundsson aðstoðaryfirlögregluþjón í flugstöðinni og spurðum frétta.

Við fengum góða gesti til að líta yfir helstu fréttir vikunnar með okkur, en það voru að þessu sinni þau Margrét Erla Maack fjölmiðlakona, dansari og fleira, og Sóli Hólm uppistandari, rithöfundur og áhugasmiður.

Við enduðum svo vikuna á spjalli við ungan listamann, Benedikt Gylfason, sem gefur í dag út sitt fyrsta lag, en hann hefur annars einbeitt sér að ballettdansi undanfarin ár. Meiðsl hafa hins vegar sett strik í dansreikninginn og því ákvað hann að beina orkunni að tónlistarsköpuninni á meðan og við fengum þennan fjölhæfa unga mann í heimsókn og spjall um listina og lífið.

Tónlist:

Sváfnir Sig - Stund milli stríða.

Bruce Springsteen - Ill see you in my dreams.

U2 - The sweetest thing.

Eurythmics - Here comes the rain again.

Pink - What about us?

The Vaccines - Back in Love city.

Vök - Skin.

Men at work - Down under.

Benedikt Gylfason - Diamond.

Coldplay - Higher power.

Mammút - Salt.

Var aðgengilegt til 23. júlí 2022.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,