18:00
Kvöldfréttir útvarps
Kvöldfréttir 23.07.2021

Fréttir

Útvarpsfréttir.

Ríkisstjórnin kom saman til fundar á Egilsstöðum í dag til að ræða tillögur að nýjum sóttvarnareglum. Fundurinn stendur enn en búist er við að honum ljúki á næstu mínútum.

Það fjölgar enn í farsóttarhúsum en þar eru nú 95 í einangrun með Covid-19. Smit hefur greinst í Vestmannaeyjum og óvissa er með bæjar- og útihátíðir um þessa helgi og næstu.

Síðustu fjóra daga hafa 248 kórónuveirusmit greinst hér á landi. Yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna segir það hafa mikil áhrif á útbreiðslu smita að margir séu á faraldsfæti.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir yfirlýsingu Tyrklandsforseta um að tvö ríki skuli vera á Kýpur.

Vegagerðin og landeigendur Grafar í Þorskafirði hafa náð samkomulagi um veglagningu í Gufudalssveit á sunnanverðum Vestfjörðum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,