12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 23. júlí 2021

Útvarpsfréttir.

76 greindust með kórónuveirusmit innanlands í gær. Almannavarnir leggja ríka áherslu á að koma útsettum í sóttkví. Yfirlögregluþjónn óttast að smitum eigi eftir að fjölga mjög að óbreyttu. Ný smit greinast um allt land og álag hefur aukist á COVID-göngudeild Landspítalans.

Stærstur hluti ríkisstjórnarinnar kemur saman til fundar á Egilsstöðum klukkan fjögur í dag þar sem tillögur að innanlandsaðgerðum verða ræddar og síðan tilkynntar. Þessi staðsetning varð fyrir valinu þar sem margir ráðherrar eru á ferðalagi um landið, eins og margir aðrir landsmenn.

Forsvarsmenn Bræðslunnar á Borgarfirði eystra og Mærudaga á Húsavík eru í viðbragðsstöðu ef stjórnvöld herða samkomutakmarkanir.

Verulega hefur dregið úr hraunrennsli í eldgosinu við Fagradalsfjall. Prófessor í jarðeðlisfræði segir ómögulegt að spá fyrir um hvenær gosinu lýkur.

Gríðarleg rigning í miðhluta Kína hefur orðið tugum að bana. Vegir eru ónýtir og margir hafa verið án matar og vatns svo dögum skiptir.

Sala á hönskum, grímum og spritti rauk upp eftir upplýsingafund almannavarna í gær. Sala á þessum vörum nánast hrundi í júní.

Setningarathöfn Ólympíuleikanna fer nú fram í Tókíó.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,