06:50
Morgunvaktin
Ný stefna Háskóla Íslands

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Háskóla Íslands hefur verið sett stefna til næstu fimm ára. Yfirskrift hennar er: Betri háskóli - betra samfélag. Og leiðarljósin: Gæði, traust og snerpa. Jón Atli Benediktsson rektor skólans sagði frá nýju stefnunni og áherslum Háskóla Íslands.

Í ferðaspjalli með Kristjáni Sigurjónssyni, ritstjóra Túrista, var fjallað um nýju reglurnar sem farþegar til landsins þurfa að undirgangast frá og með næsta þriðjudegi og afkomu Icelandair en félagið tapaði næstum sjö milljörðum króna í apríl, maí og júní.

Skúffuskáld fá tækifæri til að koma fram í dagsljósið í ljóðasamkeppni Hinsegin daga, sem fer fram meðfram dagskrá Hinsegin daga í ár sem fyrri ár. Keppnin er, að sögn aðstandenda, mikilvægur vettvangur fyrir hinsegin ljóðlist. Bjarndís Helga Tómasdóttir hefur veg og vanda að ljóðasamkeppninni. Hún spjallaði um hinsegin bókmenntir og nokkur sigurljóð voru lesin.

Umsjón höfðu Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Tónlist:

What is it about men - Amy Winehouse

Valerie - Amy Winehouse

Sunnanvindur - Örvar Kristjánsson

Umbreyting - Gertrude and the Flowers

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,