16:05
Síðdegisútvarpið
22.júlí

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, er með nýtt spil í burðarliðunum. Spilið er byggt á íslenskum stjórnmálum og persónur leikmanna í spilinu byggja á formönnum þeirra flokka sem nú sitja á Alþingi. Jón Þór hefur sett af stað söfnun til þess að fjármagna gerð spilsins, og gerir ráð fyrir að það komi út í síðasta lagi í upphafi desembermánaðar. Hann kemur til okkar í þáttinn.

Í morgunblaðinu þann 19. Júní sl. birtist grein eftir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstarréttardómara um útfarir. Þar veltir Jón Steinar því fyrir sér af hverju sá siður ríki á Íslandi að prestur sé fenginn til að flytja minningarorð um hinn látna, þar sem presturinn hittir nánustu ástvini, fær hjá þeim upplýsingar um æviferil viðkomandi manns og flytur síðan minningarorðin fyrir hönd fjölskyldunnar. Jón Steinar veltir því fyrir sér í greinninni hvers vegna þetta sé gert svona og af hverju ekki er einhver fenginn sem þekkti hinn látna persónulega og hann látinn flytja um hann minningarorðin, jafnvel fleiri en einn. Við ræðum við Jón Steinar í Síðdegisútvarpinu í dag.

Leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir sem er meðlimur í Leikhópnum Lottu hefur undanfarið ferðast um landið með sýningu hópsins um Bakkabræður. Hún hefur fengið skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem henni er hótað ofbeldi og jafnvel lífláti eftir að hún birti færslu á Instagram-síðu sinni þar sem hún sagðist ekki mæla með því að fólk heimsótti Kópasker og Raufarhöfn. Færslan féll í grýttan jarðveg meðal íbúa og voru viðbrögðin ansi hörð. Við heyrum í Kolbrúnu Öldu sem er forseti sveitarstjórnar norðurþings um þetta mál.

Liverpool getur orðið enskur meistari í fyrsta sinn í 30 ár í kvöld ef Chelsea vinnur sigur á Manchester City.Hallgrímur Indriðason fréttamaður og meðlimur í Liverpool klúbbnum kemur til okkar á eftir.

Var aðgengilegt til 22. júlí 2021.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,