06:50
Morgunútvarpið
22. júlí - Glamping, Elfar Logi, sóttvarnarhús, FÍB, hreindýraveiðar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Hvað er glamping eiginlega? Bjarni Freyr Báruson hjá Volcano Huts í Þórsmörk sagði okkur frá því.

Elfar Logi Hannesson leikari hefur brugðið sér í hlutverk margra kappa og hann er ekki óvanur að eiga sviðið einn. Nú leikur hann listamanninn með barnshjartað, Samúel Jónsson, í listasafni Samúels í Selárdal. Hulda var á ferð þar fyrir skemmstu og hitti einmitt á Elfar í kjölfar frumsýningar einleiks um Samúel.

Gylfi Þór Þorsteinsson hefur í nógu að snúast í sóttvarnarhúsinu við Rauðarárstíg, Þar dvelja nú 25 manns og þar af 5 með staðfest smit. Gylfi Þór sagði okkur frá starfinu þar.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, ræddi við okkur um ábyrgð og þjónustu umboða gagnvart sjálfstætt innfluttum bílum. Misræmi sé þarna á milli og talað sé um gráan markað. Þá sagði hann okkur frá FÍB Aðstoðinni sem félagsmenn njóta um allt land.

Hreindýraveiðar hófust í síðustu viku en á þessum tíma má einungis veiða tarfa. Strangar reglur gilda um hreindýraveiðar hér á landi og við slógum á þráðinn austur á hreindýraslóð og heyrðum í Jóhanni Guttormi Gunnarssyni hjá Umhverfisstofnun sem veit meira um málið.

Tónlist:

Ragnheiður Gröndal - Flowers in the morning.

Foo Fighters - Walking after you.

Kiriyama Family - Every time you go.

Guðni Þór - Ive been waiting.

Moses Hightower - Bílalest út úr bænum.

Á móti sól - Nýjar syndir.

Lenny Kravitz - Ride.

Travis - Sing.

U2 - Ordinary love.

Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson

Var aðgengilegt til 22. júlí 2021.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,