15:03
Samtal
Sigurður Reynir Gíslason

Umsjónarmenn fá gesti í hljóðver sem ræða um sjálfsmynd frá ýmsum sjónarhornum.

Umsjón Gísli Sigurðsson og Ævar Kjartansson.

Gestur þáttarins er Sigurður Reynir Gíslason, jarðvísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, sem vinnur m.a. að binda koltvíoxíð.

Sjálfsagt er rétt og skynsamlegt að huga að framtíðinni á öllum tímum. Tímamót af einhverju tagi eru oft hvati til þess. Þau tímamót geta verið af ýmsum toga, í lífi þjóða eða mannkynsins, eða bara persónuleg. Á Rás 1 Ríkisútvarpsins hefur um allmörg ár verið vettvangur fyrir samtal við fræðimenn á ýmsum sviðum á sunnudagsmorgnum. Fyrirkomulag umræðunnar hefur verið þannig, að umsjónarmaður þáttanna hefur fengið kunnáttumann á einhverju ákveðnu sviði til þess að ræða við gesti, aðra sérfróða. Nú er komið að tímamótum í þessu, í júlí og ágúst verða síðustu Samtalsþættir undir stjórn Ævars Kjartanssonar. Hann ætlar að fá til sín gesti til þess að ræða um framtíðina eins og hún blasir við þeim og á þeirra fræðisviði í lok heimsfaraldurs. Hefur veirufaraldur einog Covid -19 áhrif á líf okkar í framtíðnni? Erum við að upplifa raunveruleg tímamót?

Var aðgengilegt til 22. júlí 2021.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,