06:50
Morgunvaktin
Úrræði ekki gagnast eins vel og vonað var

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Komum í Kvennaathvarfið fjölgaði á fyrri hluta þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Umræðan um heimilisofbeldi hefur verið mikil í tengslum við ástandið, ekki bara á Íslandi. Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins kom á Morgunvaktina og ræddi um þessi mál. Meðal þess sem hún sagði var að úrræði eins og nálgunarbönn og að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum sínum hafi ekki gagnast eins vel og vonast hafði verið til.

Eiríkur Helgason eða Eiki eins og hann er jafnan kallaður er einn fárra hér á landi sem hafa það að atvinnu að renna sér á snjóbretti. Eftir að Eiki flutti heim til Íslands tók hann sig til og hóf að setja upp innanhúsaðstöðu fyrir hjólabretti Akureyri. Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður ræddi við Eirík.

Og við glugguðum í dagblöð frá því í júlí 1934. Íslendingar höfðu þá þungar áhyggjur af fjölskyldu nokkurri sem hafði atvinnu af því að þykjast vera Íslendingar á sirkusum og sýningum víða um Evrópu. Þótti þetta hið mesta hneyksli hérlendis - sérstaklega á síðum Morgunblaðsins, en blaðið fór í talsverða herferð í málinu.

Tónlist: Tom Jobim & Gal Costa - Dindi, Tom Jobim & Gal Costa - Agua de beber, Benny Goodman - Moonglow, South River Band - Sirkus Mongó, Cat Stevens - Miles from nowhere

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,