12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 22. Júlí

Útvarpsfréttir.

Ísland stendur mun betur í alþjóðlegum samanburði á

Búist er við að spennan í samskiptum Kína og Bandaríkjanna aukist enn frekar eftir að Kínverjum var fyrirskipað að loka ræðismannsskrifstofu sinni í Houston í Texas. Ráðamenn í Peking boða viðbrögð verði sú ákvörðun ekki dregin til baka.

Á annað hundrað umsagnir hafa borist um nýtt frumvarp forsætisráðherra um breytingu á stjórnarskrá. Breytingarnar lúta fyrst og fremst að forsetaembættinu og ríkisstjórn.

Frestun Pisa um eitt ár kemur sér vel því meiri tími gefst til að vinna úr gögnum. Þetta segir forstjóri Menntamálastofnunar sem vonar að Pisa verði framvegis á fjögurra ára fresti í stað þriggja

Forseti Úkraínu hefur verið gagnrýndur fyrir að láta unda kröfum gíslatökumanns í borginni Lutsk í gær. Hann segir það hafa skilað árangri því enginn hafi týnt lífi.

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði þrennu þegar Breiðablik sigraði Val örugglega, 4-0, í uppgjöri toppliðanna í úrvalsdeild kvenna í fótbolta í gærkvöld.

Veðurhorfur: Fremur hæg breytileg átt eða hafgola. Skúrir norðaustantil á landinu og víða dálitlar skúrir í öðrum landshlutum. Norðaustan fimm til þrettán á morgun, hvassast norðvestantil, og áfram dálítl væta. Hiti níu til sextán stig, en kólnar norðanlands á morgun.

Broddi Broddason segir hádegisfréttir.

Umsjónarmaður hádegisfrétta var Stígur Helgason. Tæknimaður var Markús Hjaltason. Útsendingu stjórnaði Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir. Fréttalestri er lokið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,