18:00
Kvöldfréttir útvarps
Kvöldfréttir 22. Júlí

Fréttir

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Kristján Sigurjónsson

Málflutningur Rio Tinto Aluminium um að Landsvirkjun misnoti markaðsráðandi stöðu sína kemur á óvart segir Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar. Rio Tinto hefur formlega kvartað undan Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins.

Óvíst er hvað verður um fjölmargar rannsóknir á myglu í íslenskum húsum þegar Nýsköpunarmiðstöð verður lögð niður og þar með einnig Rannsóknarstofa byggingariðnaðarins.

Hverfisráð Raufarhafnar og Öxarfjarðar og Leikhópurinn Lotta hvetja í sameiningu fólk til að gæta sín í umræðu á samfélagsmiðlum. Leikkona í hópnum hefur fengið lífláts- og ofbeldishótanir vegna ummæla hennar um Kópasker og Raufarhöfn, sem hún hefur beðist afsökunar á og sagt vera misheppnað grín.

150 umsagnir höfðu borist um stjórnarskrárfrumvarp forsætisráðherra í dag. Stjórnmálafræðiprófessor segir frumvarpið ekki róttækt, en til bóta.

Bandaríkjastjórn vill greiða tvo milljarða dollara fyrir 100 milljónir skammta af bóluefni við COVID-19. Efnið er í þróun hjá þýsku líftæknifyrirtæki og bandarískum lyfjarisa.

Tuttugu og fimm sænskir vísindamenn vara ríki heims við að fara svokallaða sænska leið í baráttu við kórónuveirufarsóttina.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,