19:23
Fuzz
Stranglers - Black & White

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70´s, 60´s, 80´s 50´s, 90´s rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að tala og syngja og maður á að hlusta hátt.

Það er enginn gestur í kvöld en við fáum lag frá vini þáttarins kl. 19.45, óskalagasíminn opnar kl. 20.00 og plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Black and White, þriðja breiðskífa ensku hljómsveitarinnar The Stranglers. Hún kom út 12. Maí 1978.

Tilefnið er að hljómborðsleikarinn Dave Greenfield féll fyrir Covid 19 núna síðasta sunnudag, 71 árs að aldri.

Það er sami uptökustjóri á Black and White og á fyrstu tveimur plötunum, Rattus Norvegicus og No more Heroes sem báðar komu út 1977. Upptökustjórinn hét Martin Rushent og er látinn, en hann vann líka t.d. með Human League, Joy Division og Buzzcocks svo einhver nöfn séu nefnd.

Í huga margra eru fyrstu þrjár plötur Stranglers eins og systur, hrár, kraftmiklar og með mjög sérstakt sánd sem einkennist af taktföstur trommum, litlum gítar, groddalegum áberandi bassa og dansandi hljómborðalínum.

Botnleðja - Fallhlíf

Blur - Death of a party

Kiss - Strutter

Rainbow - Long live rock?n roll

Jethro Tull - Living in the past

VINUR ÞÁTTARINS

Jethro Tull - We used to know

Richard Hawley - Don?t stare at the sun

SIMATÍMI

The Stranglers - Nice ?n sleazy

The Clash - Should i stay or should i go (óskalag)

The Damned - Neat neat neat (óskalag)

Fontains D.C. - A hero?s death

David Bowie - Suffragette city (óskalag)

Desperado - See you at sunrise (óskalag)

Sugar - Gift

Dire Straits - Tunnel of love

Neil Young & Crazy Horse - Everybody knows this is nowhere

Neil Young & Crazy Horse - Cowgirl in the sand

The Beatles - Can?t buy me love

The Beatles - I?ve got a feeling

Cornershop - No rock save in roll

Sabaton - Metal machine (óskalag)

The Stranglers - Tank

The HU - Yuve yuve yu (óskalag)

Cream - Crossroads

Led Zeppelin - Travelling riverside blues

Var aðgengilegt til 06. ágúst 2020.
Lengd: 2 klst. 35 mín.
,