16:05
Síðdegisútvarpið
8. maí

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Það hefur mætt mikið á starfsemi Virk - starfsendurhæfingarstöðvar undanfarnar vikur og hefur fjöldinn aldrei verið meiri sem nýtir sér þjónustu Virk. En hvernig gengur að hjálpa fólki á þessum óvissutímum? Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Virk - kemur til okkar í þáttinn.

Almannavarnaryfirvöld funduðu í dag með fulltrúum helstu menningarstofnana landsins um hvað framundan væri í samkomubanni og fleiru tengdu viðburðum tengdum list. Við ætlum að heyra í Birnu Hafstein en hún er formaður félags leikara og sviðslistafólks.

Um 500 nemendur í Háskólanum í Reykjavík eru nú á námskeiði um nýsköpun og stofnun fyrirtækja - sem er ekkert nýtt á þessum árstíma. Hinsvegar fer þetta stóra námskeið fram í fjarkennslu og nemendur vinna í hópum - sem geta lítið sem ekkert hist. Þannig að flækjustigið er mikið. Guðmundur Hafsteinsson kennir þetta námskeið ásamt fleirum. Hann þekkir nýsköpun og frumkvöðlastarf vel en hann hefur starfað fyrir Google, Apple og fleiri tæknifyrirtæki. Hann segir okkur betur frá þessu og talar við okkur um nýsköpun á undarlegum tímum.

Næstu þrjár vikunar má fólk eiga von á því að sjá jógastúdíó á fjórum hjólum á ferð um landið. Það eru jógakennararnir Íris Ösp Heiðrúnardóttir og Andrea Rún Carlsdóttir sem bæði keyra og búa í bílnum auk þess sem þær munu stoppa á sem flestu stöðum á landinu og færa fólki jóga.Síðdegisútvarpið hitti þær í Jógabílnum rétt fyrir brottför.

Það lítur út fyrir að Íslendingar ætli að vera mjög dulegir að skoða landið sitt í sumar og margir eru orðnir spenntir að viðra ferðavagnana og tjöldin. Hjalti Sverrisson á Arnarstapa ætlar að segja okkur hvernig þau skipuleggja tjaldstæðið þar.

Var aðgengilegt til 08. maí 2021.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,