
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Jón Helgi Þórarinsson flytur.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Sjö vikur í röð hefur samdráttur í efnhagskerfum aukist, og ekki er enn ljóst hvænær fallinu lýkur og botninum verður náð. Ríki heimsins eru þó mörg hver búin að draga lærdóm af síðustu kreppu, og hafa brugðist mun meira við nú en árið 2008. Þetta var meðal þess sem Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í efnahagsmálum, sagði á Morgunvaktinni í morgun.
Paolo Gentiloni, sem fer með efnahagsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, kynnti horfur í efnahagsmálum ESB og óhætt er að segja að þær séu dökkar. Þá hafa repúblikanar í Bandaríkjunum áhyggjur vegna stöðunnar í könnunum vestanhafs og frammistöðu Donalds Trump á blaðamannafundum undanfarið. Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og sagði frá þessu, og einnig því að hátíðahöld eru nú víða í nágrannaríkjum okkar vegna þess að 75 ár eru frá uppgjöf Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni.
Það varð uppnám meðal listafólks vegna frétta um að tveggja metra reglan svokallaða yrði viðvarandi út árið. Enn hafa listamenn ekki fengið mikil svör um það hvernig þeirra störfum getur verið háttað á næstunni. Þá gengur mörgum listamönnum illa að fá greiddar atvinnuleysisbætur þó algjört tekjufall hafi orðið hjá þeim, þeir passa illa inn í kerfin og mögulega verður ekki hægt að reikna út þeirra bætur fyrr en í haust. Þetta sagði Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna.
Tónlist: Bréfið hennar Stínu - Diddú, Þórður sjóari - Alfreð Clausen, Rökkurró - Edda Heiðrún Bachman, Refavísur - Bessi Bjarnason, Piparkökusöngurinn - Örn Árnason

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson

Útvarpsfréttir.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fallað um Mary Mallon, matselju í New York sem smitaði á sjötta tug manna af taugaveiki í upphafi 20. aldar, án þess að þó að sýna nokkur einkenni veikinnar sjálf.
Umsjón: Vera Illugadóttir.

Útvarpsfréttir.

Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það voru tveir föstudagsgestir í þættinum í dag, þau Jón Ársæll Þórðarson og Margrét Gauja Magnúsdóttir. Þau eiga það sameiginlegt að hafa bæði smitast af COVID-19 en eru búin að jafna sig, en samt ekki alveg. Þau sögðu okkur frá þessari reynslu sinni af veirunni, sem var æði ólík, í þættinum í dag og hvernig þetta gekk allt saman fyrir sig og svo auðvitað hvernig þau hafa það í dag.
Í matarspjalli dagsins dustaði Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, rykið af „pikknikk“ körfunni, gerði samlokur, skrúfupasta, hellti upp á kaffi og setti í brúsa. Mjólkin fór auðvitað í gamla tómatsósuglerflösku og svo skundaði húnm með okkur í lautarferð.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Reynt verður að endurheimta þær hlutabætur sem greiddar hafa verið starfsmönnum stöndugra fyrirtækja, fáist ekki viðhlítandi skýringar á greiðslunum, segir fjármálaráðherra. Þau hafi rekið rýting í samstöðuna í samfélaginu.
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að ekki hafi verið kallað eftir rekstrarupplýsingum frá þeim tæplega sjö þúsund fyrirtækjum sem nýtt hafa sér hlutabótaleiðina. Slíkt eftirlit hefjist í haust, jafnvel fyrr. Allt kapp hafi verið lagt á að fækka uppsögnum.
Oddviti Árneshrepps segir að frestun framkvæmda við Hvalárvirkjun sé mikil vonbrigði. Vesturverk lokaði skrifstofu sinni á Ísafirði og sagði upp tveimur starfsmönnum þar, sem þýðir að framkvæmdum við virkjunina verður frestað um óákveðinn tíma.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að COVID-19 farsóttinni hafi fylgt flóðbylgja hatursorðræðu og andúðar á útlendingum. Hann hvetur menntastofnanir til að fræða nemendur um notkun netmiðla á tímum falsfrétta.
Þjónusta strætó er enn skert þótt aðsókn sé farin að aukast. Brögð hafa verið að því að skilja þurfi farþega eftir á biðstöðvum. Fyrirkomulagið er í stöðugri endurskoðun, segir framkvæmdastjórinn.
Á fjórða hundrað strandveiðibátar hafa landað afla í vikunni. Búist er við að allt að 700 bátar verði á strandveiðum í sumar.

Dánarfregnir

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Berlind Häsler verkefnisstjóri: Berglind sem stundar lífrænan búskap í Berufirði er verkefnisstjóri átaksverkefnisins Lífrænt ísland, en markmið þess er að kynna og efla lífræna framleiðslu hér á landi. Það eru Vor, félag framleiðenda í lífrænum búskap, Bændasamtök Íslands og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið sem standa að átakinu.
Gísli Már Gíslason vatnalíffræðingur: Gísli er annar tveggja höfunda árbókar Ferðafélags Íslands 2020. Hún fjallar um Rauðasandshrepp hin forna. Rætt er við Gísla um svæðið.
Vera Illugadóttir: Vera segir frá viðbrögðum dýra og starfsmanna í dýragörðum við samkomubanni.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Í þrítugasta og fimmta þætti Heimskviða er fjallað um glæpasögur. Hver urðu örlög Anne-Elisabeth Hagen? Stóð maðurinn hennar á bak við morðið á henni og reyndi að villa um fyrir lögreglunni með því að láta líta út fyrir að henni hafi verið rænt. Ef ekki er þegar búið að því verður án efa mjög bráðlega ráðist í gerð hlaðvarpa eða heimildaþátta um örlög Anne-Elisabeth Hagen. Því hvort sem við viðurkennum það eða ekki hafa flest afar mikinn áhuga á öllu sem tengist umfjöllun um alvöru glæpi. Fræðimenn hafa sett fram kenningar um þennan áhuga, eins og Margrét Valdimarsdóttir, dotkor í afbrotafræði, segir okkur frá. Birta Björnsdóttir fjallar um áhuga okkar á glæpum og gagnrýni sem þættir sem fjalla um morð og misþyrmingar hafa fengið, meðal annars frá ættingjum þolenda.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu er við hestaheilsu. Eða, það segir norður-kóreski ríkisfjölmiðillinn allavega. Kim sást ekki opinberlega svo vikum skipti en dúkkaði svo allt í einu upp á baráttudegi verkalýðsins fyrr í þessum mánuði. Spurningar um heilsu Kims vöknuðu í kjölfarið, en hann þykir í áhættuhópi vegna ofþyngdar og sökum þess að hann er stórreykingarmaður. En falli Kim frá, hver tekur við af honum sem leiðtoga þessa leyndardómsfylsta ríkis heims? Verður það systir hans? Guðmundur Björn Þorbjörnsson segir okkur frá.
Á dögunum hófust réttarhöld í Þýskalandi yfir tveimur mönnum frá Sýrlandi. Ákæruskjalið telur hundrað blaðsíður og eru mennirnir meðal annars ákærðir fyrir pyntingar á almennum borgurum sem tóku þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum. Þetta eru fyrsta sinn sem réttað er yfir fulltrúum sýrlenskra stjórnvalda sem hafa margoft verið sökuð um stríðsglæpi. Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um málið.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Blanda er þemað í þessum þætti. Það má blanda ýmsu saman og blöndur er víða að finna í lífi hvers manns. Við fáum áfenga blöndu af humlum og geri á Ísafirði, blöndum krem og smyrsl í Hafnarfirði og svo er það sjálf Blanda sem rennur út í hafið. Allt þetta skoðum við í þessum síðasta þætti vertíðarinnar. Inslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.
Umsjón: Dagur Gunnarsson
Við beinum sjónum okkar að Brothættum byggðum, verkefni á vegum Byggðastofnunar þar sem markmiðið er að ná fram skoðunum íbúanna sjálfra á framtíðarmöguleikum heimabyggðarinnar. Í þessum þætti er farið í heimsókn á Borgarfjörð eystra og til Hólmavíkur á Ströndum. Íbúar á Borgarfirði eystra hafa verið þátttakendur í verkefninu Brothættar byggðir í núna tvö ár og hafa nýtt sér vel þann stuðning sem þar býðst. Yfir tuttugu verkefni hafa hlotið styrki og nokkur ný fyrirtæki verið stofnuð. Strandabyggð er síðan nýjasti meðlimurinn að verkefninu og þurfa þau að fara nýjar leiðir í upphafi vegna heimsfaraldurs Covid-19. Viðmælendur í þættinum eru Alda Marín Kristinsdóttir, verkefnastjóri Brothættra byggða á Borgarfirði eystra, og Esther Ösp Valdimarsdóttir, sem situr í framkvæmdaráði Brothættra byggða í Strandabyggð.
Í þættinum er einnig rifjaður upp hluti af innslagi úr fréttaskýringarþættinum Kveik. Þar var farið til Raufarhafnar sem hafði þá nýlokið þátttöku sinni í Brothættum byggðum í lok árs 2017.
Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

„Það sem er raunverulega áhugavert við hvert og eitt okkar eru grímurnar, ekki raunsæið á bak við þær. Þetta er auðmýkjandi játning, en við erum öll gerð úr því sama,“ skrifaði Oscar Wilde í einni ritgerða sinna. Án grímunnar og dýrðarljómans erum við öll tiltölulega svipuð, mannleg. Í þessari þáttaröð verður varpað ljósi á glansmyndirnar allt um lykjandi. Fyrirbrigði, táknmyndir og hugmyndir verða skoðaðar frá persónulegu sjónarhorni og til að mynda fjallað um minni, svik, hlustun, hraða, feguð,fölsun, eignir og egó.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir.
Í nýrri stuttþáttaröð Glans er farið með hlustendur á eins konar tímaflakk. Af handahófi gröfum við upp gömul hljóðbrot úr safni RÚV og hlustum á þau með eyrum ársins 2020. Rætt er við samtímafólk og þegar kostur gefst, einhvern sem tengist umræddri upptöku.
Í þætti dagsins er meðal annars hugað að myrkri, nóttu, og þeim sem starfa er aðrir sofa. Við rifjum upp viðtal við Geir Guðmundsson, næturvörð Landsbankans frá 1959. Rætt var um draugagang, myrkrið, og að sjálfsögðu næturgöltrið í kringum Austurstræti um helgar. Við heyrum í starfandi öryggisverði í bankanum, Stefáni Elinbergssyni og athugum hvort hann tengi við frásögn og reynslu Geirs af starfinu.
Við heyrum einnig viðtal við Gísla (heitinn) Jónsson, bónda á Hofi í Svarfaðardal. Gísli fæddist árið 1869. Hann rifjar upp fyrstu minningu sína en hún er frá afar merkilegum atburði í Íslandssögunni; Þjóðhátíð 1874. Hann er einnig spurður út í þær gríðarmiklu samfélags-, samgöngu-, og tæknibreytingar sem hann varð vitni að frá síðari hluta 19. aldar og fram á miðja 20. öld. Hann nefndi þá lýsingu með lýsislömpum, fyrir tilkomu steinlampa og rafmagns. Við bregðum á það ráð að hringja í Þjóðminjasafnið og fræðumst nánar um lýsislampa. Rætt er við Ágúst Ólaf Georgsson, sérfræðing hjá Þjóðháttasafni Þjóðminjasafns Íslands.
Umsjónarmaður: Anna Gyða Sigurgísladóttir

Útvarpsfréttir.

Umræður um menningu og listir.
Umsjónarmenn eru Anna Marsibil Clausen, Davíð Kjartan Gestsson, Guðni Tómasson, Snærós Sindradóttir, Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.
Gestir þáttarins eru Edda Erlendsdóttir, píanóleikari, Egill Sæbjörnsson, myndlistarmaður og Pavel Ermolinski körfuknattleiksmaður. Þau ræða nýja plötu Víkings Heiðars Ólafssonar með verkum eftir frönsku tónskáldin Debussy og Rameau, heimildaþætttina The Last Dance sem fjalla um síðasta leiktímabil körfuboltastjörnunnar Michael Jordan með Chicago Bulls í NBA deildinni, og Lífsfleti, sem er yfirlitssýning á verkum Ásgerðar Búadóttur, listvefara.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Það er brot á samfélagssáttmála að fyrirtæki greiði út arð eða kaupi eigin hlutabréf á meðan þau nýta sér björgunarhring stjórnvalda. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Það verði ekki bæði sleppt og haldið.
Fyrirtækin Hagar, Festi og Skeljungur hafa ákveðið að hætta að nýta hlutabótaleiðina. Hagar og Skeljungur ætla að endurgreiða það sem þau hafa fengið frá ríkinu.
Útlit er fyrir að takmörkunum vegna samkomubanns verði aflétt hraðar þann 25. maí, en gert var ráð fyrir. Enginn greindist með smit síðasta sólarhring. Sóttvarnalæknir segir að óhætt sé að ganga lengra í að aflétta hömlum vegna þess hversu hratt faraldurinn hefur gengið niður.
Yfir 31 þúsund dauðsföll hafa verið tilkynnt í Bretlandi vegna COVID-19 sjúkdómsins. Þeirra á meðal er sex vikna ungbarn.
Á sunnudag eru 80 ár frá því að Bretar hernámu Ísland. Sagnfræðingur segir að fáir atburðir hafi haft jafn miklar og skjótar breytingar í för með sér í sögu landsins. Bogi Ágústsson segir frá og talar við Guðmund Hálfdánarson.
Í Bandaríkjunum hafa kjötpökkunarstöðvar orðið sérstaklega illa úti í heimsfaraldrinum. Af þeim 500 þúsund verkamönnum sem starfa í pakkhúsum stórfyrirtækja er talið að um 5000 hafi veikst, eða einn af hverjum hundrað. Að minnsta kosti tuttugu hafa látist. Kórónuveiran hefur varpað ljósi á bág starfsskilyrði verkamanna. Hún hefur líka afhjúpað hvernig matvælaframleiðsla í Bandaríkjunum hvílir að stórum hluta á herðum ólöglegra innflytjenda frá Rómönsku-Ameríku.
Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.

Brot úr Morgunvaktinni.

Dánarfregnir

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Annar þáttur þar sem fjallað er um söngferil Janis Carol Walker, sem flutti frá Íslandi árið 1976 til Svíþjóðar en síðan til Englands. Hún tók hún upp listamannsnafnið Carol Nielsson um líkt leyti og hún fór að syngja í söngleikjum eftir Andrew Lloyd Webber.

Lofthelgin býður hlustendum að fljóta frjálslega í tíma og rúmi á lignu hafi hughrifatónlistar. Frá endurómi fortíðar til nýjustu strauma 21. aldarinnar leitum við heimshornanna á milli að réttri stemningu og andrúmslofti til að leiða hlustandann á ný mið andans. Út fyrir endimörk algleymis.
Umsjón er í höndum Friðriks Margrétar-Guðmundsson.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það voru tveir föstudagsgestir í þættinum í dag, þau Jón Ársæll Þórðarson og Margrét Gauja Magnúsdóttir. Þau eiga það sameiginlegt að hafa bæði smitast af COVID-19 en eru búin að jafna sig, en samt ekki alveg. Þau sögðu okkur frá þessari reynslu sinni af veirunni, sem var æði ólík, í þættinum í dag og hvernig þetta gekk allt saman fyrir sig og svo auðvitað hvernig þau hafa það í dag.
Í matarspjalli dagsins dustaði Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, rykið af „pikknikk“ körfunni, gerði samlokur, skrúfupasta, hellti upp á kaffi og setti í brúsa. Mjólkin fór auðvitað í gamla tómatsósuglerflösku og svo skundaði húnm með okkur í lautarferð.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

eftir Hallgrím Helgason.
Höfundur les.
eftir Hallgrím Helgason.
Höfundur les.

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Berlind Häsler verkefnisstjóri: Berglind sem stundar lífrænan búskap í Berufirði er verkefnisstjóri átaksverkefnisins Lífrænt ísland, en markmið þess er að kynna og efla lífræna framleiðslu hér á landi. Það eru Vor, félag framleiðenda í lífrænum búskap, Bændasamtök Íslands og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið sem standa að átakinu.
Gísli Már Gíslason vatnalíffræðingur: Gísli er annar tveggja höfunda árbókar Ferðafélags Íslands 2020. Hún fjallar um Rauðasandshrepp hin forna. Rætt er við Gísla um svæðið.
Vera Illugadóttir: Vera segir frá viðbrögðum dýra og starfsmanna í dýragörðum við samkomubanni.

Umræður um menningu og listir.
Umsjónarmenn eru Anna Marsibil Clausen, Davíð Kjartan Gestsson, Guðni Tómasson, Snærós Sindradóttir, Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.
Gestir þáttarins eru Edda Erlendsdóttir, píanóleikari, Egill Sæbjörnsson, myndlistarmaður og Pavel Ermolinski körfuknattleiksmaður. Þau ræða nýja plötu Víkings Heiðars Ólafssonar með verkum eftir frönsku tónskáldin Debussy og Rameau, heimildaþætttina The Last Dance sem fjalla um síðasta leiktímabil körfuboltastjörnunnar Michael Jordan með Chicago Bulls í NBA deildinni, og Lífsfleti, sem er yfirlitssýning á verkum Ásgerðar Búadóttur, listvefara.

Úrval úr dagskrá liðins dags og tónlist úr ýmsum áttum.
Næturútvarp Rásar 1.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Risastórar aspir í görðum fólk hafa stundum orðið tilefni deilna á milli nágranna þar sem aspirnar skyggja stundum á nærliggjandi garða. Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður húseigendafélagsins fór yfir þetta með okkur en sum þessara mála hafa endað fyrir dómstólum.
Íslandsstofa hefur sent landlækni viðmiðunarreglur til samþykkis svo erlend tökulið geti tekið upp kvikmyndir hér á landi. Morgunblaðið greindi frá þessu í gær. Einar Hansen Tómasson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu var á línunni. Hann segir ívilnun til þeirra fyrirtækja sem taka upp myndefni hér á landi nauðsynlega.
Framtíð íslenskrar tungu stendur og fellur með því að börn og unglingar noti tungumálið. Til að svo verði áfram þarf að tryggja að tæknin skilji raddir barna og unglinga, sem nú tala við flest sín tæki á ensku. Raddsýnum hefur verið safnað um nokkurt skeið meðal grunnskólabarna og við ræddum við Jóhönnu vigdísi Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri almannaróms, um verkefnið.
Árangur Íslands í baráttunni við COVID-19 hefur vakið heimsathygli aukið áhugann á Íslandi. Þetta segir Hreggviður S. Magnússon, leiðtogi í starfrænni markaðssetningu hjá Pipar\TBWA og The Engine. Hann vísar í leitarniðurstöður Google.
Freyr Gígja Gunnarsson talaði um Axl Rose, Adele og Tiger King Hégómavísindahorninu.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Kristján Sigurjónsson

Útvarpsfréttir.

Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 8. maí 2020
Of monsters and men - Circles
M - Pop music
Amabadama - Ai ai ai
Lexzi - Bang bang
Motion boys - Hold me closer to your heart
Krassasig - Einn dag í einu
Mighty mighty Bosstones - The impression that I get
Gummi Tóta - Út í geim
Hreimur - Miðnætursól
Joe Cocker - You can leave your hat on
KK - Kærleikur og tími
10:00
Leaves - Catch
Kraftwerk - Tour de France
Madonna - Into the groove
Hipsumhaps - Fyrsta ástin
Coney Island Babies - Swirl
Manfred Mann - Blinded by the lights
Pet shop boys - I don?t wanna
Madness - Baggy trousers
Warmland - Superstar minimal
Mezzoforte - This is the night
Belle & Seastian - Another sunny day
Khruangbin - Time (U and I)
11:00
GDRN - Vorið
David Lee Roth - Yankee Rose
Kiss - Rock n roll all nite
Vilhjálmur Vilhjálms - Ungar ástir
Hjálmar - Gakktu alla leið
Queen - Killer queen
JóiPxkróli - Óska mér
Upplyfting - Traustur vinur
Ómar Ragnarsson - Greyið Jón
Pónik og Einar - Jón á líkbörunum
Stuðmenn - Áfram Jón
12:00
Guðmundur Jónsson - Jón Tröll
Laddi - Jón Spæjó

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Reynt verður að endurheimta þær hlutabætur sem greiddar hafa verið starfsmönnum stöndugra fyrirtækja, fáist ekki viðhlítandi skýringar á greiðslunum, segir fjármálaráðherra. Þau hafi rekið rýting í samstöðuna í samfélaginu.
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að ekki hafi verið kallað eftir rekstrarupplýsingum frá þeim tæplega sjö þúsund fyrirtækjum sem nýtt hafa sér hlutabótaleiðina. Slíkt eftirlit hefjist í haust, jafnvel fyrr. Allt kapp hafi verið lagt á að fækka uppsögnum.
Oddviti Árneshrepps segir að frestun framkvæmda við Hvalárvirkjun sé mikil vonbrigði. Vesturverk lokaði skrifstofu sinni á Ísafirði og sagði upp tveimur starfsmönnum þar, sem þýðir að framkvæmdum við virkjunina verður frestað um óákveðinn tíma.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að COVID-19 farsóttinni hafi fylgt flóðbylgja hatursorðræðu og andúðar á útlendingum. Hann hvetur menntastofnanir til að fræða nemendur um notkun netmiðla á tímum falsfrétta.
Þjónusta strætó er enn skert þótt aðsókn sé farin að aukast. Brögð hafa verið að því að skilja þurfi farþega eftir á biðstöðvum. Fyrirkomulagið er í stöðugri endurskoðun, segir framkvæmdastjórinn.
Á fjórða hundrað strandveiðibátar hafa landað afla í vikunni. Búist er við að allt að 700 bátar verði á strandveiðum í sumar.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir
Góð stemning í Popplandi dagsins, fyrsti föstudagurinn í rýmkuðu samkomubanni og mikið stuð, alls konar tónlist, ný og gömul. Nýtt frá Frikka Dór og Huginn, nýtt frá Stefaníu Svavars, Nínu Dagbjörtu og fleirum. Upplýsingafundur almannavarna á sínum stað eftir tvöfréttirnar. Arnar Eggert og Andrea fara yfir plötu vikunnar sem er nýjasta plata Birgis Steins Stefánssonar og heitir Untold Stories.
OMAM - Circles
Jungle - Heavy California
Nína Dagbjört - Ekkert Að
Fatboy Slim - Don?t Let The Man Get You Down
GDRN - Af og Til
Huginn & Friðrik Dór - Einn Tveir
Pat Benatar - Heartbreaker
Ásgeir - Hringsól
Krassasig - Einn Dag í Einu
Gus Gus - Add This Song
Lexzi - Bang Bang
Paul Simon - Graceland
Birgir Steinn - Can You Feel It
Bríet - Ómissandi Fólk
Khruangbin - Texas Sun (ft. Leon Brigdes)
Roxy Music - Avalon
Brittany Howard - Stay High
Már & Íva - Barn
Warmland - Superstar Minimal
Auður - Ljósin Kveikt
Bubbi Morthens - Skríða
Erykah Badu - On & On
Björgvin Halldórs & Ragga Gísla - Ég Gef Þér Allt Mitt Líf
Stefanía Svavars - Flying
Emmsjé Gauti - Bleikt Ský
Jason Mraz - Look For The Good
Þórunn Antonia - Too Late
Baggalútur - Brostu

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Það hefur mætt mikið á starfsemi Virk - starfsendurhæfingarstöðvar undanfarnar vikur og hefur fjöldinn aldrei verið meiri sem nýtir sér þjónustu Virk. En hvernig gengur að hjálpa fólki á þessum óvissutímum? Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Virk - kemur til okkar í þáttinn.
Almannavarnaryfirvöld funduðu í dag með fulltrúum helstu menningarstofnana landsins um hvað framundan væri í samkomubanni og fleiru tengdu viðburðum tengdum list. Við ætlum að heyra í Birnu Hafstein en hún er formaður félags leikara og sviðslistafólks.
Um 500 nemendur í Háskólanum í Reykjavík eru nú á námskeiði um nýsköpun og stofnun fyrirtækja - sem er ekkert nýtt á þessum árstíma. Hinsvegar fer þetta stóra námskeið fram í fjarkennslu og nemendur vinna í hópum - sem geta lítið sem ekkert hist. Þannig að flækjustigið er mikið. Guðmundur Hafsteinsson kennir þetta námskeið ásamt fleirum. Hann þekkir nýsköpun og frumkvöðlastarf vel en hann hefur starfað fyrir Google, Apple og fleiri tæknifyrirtæki. Hann segir okkur betur frá þessu og talar við okkur um nýsköpun á undarlegum tímum.
Næstu þrjár vikunar má fólk eiga von á því að sjá jógastúdíó á fjórum hjólum á ferð um landið. Það eru jógakennararnir Íris Ösp Heiðrúnardóttir og Andrea Rún Carlsdóttir sem bæði keyra og búa í bílnum auk þess sem þær munu stoppa á sem flestu stöðum á landinu og færa fólki jóga.Síðdegisútvarpið hitti þær í Jógabílnum rétt fyrir brottför.
Það lítur út fyrir að Íslendingar ætli að vera mjög dulegir að skoða landið sitt í sumar og margir eru orðnir spenntir að viðra ferðavagnana og tjöldin. Hjalti Sverrisson á Arnarstapa ætlar að segja okkur hvernig þau skipuleggja tjaldstæðið þar.

Útvarpsfréttir.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Það er brot á samfélagssáttmála að fyrirtæki greiði út arð eða kaupi eigin hlutabréf á meðan þau nýta sér björgunarhring stjórnvalda. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Það verði ekki bæði sleppt og haldið.
Fyrirtækin Hagar, Festi og Skeljungur hafa ákveðið að hætta að nýta hlutabótaleiðina. Hagar og Skeljungur ætla að endurgreiða það sem þau hafa fengið frá ríkinu.
Útlit er fyrir að takmörkunum vegna samkomubanns verði aflétt hraðar þann 25. maí, en gert var ráð fyrir. Enginn greindist með smit síðasta sólarhring. Sóttvarnalæknir segir að óhætt sé að ganga lengra í að aflétta hömlum vegna þess hversu hratt faraldurinn hefur gengið niður.
Yfir 31 þúsund dauðsföll hafa verið tilkynnt í Bretlandi vegna COVID-19 sjúkdómsins. Þeirra á meðal er sex vikna ungbarn.
Á sunnudag eru 80 ár frá því að Bretar hernámu Ísland. Sagnfræðingur segir að fáir atburðir hafi haft jafn miklar og skjótar breytingar í för með sér í sögu landsins. Bogi Ágústsson segir frá og talar við Guðmund Hálfdánarson.
Í Bandaríkjunum hafa kjötpökkunarstöðvar orðið sérstaklega illa úti í heimsfaraldrinum. Af þeim 500 þúsund verkamönnum sem starfa í pakkhúsum stórfyrirtækja er talið að um 5000 hafi veikst, eða einn af hverjum hundrað. Að minnsta kosti tuttugu hafa látist. Kórónuveiran hefur varpað ljósi á bág starfsskilyrði verkamanna. Hún hefur líka afhjúpað hvernig matvælaframleiðsla í Bandaríkjunum hvílir að stórum hluta á herðum ólöglegra innflytjenda frá Rómönsku-Ameríku.
Arnhildur Hálfdánardóttir segir frá.

Fréttastofa RÚV.

Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70´s, 60´s, 80´s 50´s, 90´s rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að tala og syngja og maður á að hlusta hátt.
Það er enginn gestur í kvöld en við fáum lag frá vini þáttarins kl. 19.45, óskalagasíminn opnar kl. 20.00 og plata þáttarins sem við heyrum amk. þrjú lög af er Black and White, þriðja breiðskífa ensku hljómsveitarinnar The Stranglers. Hún kom út 12. Maí 1978.
Tilefnið er að hljómborðsleikarinn Dave Greenfield féll fyrir Covid 19 núna síðasta sunnudag, 71 árs að aldri.
Það er sami uptökustjóri á Black and White og á fyrstu tveimur plötunum, Rattus Norvegicus og No more Heroes sem báðar komu út 1977. Upptökustjórinn hét Martin Rushent og er látinn, en hann vann líka t.d. með Human League, Joy Division og Buzzcocks svo einhver nöfn séu nefnd.
Í huga margra eru fyrstu þrjár plötur Stranglers eins og systur, hrár, kraftmiklar og með mjög sérstakt sánd sem einkennist af taktföstur trommum, litlum gítar, groddalegum áberandi bassa og dansandi hljómborðalínum.
Botnleðja - Fallhlíf
Blur - Death of a party
Kiss - Strutter
Rainbow - Long live rock?n roll
Jethro Tull - Living in the past
VINUR ÞÁTTARINS
Jethro Tull - We used to know
Richard Hawley - Don?t stare at the sun
SIMATÍMI
The Stranglers - Nice ?n sleazy
The Clash - Should i stay or should i go (óskalag)
The Damned - Neat neat neat (óskalag)
Fontains D.C. - A hero?s death
David Bowie - Suffragette city (óskalag)
Desperado - See you at sunrise (óskalag)
Sugar - Gift
Dire Straits - Tunnel of love
Neil Young & Crazy Horse - Everybody knows this is nowhere
Neil Young & Crazy Horse - Cowgirl in the sand
The Beatles - Can?t buy me love
The Beatles - I?ve got a feeling
Cornershop - No rock save in roll
Sabaton - Metal machine (óskalag)
The Stranglers - Tank
The HU - Yuve yuve yu (óskalag)
Cream - Crossroads
Led Zeppelin - Travelling riverside blues