06:50
Morgunútvarpið
8. maí - Aspir, kvikmyndataka, raddsýni, Ísland googlað, Hégómavísindi

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Risastórar aspir í görðum fólk hafa stundum orðið tilefni deilna á milli nágranna þar sem aspirnar skyggja stundum á nærliggjandi garða. Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður húseigendafélagsins fór yfir þetta með okkur en sum þessara mála hafa endað fyrir dómstólum.

Íslandsstofa hefur sent landlækni viðmiðunarreglur til samþykkis svo erlend tökulið geti tekið upp kvikmyndir hér á landi. Morgunblaðið greindi frá þessu í gær. Einar Hansen Tómasson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu var á línunni. Hann segir ívilnun til þeirra fyrirtækja sem taka upp myndefni hér á landi nauðsynlega.

Framtíð íslenskrar tungu stendur og fellur með því að börn og unglingar noti tungumálið. Til að svo verði áfram þarf að tryggja að tæknin skilji raddir barna og unglinga, sem nú tala við flest sín tæki á ensku. Raddsýnum hefur verið safnað um nokkurt skeið meðal grunnskólabarna og við ræddum við Jóhönnu vigdísi Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri almannaróms, um verkefnið.

Árangur Íslands í baráttunni við COVID-19 hefur vakið heimsathygli aukið áhugann á Íslandi. Þetta segir Hreggviður S. Magnússon, leiðtogi í starfrænni markaðssetningu hjá Pipar\TBWA og The Engine. Hann vísar í leitarniðurstöður Google.

Freyr Gígja Gunnarsson talaði um Axl Rose, Adele og Tiger King Hégómavísindahorninu.

Var aðgengilegt til 08. maí 2021.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,