12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 8. maí 2020

Útvarpsfréttir.

Reynt verður að endurheimta þær hlutabætur sem greiddar hafa verið starfsmönnum stöndugra fyrirtækja, fáist ekki viðhlítandi skýringar á greiðslunum, segir fjármálaráðherra. Þau hafi rekið rýting í samstöðuna í samfélaginu.

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að ekki hafi verið kallað eftir rekstrarupplýsingum frá þeim tæplega sjö þúsund fyrirtækjum sem nýtt hafa sér hlutabótaleiðina. Slíkt eftirlit hefjist í haust, jafnvel fyrr. Allt kapp hafi verið lagt á að fækka uppsögnum.

Oddviti Árneshrepps segir að frestun framkvæmda við Hvalárvirkjun sé mikil vonbrigði. Vesturverk lokaði skrifstofu sinni á Ísafirði og sagði upp tveimur starfsmönnum þar, sem þýðir að framkvæmdum við virkjunina verður frestað um óákveðinn tíma.

Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að COVID-19 farsóttinni hafi fylgt flóðbylgja hatursorðræðu og andúðar á útlendingum. Hann hvetur menntastofnanir til að fræða nemendur um notkun netmiðla á tímum falsfrétta.

Þjónusta strætó er enn skert þótt aðsókn sé farin að aukast. Brögð hafa verið að því að skilja þurfi farþega eftir á biðstöðvum. Fyrirkomulagið er í stöðugri endurskoðun, segir framkvæmdastjórinn.

Á fjórða hundrað strandveiðibátar hafa landað afla í vikunni. Búist er við að allt að 700 bátar verði á strandveiðum í sumar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,