06:50
Morgunvaktin
Vitum ekki hvenær niðursveiflunni lýkur

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Sjö vikur í röð hefur samdráttur í efnhagskerfum aukist, og ekki er enn ljóst hvænær fallinu lýkur og botninum verður náð. Ríki heimsins eru þó mörg hver búin að draga lærdóm af síðustu kreppu, og hafa brugðist mun meira við nú en árið 2008. Þetta var meðal þess sem Ásgeir Brynjar Torfason, sérfræðingur í efnahagsmálum, sagði á Morgunvaktinni í morgun.

Paolo Gentiloni, sem fer með efnahagsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, kynnti horfur í efnahagsmálum ESB og óhætt er að segja að þær séu dökkar. Þá hafa repúblikanar í Bandaríkjunum áhyggjur vegna stöðunnar í könnunum vestanhafs og frammistöðu Donalds Trump á blaðamannafundum undanfarið. Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og sagði frá þessu, og einnig því að hátíðahöld eru nú víða í nágrannaríkjum okkar vegna þess að 75 ár eru frá uppgjöf Þjóðverja í seinni heimstyrjöldinni.

Það varð uppnám meðal listafólks vegna frétta um að tveggja metra reglan svokallaða yrði viðvarandi út árið. Enn hafa listamenn ekki fengið mikil svör um það hvernig þeirra störfum getur verið háttað á næstunni. Þá gengur mörgum listamönnum illa að fá greiddar atvinnuleysisbætur þó algjört tekjufall hafi orðið hjá þeim, þeir passa illa inn í kerfin og mögulega verður ekki hægt að reikna út þeirra bætur fyrr en í haust. Þetta sagði Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna.

Tónlist: Bréfið hennar Stínu - Diddú, Þórður sjóari - Alfreð Clausen, Rökkurró - Edda Heiðrún Bachman, Refavísur - Bessi Bjarnason, Piparkökusöngurinn - Örn Árnason

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,