14:03
Heimskviður
35 | Hagen-málið, heilsuleysi Kim Jong-un, og söguleg réttarhöld

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Í þrítugasta og fimmta þætti Heimskviða er fjallað um glæpasögur. Hver urðu örlög Anne-Elisabeth Hagen? Stóð maðurinn hennar á bak við morðið á henni og reyndi að villa um fyrir lögreglunni með því að láta líta út fyrir að henni hafi verið rænt. Ef ekki er þegar búið að því verður án efa mjög bráðlega ráðist í gerð hlaðvarpa eða heimildaþátta um örlög Anne-Elisabeth Hagen. Því hvort sem við viðurkennum það eða ekki hafa flest afar mikinn áhuga á öllu sem tengist umfjöllun um alvöru glæpi. Fræðimenn hafa sett fram kenningar um þennan áhuga, eins og Margrét Valdimarsdóttir, dotkor í afbrotafræði, segir okkur frá. Birta Björnsdóttir fjallar um áhuga okkar á glæpum og gagnrýni sem þættir sem fjalla um morð og misþyrmingar hafa fengið, meðal annars frá ættingjum þolenda.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu er við hestaheilsu. Eða, það segir norður-kóreski ríkisfjölmiðillinn allavega. Kim sást ekki opinberlega svo vikum skipti en dúkkaði svo allt í einu upp á baráttudegi verkalýðsins fyrr í þessum mánuði. Spurningar um heilsu Kims vöknuðu í kjölfarið, en hann þykir í áhættuhópi vegna ofþyngdar og sökum þess að hann er stórreykingarmaður. En falli Kim frá, hver tekur við af honum sem leiðtoga þessa leyndardómsfylsta ríkis heims? Verður það systir hans? Guðmundur Björn Þorbjörnsson segir okkur frá.

Á dögunum hófust réttarhöld í Þýskalandi yfir tveimur mönnum frá Sýrlandi. Ákæruskjalið telur hundrað blaðsíður og eru mennirnir meðal annars ákærðir fyrir pyntingar á almennum borgurum sem tóku þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum. Þetta eru fyrsta sinn sem réttað er yfir fulltrúum sýrlenskra stjórnvalda sem hafa margoft verið sökuð um stríðsglæpi. Ólöf Ragnarsdóttir fjallar um málið.

Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
,