13:00
Gull og grænir skógar
22. Gróður og yfirnáttúran í náttúrunni í Hafnarfirði.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.

Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.

Í þættinum er ráfað í kringum Hamarinn í Hafnarfirði og staldrað sérstaklega við Brekkugötu og Austurgötu. Rætt er um yfirnáttúru og þær umgengnisreglur og bannhelgi sem hvílir á vissum stöðum á þessu svæði. Í senn er staldrað við álfakonungshöllina sjálfa, svartálfabyggðir, Fríkirkjuna í Hafnarfirði og síðast en ekki síst merkan gróður, eins og Bogsýrenu ‘Mjallhvít’ og gráöspina frægu sem valin var tré ársins 2006 og er í eigu Hvals hf.

Viðmælendur: Halldóra Pálmarsdóttir, Steinar Björgvinsson, Símon Jón Jóhannsson og Jónatan Garðarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 52 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,