07:03
Morgunútvarpið
Peptíð,Bónus deildin,fréttir vikunnar og Herbert nýbakaður faðir nýtur lífsins á Spáni

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Smartlandið greindi frá því í gær að Herbert Guðmundsson sé orðinn faðir á ný. Í byrjun árs fékk Herbert óvæntan tölvupóst frá Arnari Jóhanni Ragnarssyni, sem taldi Herbert vera föður sinn. DNA-próf staðfesti faðernið og hafa feðgarnir síðan þá verið að kynnast. Við heyrum í Hebba sem nýtur nú lífsins á Spáni.

Í febrúar fjölluðum við um peptíð, sem fólk kaupir á svörtum markaði og sprautar í sig í von um bætt útlit. Þá voru efnin auglýst á samfélagsmiðlum og streymdu til landsins. Nú heyrum við stöðugt fleiri sögur af því að allskonar fólk sé að nota allskonar peptíð sem það útvegar sér með allskonar leiðum. Þetta gerðist hratt og læknar velta eðlilega fyrir sér hvað er í gangi, enda efni sem fara framhjá heilbrigðiskerfinu. Una Emilsdóttir, læknir í Kaupmannahöfn, verður á línunni.

Bónus-deildin er loksins farin af stað á ný og við fáum til okkar Stefán Árna Pálsson og Berglind Gunnarsdóttir úr Körfuboltakvöldi karla og kvenna á Sýn til að rýna í veisluna sem er framundan.

Við förum yfir fréttir vikunnar með Líf Magneudóttur borgarfulltrúa og Friðjóni Friðjónssyni varaborgarfulltrúa.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,