12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 9. október 2026

Útvarpsfréttir.

Ölgerðin Egill Skallagrímsson er grunuð um markaðsmisnotkun á sex ára tímabili. Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar í morgun.

Forsætisráðherra segir að bæði formaður Eflingar og VR hafi rétt fyrir sér varðandi kjarasamningana, vaxtabótaaukinn var í pakka stjórnvalda á þriðjudaginn en hafi verið útfærður í gær.

Navi Pillay handhafi friðarverðlauna Nóbels hefur barist gegn stríðsglæpum og glæpum gegn mannúð. Hún er dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn og var um hríð mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna.

Borgarráð hefur afturkallað úthlutun lóða sem Félag múslima á Íslandi og söfnuður rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar fengu til að reisa sér húsnæði. Á annan áratug leið frá úthlutun án þess að framkvæmdir hæfust.

Rekstarniðurstaða sveitarfélaga versnaði í heildina á milli ára. Fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga lýkur í hádeginu.

Samherji gæti hafið fiskþurrkun á Laugum að nýju með bráðabirgðaleyfi, þrátt fyrir að starfsleyfi fyrirtækisins hafi verið afturkallað. Sveitarstjóri Þingeyjarsveitar segir störfin mikilvæg en að taka þurfi á ágreiningi.

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Króatíu í dag í fyrri umspilsleik um sæti á heimsmeistaramótinu 2027.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 22 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,