15:03
Sögur af landi: Endurlit
68. þáttur

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur frá 26. nóvember 2017: Fræði eru til margra hluta nytsamleg fyrir samfélagið og í þessum þætti er talað við margskonar fræðimenn vítt og breitt um landið. Meðal annars er fjallað um reiði í íslenskum bókmenntum, myndmennt sem meðferðarúrræði og litið inn í Vestrahúsið á Ísafirði. Innslög unnu Dagur Gunnarsson, Birna Pétursdóttir og Halla Ólafsdóttir.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 53 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,