10:15
Gleymdar gleðistundir
3. þáttur: Dramað í dagbókinni

Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.

Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við að syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.

Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson

Við upphaf seinni heimstyrjaldar eru óperetturnar feykivinsælar í Reykjavík. Á sviðinu er dansað, sungið og hlegið en ekki er allt sem sýnist. Dagbókarfærslur leikstjórans Haraldar Björnssonar færa hlustendur inn á dramatískan heim að tjaldarbaki. Viðmælendur eru Þórhildur Þorleifsdóttir, Páll Baldvin Baldvinsson, Árni Heimir Ingólfsson og Una Margrét Jónsdóttir. Lesarar eru Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 41 mín.
,