Gleymdar gleðistundir

3. þáttur: Dramað í dagbókinni

Við upphaf seinni heimstyrjaldar eru óperetturnar feykivinsælar í Reykjavík. Á sviðinu er dansað, sungið og hlegið en ekki er allt sem sýnist. Dagbókarfærslur leikstjórans Haraldar Björnssonar færa hlustendur inn á dramatískan heim tjaldarbaki. Viðmælendur eru Þórhildur Þorleifsdóttir, Páll Baldvin Baldvinsson, Árni Heimir Ingólfsson og Una Margrét Jónsdóttir. Lesarar eru Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.

Birt

13. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Gleymdar gleðistundir

Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.

Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.

Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson

Þættir

,