08:03
Fyrst á fætur

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.

Gestur Huldu að þessu sinni var Einar Á. Sæmundsen þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Þau ræddu lífið og tilveruna, námsárin í Bandaríkjunum og áskoranir í rekstri þjóðgarðsins m.a. Á línunni í sveitasímanum var svo Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir sem býr í Köldukinn í Holta- og Landsveit, hún sagði frá dóttur sinni sem fer ríðandi í skólann, feldfénu sem hún ræktar og fleiru skemmtilegu í sveitinni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 57 mín.
,