Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Tónlist í þættinum:
Heart of Gold - Neil Young
„Vi er røde vi er hvide“ - Danska landsliðið 1986 / Re-Sepp-Ten
Crocodile Rock - Elton John
Starman - David Bowie
Dagur að rísa - Egill Ólafsson/ Stuðmenn Sumar á Sýrlandi
Orfeus og Evridís - Megas/Spilverkið
Smávinir fagrir - Hamrahlíðakórinn
Misa Criolla - Gloria - Jose Carreras
Romance In Durango - Bob Dylan & Emmylou Harris
God only knows - Beach Boys
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Enska tónskáldið Edward Elgar samdi þrjú af sínum merkustu kammerverkum árið 1918. Það voru strengjakvartett í e-moll, píanókvintett í a-moll og fiðlusónata í e-moll. Í þessum þætti verður fiðlusónatan leikin og einnig verða flutt sönglög eftir Elgar, en sum þeirra samdi hann við ljóð konu sinnar, Alice Elgar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Íslandi og þau yrki rósa sem þykja hvað harðgerðust. Slíkar rósir má sjá á umferðartorgum víða og nálægt sjávarsíðunni enda eru margar þeirra vind- og saltþolnar. Minnst er á brautryðjendastarf Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra. Einnig er fjallað um rósir sem notaðar eru í skreytingar og muninn á þeim og garðrósum. Rætt er við rósaræktendur og meðlimi í Rósaklúbbnum.
Viðmælendur: Hjörtur Þorbjörnsson og Steinar Björgvinsson.

frá Veðurstofu Íslands.
Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.
Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við að syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.
Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson
Við upphaf seinni heimstyrjaldar eru óperetturnar feykivinsælar í Reykjavík. Á sviðinu er dansað, sungið og hlegið en ekki er allt sem sýnist. Dagbókarfærslur leikstjórans Haraldar Björnssonar færa hlustendur inn á dramatískan heim að tjaldarbaki. Viðmælendur eru Þórhildur Þorleifsdóttir, Páll Baldvin Baldvinsson, Árni Heimir Ingólfsson og Una Margrét Jónsdóttir. Lesarar eru Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.
Prestur er sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Kór Akraneskirkju syngur undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, organista.
Sigurður Flosason, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, spilar á saxófón.
Lesarar eru Guðni Halldórsson, guðfræðinemi, og Fanney Dís Snæland Birgisdóttir og Inga María Brynjarsdóttir, væntanlegar fermingarstúlkur Akraneskirkju.
Meðhjálpari er Helga Sesselja Ásgeirsdóttir.
Eftir prédikun syngur kórinn lagið Bæn eftir Þórarin Guðmundsson, fiðluleikara og tónskáld, við ljóð Jakobs Jóhannessonar Smára. Lagið tileinkaði Þórarinn Akraneskirkju, sem var vígð sama ár og Þórarinn fæddist, árið 1896, en yfirsmiður kirkjunnar var faðir hans Guðmundur Jakobsson. Lagið er gjarnan sungið við hátíðleg tækifæri í kirkjunni.
TÓNLIST Í MESSUNNI :
Fyrir predikun
Forspil: Tignarlegir tindar eftir Sigurð Flosason
Sálmur 623 Allt sem Guð hefur gefið mér L: Sigurður Flosason. T: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Miskunnarbæn Sálmur 259 L: Trond H.F. Kverno. T: Matt 9.27
Dýrðarsöngur Sálmur 270 L: Pablo Sosa. T: Kristján Valur Ingólfsson, Lúk 2.14
Sálmur 200 Ég heyrði Jesú himneskt orð L: Enskt þjóðlag. T: Stefán Thorarensen
Sálmur 728 Ljósfaðir L: Sigurður Flosason. T: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Eftir predikun
Bæn L: Þórarinn Guðmundsson. T: Jakob Jóh. Smári
Sálmur 556a Ver mér nær ó, Guð Lagið er afrískt-amerískt þjóðlag. T: Hrefna Tynes
Sálmur 341 Fel mig nú í faðmi þér (Hljóður) L: Reuben T. Morgan. T: Árný Björg Blandon
Eftirspil ; C dúr prelúdia eftir j.s Bach. Úr safni Acht kleine präludien und fugen
Útvarpsfréttir.
Þingkosningar fara fram í Svíþjóð í dag og útlit er fyrir góða kjörsókn. Metkjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu gæti tafið fyrir talningu.
Maður sem er grunaður um að hafa veitt kærustu sinni lífshættulega áverka í sumar situr í gæsluvarðhaldi. Lögregla fann blóðuga exi og kaðal á heimil parsins.
BRICS-ríkin hvetja til stillingar í stríðinu í Miðausturlöndunum. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi ríki, meðal annars Kína, Rússland og Íran, komast að samkomulagi um ályktun um stríðið.
Áttatíu tonna trébátur sökk í Hafnarfjarðarhöfn í nótt. Báturinn hefur sokkið þrisvar sinnum á sex árum. Báturinn hefur verið bundinn við bryggju óhreyfður.
Atvinnuvegaráðherra hyggst skapa lagaramma utan um laxeldi utan fjarða. Greinin er enn á hugmyndastigi hér á landi.
Fimmtíu ára afmæli Kattavinafélags og þrjátíu og fimm ára afmæli Kattholts er fagnað í dag, við kíkjum í afmælisveisluna í fréttatímanum.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas norsku konungsfjölskylduna. Haraldur fimmti Noregskonungur lést í lok ágúst og á miðvikudaginn í síðustu viku var hann jarðaður. Hver var hann og hver er það sem tekur við? Allt um það í þætti dagsins.
Yngsti sonur Johanns Sebastians var fjölhæfastur bræðranna á tónsmíðasviðinu og sá víðförlasti. Hann var aðeins 14 ára gamall þegar faðir hans lést og hélt þá áfram tónlistarnámi hjá bróður sínum Carl Philipp Emanuel í Berlín. Um tvítugt yfirgaf hann Norðaustur-Þýskaland, starfssvæði Bach-ættarinnar um tveggja alda skeið, og fluttist til Ítalíu. Hann varð aðstoðarorganisti við Dómkirkjuna í Mílanó 1760 og orðspor hans sem tónskálds barst víða um Evrópu, ekki síst eftir að hann brá enn útaf vana ættarinnar og hóf að semja óperur. Árið 1762 tók hann boði um að semja tvær óperur fyrir King's Theatre í London og upp frá því var höfuðborg hins stækkandi breska heimsveldis heimili hans. Frægðarsól Lundúna-Bachs steig hratt, hann varð tónlistarstjóri drottningarinnar, stóð fyrir fjölsóttum tónleikaröðum ásamt landa sínum Carl Friedrich Abel, fyrrum nemanda föður hans, og varð eftirlæti borgarbúa eins og Händel á undan honum. Þegar hinn átta ára gamli Mozart kom til Lundúna árið 1764 urðu þeir Johann Christian mestu mátar þrátt fyrir aldursmuninn og frægar eru sögur af því er þeir léku fjórhent á sembal, strákurinn sitjandi í fangi eldri kollega síns. Vinsældir Johanns Christians dvínuðu nokkuð á síðustu æviárum hans og fáum árum eftir andlát hans var hann flestum gleymdur. Eitt sinn mun Johann Christian hafa borið sig saman við hinn fræga bróður sinn og sagt: „Carl Philipp Emanuel lifir fyrir tónsmíðarnar, ég lifi á þeim." Þessi ummæli þóttu lengi til marks um að Johann Christian hefði látið ríkjandi smekk ráða för og að tónsmíðar hans ristu ekki ýkja djúpt. Núorðið blandast hinsvegar fáum hugur um að hann var eitt hæfileikaríkasta og áhrifamesta tónskáld snemmklassíska tímans.
Tónlistin í þættinum (eftir Johann Christian Bach):
Fuga, Uber die Buchstaben seines
Namens B.A.G.H - Marie-Claire Alain orge
Sembalstykki i Fd0r r3r N6tnab6k Onnu
Magdalenu Bach (1725) - Michael Behringer semball
Der Weise auf dem Lande (brot) - Markus Schafer tenór og Ludger Remy fortepian0
Salve Regina, 1. Pdttur (brot) -
Emma Kirkby sópran og L'Orfeo Barockorchester;
stjórnandi: Michi Gaigg
Konsert i Esdúr, oP.7 nr. 5,2. kafli - Anthony Halstead fortepianó/stjórnandi og The
Hanover Band
Flautukvartett i Dúr, oP. 19. nr. 2,Camerata Koln
1. kafli(brot)
Adriano in Seria, forleikur,l. kafli (brot) -he Academy of Ancient Music, stjórnandi: Simon
Standage
Pianósónata f Esdúr, oP. 17 nr. 3, - 1. kafli(brot)- Harald Hoeren fortepianó
Pianókonsert i Ddúr, K, 107 - 1. kafli(brot) - Murray Perahia pianó/stjórnandi. English Chamber Orchestra
Lucio Silla, forleikur, 2. kafli(brot)
Amadis des Gaules, Ariette et choeur
(brot) - The Hanover Band; stjórnandi: Anthony Halstead
Sinfónfa i g-moll, 1. kafli - The Academy of Ancient Music; stjórnandi: Simon Standage
Qui tollis peccata mundi, susciPe
deprecationem (úr Gloriu i G) - Kammerkórinn I Namur og hljómsveitin Les Agrémens; stjórnandi: Weiland Kuijken
lnfelice! ln van m'affanno úr La
Clemenza diScipione -Linda Perillo sópran og Das Kleine Konzert: stjórnandi: Hermann Max
--
Goldberg tilbrigði nr 25 - Johann Sebastian Bach - Glenn Gould, píanó
Í byrjun ágústmánaðar 2026 fór fram í Hörpu tónlistarhátíðin Seigla, sem hefur fært tónlistaráhugafólki ferska strauma bæði sígildrar og samtímatónlistar undanfarin ár. Fjölmargir viðburðir á dagskrá dagana 7-9. ágúst sem spönnuðu allt litróf tónlistarinnar auk þess að gera sér far um að höfða til allra aldurshópa með upplfunum fyrir alla fjölskylduna og þá yngstu í viðburðum undir nafninu Litla Seigla.
Í seinni yfirreið Rásar 1 um Seiglu tónlistarhátíð er gripið niður í tónleikana Dægurlög, Krókaleiðir um Julius Eastman og Mæðramátt.
Hjörtur Páll Eggertsson stjórnar kammersveitinni Elju:
Ticket to ride /Yesterday - Lennon/McCartney - úts L Berio - Harpa Ósk Björnsdóttir
Heut' Nacht hab'ich geträumt von dir/ Ég er kominn heim - Emerich Kálman/Jón Sigurðsson - Kristín Einarsdóttir Mäntylä
Frá tónleikunum Mæðramáttur:
Hjálmar Ragnarsson - Vögguvísa Sólveigar
Jórunn Viðar - Mamma ætlar að sofna - Matthildur Anna Gísldóttir leikur á píanó og Vera Hjördís Matsdóttir syngur
B. Britten (1913-1976) Charms of a Lullaby Op. 41:
Sephestia's Lullaby / A Charm /The Nurse’s Lullaby -Hildigunnur Einarsdóttir · mezzó-sópran/Matthildur Anna Gísladóttir píanó
F. Mendehlssohn - Dúettar Op. 63:
Ich wollt, meine Liebe ergösse sich/Abschiedslied der Zugvögel/Volkslied /Maiglöcken und die Blümelein. Vera Hjördís Matsdóttir sópran og Hildigunnar Einarsdóttir mezzosópran. Matthildur Anna Gísladóttir píanó.
Julius Eastman (1940-1990): Joy Boy - Elja kammersveit
Spjall við Pétur Eggertsson um Krókaleið
Pétur Eggertsson: Krókaleið
“Krókaleið er vistkerfi af hljóðum, fyrir kammersveit án stjórnanda. Verkið er innblásið af umhverfishljóðum frá skólalóð Mills College þar sem ég var í námi. Sterkir froskakórar birtust að hausti til, þar sem einn froskur myndi byrja að kalla og smám saman bættust fleiri við þar til hljóðið varð alltumlykjandi. Inn á milli heyrðist í flugum, fuglum, spjalli, hljóðfæraæfingum og fjarlægum umferðaniði. Þessi umhverfishljóð minntu óneitanlega á verk Pauline Oliveros sem setti sterkan svip sinn á skólann og starfaði þar fram til dauðadags, en verkið er að sama skapi innblásið af hlustunarverkum Oliveros.
Verkið er liður í áframhaldandi rannsókn tónskáldsins á aðferðafræði í nótnaskrift sem gefur flytjandanum ákvarðanavald og inngripstækifæri innan tónefniviðsins. Nótnaskriftin er innblásin af borðspilum og slembiaðferðum bandarísku tilraunahefðarinnar, og er byggð upp af “tónefnareitum” sem flytjendur leiða sig í gegnum á þann hátt sem þau kjósa, en þó eftir settum reglum verksins.”
Julius Eastman (1940-1990): Stay On It - Hjörtur Páll Eggertsson stjórnar Elju kammersveit og DUVE - Det Unge VokalEnsemble · kammerkórnum danska.
Funiculi Funicula - Luigi Denza - úts Arnold Schönberg
Michelle -Lennon/McCartney - úts L Berio -Harpa Ósk Björnsdóttir syngur með Elju
Þorgrímur Þorsteinsson hljóðritaði tónleika Seiglu.
Umsjón: Pétur Grétarsson
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Hús íslenskunnar heitir Edda. Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, sagði okkur frá Eddu og hvaða gildi það hefur að til sé staður, bygging, sem tileinkaður er íslenskri tungu.
Íslendingar eiga Evrópumet og mögulega heimsmet í notkun svefnlyfja.
Árið 2024 fengu um sjö prósent landsmanna uppáskrifuð svefnlyf. Réttlætir ávinningur svefnlyfja aukaverkanirnar? Er langtímanotkun hættuleg?
Dagskrárgerð: Lárus Steinþór Guðmundsson
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen

frá Veðurstofu Íslands
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Vísindamenn spá því að El Niño verði öflugri en nokkru sinni fyrr, nái hámarki fyrir lok árs og valdi methita á heimsvísu á næsta ári. El Niño á sér stað að jafnaði á um fjögurra ára fresti. Þann 30. ágúst bættist Suður-Ameríkuríkið Ekvador á listann yfir þær þjóðir sem hafa lýst yfir neyðarástandi vegna veðurfyrirbærisins. Margir hafa heyrt það nefnt en færri vita hvað það er nákvæmlega. Hallgrímur Indriðason rýnir í það og þær alvarlegu afleiðingar sem gætu fylgt fyrir fjölda fólks.
Svo förum við til Suður-Afríku. Undir lok ágúst voru 40 ár frá því bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon opnaði augu og eyru vesturlandabúa fyrir afrískri tónlist en líka ógn og ömurð apartheid-tímans í Suður-Afríku. Graceland platan á sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um, að tónlist Afríku ætti erindi við heimsbyggðina alla og hún hljómar enn á götum suðurafrískra borga - tákn um frelsi og gleði og allt það sem býr í álfunni og íbúum hennar. Við tölum við Suður-afríkumenn. Annan sem ólst upp innan aðskilnaðarstefnunnar og hinn eftir að hún var afnumin 1991. Þau tengja bæði við tónlistina á ólíkan hátt og segja hana lifa góðu lífi í Suður-Afríku í dag, 40 árum eftir að hún var gefin út.
Óperur og óperettur rötuðu ekki á íslenskt leiksvið fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.
Margar af fyrstu uppfærslunum urðu geysivinsælar en eru flestum gleymdar í dag. Á meðan kreppan lagðist þungt á íslenskt samfélag skemmti fólk sér við að syngja og tralla með persónum úr evrópskum hástéttarævintýrum. Á sviðinu ríkti glaumur og gleði en bak við tjöldin var tekist á.
Umsjón og dagskrárgerð: Bjarni Thor Kristinsson
Við upphaf seinni heimstyrjaldar eru óperetturnar feykivinsælar í Reykjavík. Á sviðinu er dansað, sungið og hlegið en ekki er allt sem sýnist. Dagbókarfærslur leikstjórans Haraldar Björnssonar færa hlustendur inn á dramatískan heim að tjaldarbaki. Viðmælendur eru Þórhildur Þorleifsdóttir, Páll Baldvin Baldvinsson, Árni Heimir Ingólfsson og Una Margrét Jónsdóttir. Lesarar eru Pétur Grétarsson og Stefán Jónsson.

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Sónata í G-dúr, op. 96 eftir Ludwig van Beethoven. Rachel Podger leikur á fiðlu og Christopher Glynn á píanó.
Þættir verksins eru:
I. Allegro moderato
II. Adagio espressivo
III. Scherzo - Allegro
IV. Poco allegretto
Upptaka fór fram í maí 2021 í St. Johns Church, Upper Norwood, London. Útgefið á plötunni Sonatas for Violin and Piano op. 12 No. 1, op. 24 and op. 96 árið 2022.
Bjarkamál - Sinfonietta seriosa (1956) eftir Jón Nordal. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur, Jerzy Maksymiuk stjórnar.
Þættirnir verksins eru:
I. Moderato
II. Allegro moderato e pesante
III. Adagio
IV. Allegro moderato e energico
Hljóðritað í Háskólabíói 14. mars 1997.
Stafræn yfirfærlsa á hljóðritum og gerð frumeintaks: Bjarni Rúnar Bjarnason. Útgefið árið 2021 á plötunni Jón Nordal. Útgefandi Polarfonia.
Élégie nr. 1 eftir Franz Liszt. Bryndís Halla Gylfadóttir leikur á selló og Edda Erlendsdóttir á píanó. Hljóðritað á tónleikum í tónleikaröðnni Sígildum sunnudögum í Hörpu árið 2018. Yfirskrift tónleikanna var Sónötur og ljóðræn smálög. Georg Magnússon hljóðritaði fyrir Ríkisútvarpið.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér segir af því Ódysseifur og félagar hans sigla heimleiðis frá eyju Kirku eftir að hafa heimsótt land hinna dauðu og fyrst liggur leið þeirra framhjá sírenunum, dísum sem seyða til sín sæfarendur með fögrum söng, en síðan er siglt um klettasund milli ófreskjanna Skyllu og Charybdisa, og loks komið að landi á eyju þar sem sólarguði Helíos geymir nautgripi sína og sauðfé. Aldrei hafa félagarnir komist í aðrar eins raunir! Þetta er 12. kafli kviðunnar.

Útvarpsfréttir.

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Gestur Huldu að þessu sinni var Einar Á. Sæmundsen þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Þau ræddu lífið og tilveruna, námsárin í Bandaríkjunum og áskoranir í rekstri þjóðgarðsins m.a. Á línunni í sveitasímanum var svo Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir sem býr í Köldukinn í Holta- og Landsveit, hún sagði frá dóttur sinni sem fer ríðandi í skólann, feldfénu sem hún ræktar og fleiru skemmtilegu í sveitinni.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Fólk sem enginn veit um - en breytti heiminum. Klúður sem breyttist í snilld. Rennilásinn á sér skrítna en skemmtilega sögu. Hvað á maður að sofa lengi út?
Bríet - Gleymmérei.
PÉTUR KRISTJÁNSSON - Vitskert veröld.
Elín Hall - Tachylite.
Drake, Nick - Pink moon.
Nýdönsk - Raunheimar.
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON - Gott.
VIOLENT FEMMES - Prove My Love.
SúEllen - Ferð án enda.
Elíza Newman - Vaknaðu.
Náttúra - My Magic Key.
JÓNAS & EINAR - Gypsy queen.
SPILVERK ÞJÓÐANNA - Sannaðu til.
SUGARCUBES - Cold Sweat.
LJÓTU HÁLFVITARNIR - Landróver.
CELL7 - City Lights.
RIKSHAW - Sentimental eyes.
Fontaines D.C. - Marianne.

Útvarpsfréttir kl. 11:00 sun.
Útvarpsfréttir.
Þingkosningar fara fram í Svíþjóð í dag og útlit er fyrir góða kjörsókn. Metkjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu gæti tafið fyrir talningu.
Maður sem er grunaður um að hafa veitt kærustu sinni lífshættulega áverka í sumar situr í gæsluvarðhaldi. Lögregla fann blóðuga exi og kaðal á heimil parsins.
BRICS-ríkin hvetja til stillingar í stríðinu í Miðausturlöndunum. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi ríki, meðal annars Kína, Rússland og Íran, komast að samkomulagi um ályktun um stríðið.
Áttatíu tonna trébátur sökk í Hafnarfjarðarhöfn í nótt. Báturinn hefur sokkið þrisvar sinnum á sex árum. Báturinn hefur verið bundinn við bryggju óhreyfður.
Atvinnuvegaráðherra hyggst skapa lagaramma utan um laxeldi utan fjarða. Greinin er enn á hugmyndastigi hér á landi.
Fimmtíu ára afmæli Kattavinafélags og þrjátíu og fimm ára afmæli Kattholts er fagnað í dag, við kíkjum í afmælisveisluna í fréttatímanum.

Gísli Marteinn spilar tónlist og spjallar við gest sinn.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Doddi mætti á Sportrásina og fylgdist með heilstu leikjum dagsins.
Almarr Ormarsson gerði upp bikarúrslitaleikina í fótbolta og Bragi Þórðarson fór yfir það helsta í mótorsportinu.
Lagalisti dagsins
Þormóður Eiríksson, Huginn, Úlfur Úlfur Hljómsveit - Meira.
BON JOVI - Always.
OASIS - Sunday Morning Call.
ST. GERMAINE - Rose Rouge (Radio Edit).
Quarashi - Do it again.
Michigander - Freaking Out.
VALDIMAR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Það styttir alltaf upp.
St. Etienne - Like a motorway.
HOFFMAN - Kolkrabbinn.
Jón Jónsson Tónlistarm., Herra Hnetusmjör - Las á milli línanna.
Fontaines D.C. - Marianne.
Temper City - Self Aware.
Creature of Habit, Birna Eyfjörð, Malen - auðnin.
MT Jones - I Don't Understand.
THIS MORTAL COIL - Song To The Siren (80).
Spacestation - Eiturgrá Skóda.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Afturhvörf og gamall hljóðheimur er áberandi í Suðupotti kvöldsins.
Kynnumst hörpuleikaranum Brandee Younger sem hefur m.a. verið tilnefnd til Grammy verðlaunanna. Dúettinn Thandii ásamt filippeyska trommaranum Regalado eiga plötu þáttarins "Coco Okayo".
Creature of Habit - Myrká
Caetano Malta - Domingo Matinê
Laufey - What love will do to you
The Tokyo Cuban Boys - Soran Bushi
Champagne Bubblebath - Spottieottiedopalilcious
Brandee Younger -Gadabout season
Quasimode - HI TECH JAZZ ( Paaul Murphy single edit)
Thandii X Regalado - Future Lover
Salim El Baroudi - Fatouma
Flesh Machine - F is for failing
Talking Heads - This must be the place ( Naive melody)
The Womack Sisters - If I let you
Ásgeir Trausti - Heartbeat
Arjuna Oakes - Motel
Jungle - Move like you do
Spacestation - Intro ( Sígó í helvíti )
DIIV - The fountain
Shay Lia with Kaytranada - So good
Bonobo ft. Joy Crookes - Always on your side
Thandii X Regalado - Coco Okayo
Teitur Magnússon - Barn
Zherav - Naja
Maajo - Water of life ( Spiritual mix )
Kaktus Einarsson - Follow
Black Truth Rhythm Band - Umbala ( Ben Gomori´s M´Bala edit )
Panzah Zandahs - Everything in it´s wrong place
Turbotito, Ragz, Piya Malik - Nainan da pyar de gaya ( Woolfy vs Projections Remix )
Hercules and Love Affair with Hips & Lips - My journey
Lisa - SaWaDiKa
Anya Shaddock - Til Eilífðar
Chitaa - Kiss Ei CHuu
Panzah Zandahz - Everything in it´s wrong place
Bonobo feat. Ichiko Aoba - Equinoctial
Thandii X Regalado - The return
Stevie Wonder - Another star
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Lagalisti:
Noah Kahan - The Great Divide
ICEGUYS - 7 9 13
Steinunn Yones & Gnúsi Yones feat. Kraftgalli & Teitur Magnússon - Spóla Til Baka
Creature Of Habit feat. Malen & Birna Eyfjörð - auðnin
Snow Patrol & Kylie Minogue - These Alarms
Baksýnisspegillinn: Justin Timberlake - Sexyback
Martin Garrix & U2 - Fireflies
Queens Of The Stone Age - Easy Street
Ásgeir - Heartbeat
Topp tíu:
10. Temper City - Self Aware
9. Ella Langley - Be Her
8. Bubbi Ég Er - Tilbúinn
7. Fontaines D.C. - Marianne
6. Sycamore Tree - All Tangled Up
5. Disco Bambino & Nile Rogers feat. Sophie Ellis-Bextor - Dancing Without You
4. Peggy Gou feat. Ayra Starr - Wo, man
3. Memfismafían & Björn Jörundur - Ég Kenni Þér Um
2. Kacey Musgraves - I Believe In Ghosts
1. Klara Einars - Ef Hann Myndi