15:00
Shamone! Sagan af Michael Jackson
Thriller

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.

Umsjón: Berglind María Tómasdóttir

Thriller kom út árið 1982 og heldur enn velli sem mest selda plata allra tíma. Í þættinum verður farið í saumana á þessu meistaraverki og tilurð hennar.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 20. júní 2015.

Er aðgengilegt til 21. ágúst 2026.
Lengd: 52 mín.
e
Endurflutt.
,