21:30
Sagnaslóð

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.

Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson

Í þættinum er fjallað um Sigurð Jónsson frá Arnarvatni í Mývatnssveit en hann orti meðal annars ljóðið ,,Blessuð sértu sveitin mín".

Viðtal við Málmfríði Sigurðardóttur Skálateigi 1 Akureyri en hún er eitt barna Sigurðar af síðara hjónabandi. 15 mín.

Lesið úr minningargrein Jóns Sigurðssonar frá Ystafelli um Sigurð Jónsson. Samvinnan 1949. 3 mín.

Þátturinn var frumfluttur 16. október 2009

Tónlist:

Blessuð sértu sveitin mín, ljóð Sigurður Jónsson, lag séra Bjarni Þorsteinsson, flutningur Kór Langholtskirkju, stjórn Jón Stefánsson, undirleikur kammersveit. Diskur 08775 Ísland er lýðveldi.

Yndislega ættarjörð, ljóð Sigurður Jónsson, lag Bjarni Þorsteinsson flutningur

Karlakórinn Glaður, Fjarðarbyggð, upptaka frá tónleikum til heiðurs Rögnvaldi Sigurjónssyni 2008.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 42 mín.
e
Endurflutt.
,