12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 23. maí 2026

Útvarpsfréttir.

Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýja skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands varpa ljósi á mjög háar fjárhæðir sem útgerðin hafi fjárfest í íslensku atvinnulífi. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir þær óverulegar.

Mikill viðbúnaður er í suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum vegna hættu á eiturefnaleka úr tanki. Óttast er að hann geti sprungið og hefur fjörutíu þúsund manns verið gert að yfirgefa heimili sín.

Oddviti Sjálfstæðismanna í borginni liggur undir feldi og metur stöðuna eftir einkafundi með þremur oddvitum í gær. Dregið gæti til tíðinda í dag.

Veitur ætla að bæta eftirlit við framkvæmdir í Skammadal í Mosfellsbæ vegna litarmengunar þaðan sem sett hefur mark sitt á ána síðustu daga. Veitur stefna að því að bora tuttugu og níu holur á komandi árum, þar af fimmtán í ár.

Úrslitaleikur Meistaradeildar kvenna í fótbolta er í dag. Sigursælasta lið keppninnar, Lyon, mætir þar stórliði Barcelona sem er að leika til úrslita sjötta árið í röð.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,