Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. apríl 2014.
Umsjón: Einar Már Guðmundsson
Einar Már Guðmundsson leikur tónlist að eigin vali.
Einu sinni þótti fallegt að vera feit. Síðastliðna áratugi hefur feitt fólk mætt fordómum, sýnileg líkamsfita þótt útlitsgalli og mælikvarði á skapgerð, sjálfsaga, æskileika og færni. Persónulegt vandamál einstaklinga sem þeir hafi valið með því að velja óheilsusamlegt líferni og ættu að vilja leysa. Milljónaiðnaður hefur haldið fólki í baráttu við líkamann sinn með ýmsum lausnum sem oftar en ekki skilja fólk eftir enn feitara en fyrr. Fjöldi feitra lifir þó heilbrigðu og hamingjusömu lífi, óháð holdafari sínu.
Offita er nú skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir.
Ber þá feitu fólki þá skylda til að fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til að draga úr offituvandanum eða auka hann? Og hvaða afleiðingar hafa þessar lausnir til langframa? Er alltaf betra að vera mjó?
Brynhildur Björnsdóttir er 56 ára kona sem hefur verið feit alla ævi. Hún veltir þessum spurningum fyrir sér í þremur útvarpsþáttum ásamt ýmsum sérfræðingum og fólki með reynslu af því að grennast með hjálp lyfja og aðgerða.
Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu.
Rætt er við Ragnheiði Bjarman Eiríksdóttur og lesari í þættinum er Helgi Seljan.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu meðal annars bæjar- og sveitarstjórnarkosningar, meirihlutaviðræður í Reykjavík, efnahagsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður við Evrópusambandið.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýja skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands varpa ljósi á mjög háar fjárhæðir sem útgerðin hafi fjárfest í íslensku atvinnulífi. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir þær óverulegar.
Mikill viðbúnaður er í suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum vegna hættu á eiturefnaleka úr tanki. Óttast er að hann geti sprungið og hefur fjörutíu þúsund manns verið gert að yfirgefa heimili sín.
Oddviti Sjálfstæðismanna í borginni liggur undir feldi og metur stöðuna eftir einkafundi með þremur oddvitum í gær. Dregið gæti til tíðinda í dag.
Veitur ætla að bæta eftirlit við framkvæmdir í Skammadal í Mosfellsbæ vegna litarmengunar þaðan sem sett hefur mark sitt á ána síðustu daga. Veitur stefna að því að bora tuttugu og níu holur á komandi árum, þar af fimmtán í ár.
Úrslitaleikur Meistaradeildar kvenna í fótbolta er í dag. Sigursælasta lið keppninnar, Lyon, mætir þar stórliði Barcelona sem er að leika til úrslita sjötta árið í röð.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Gunnar Gunnsteinsson lék með ýmsum hljómsveitum áður en hann hélt til Hollands að læra tónsmíðar. Hann hefur samið ýmis verk sem brjótast út úr hefðbundum tónistarformum, eins og verk samið fyrir vínilplötu, annað sem sjálfshjálparhlaðvarp, enn annað sem poppplata, pípuorgelverk sem notar pípulagnir og má telja.
Lagalisti:
Club Colombophile du Cæur - Main Theme
Langi-Pési - LP (A)
The Musicosmology Études, Étude Nr. 1 - Introduction, Patterns, Footsteps
Pípuorgelkonsert - Presto (kynding)
A Janitor's Manifesto - Air conditioner II - Organist rehearsing
A Janitor's Manifesto - A Letter to ABBA
Arrival - Finale
Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir
Thriller kom út árið 1982 og heldur enn velli sem mest selda plata allra tíma. Í þættinum verður farið í saumana á þessu meistaraverki og tilurð hennar.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 20. júní 2015.

Útvarpsfréttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu, tónsmið og dansara um lífið og listina. Frá klassíkinni yfir í djassinn, trúðinn og leikhúsið.
Tónlistin í þættinum:
Faðmlag - Kristjana og Svavar Knútur
Bye Bye Blackbird - Kristjana og skólafélagar frá Hollandi
Secret Place - Bamabló
Tvö lög úr Bláa hnettinum í útsetningu Eiríks Arnar Stefánssonar í flutningi barnakórs og Stórsveitar Reykjavíkur.

Fréttir

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Tríó Brad Mehldau leikur lögin Martha My Dear, She's Leaving Home, Alfie, Granada, Fifty Ways To Leave Your Lover og Day Is Done. ASA tríóið leikur lögin Straight No Chaser, Bemsha Swing, Boo Boo's Birthday, San Fransisco Holiday, Criss Cross og Raise Four. Jason Moran tríóið leikur lögin Crepuscule, Big Stuff, Play To Live, To Bob Vatel of Paris og Gangsterism Over 10 Years.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Guðni Kolbeinsson sagði „læks“ í stað hins hefðbundna „lækjar“ í eignarfalli orðsins lækur, í útvarpsþættinum Daglegu máli árið 1980. Sá þáttur hefur ekki varðveist en við heyrum annan þátt í umsjón Guðna þar sem lækur kemur óbeint við sögu; og rifjum upp hvað var skrifað um Guðna-málið svokallaða á síðum blaðanna.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Björg Brjánsdóttir, flautuleikari, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Berlínarfílharmónían, undir stjórn Herberts von Karajan, leikur fyrsta kafla Sinfóníu nr. 1 op. 68 eftir Johannes Brahms. Hljóðritun frá árinu 1987.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson
Í þættinum er fjallað um Sigurð Jónsson frá Arnarvatni í Mývatnssveit en hann orti meðal annars ljóðið ,,Blessuð sértu sveitin mín".
Viðtal við Málmfríði Sigurðardóttur Skálateigi 1 Akureyri en hún er eitt barna Sigurðar af síðara hjónabandi. 15 mín.
Lesið úr minningargrein Jóns Sigurðssonar frá Ystafelli um Sigurð Jónsson. Samvinnan 1949. 3 mín.
Þátturinn var frumfluttur 16. október 2009
Tónlist:
Blessuð sértu sveitin mín, ljóð Sigurður Jónsson, lag séra Bjarni Þorsteinsson, flutningur Kór Langholtskirkju, stjórn Jón Stefánsson, undirleikur kammersveit. Diskur 08775 Ísland er lýðveldi.
Yndislega ættarjörð, ljóð Sigurður Jónsson, lag Bjarni Þorsteinsson flutningur
Karlakórinn Glaður, Fjarðarbyggð, upptaka frá tónleikum til heiðurs Rögnvaldi Sigurjónssyni 2008.


frá Veðurstofu Íslands

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.
Danslagakeppnin á Hótel Íslandi 1939.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks. Þau ræddu meðal annars bæjar- og sveitarstjórnarkosningar, meirihlutaviðræður í Reykjavík, efnahagsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður við Evrópusambandið.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Finnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins á dögunum og þótti sýning hans í Hveragerði, Skjálfti, skara fram úr. Í umsögn dómefndar sagði: "Finnbogi vann hugmyndina að verkinu með tengdaföður sínum, jarðskjálftafræðingnum Ragnari Stefánssyni, sem jafnan var kallaður skjálfti. Þeir hugðust vinna með jarðfræðilega virkni Hveragerðis, meðal annars með tæki sem Ragnar hafði þróað. Áður en hugmyndin að sýningunni var fullunnin lést Ragnar en til að heiðra minningu hans kom Finnbogi eldrauðu duftkeri fyrir í rýminu og vísar þannig í nærveru ástvinar."
Finnbogi kemur í fimmu og talar um fimm vörður í lífinu sem breyttu öllu.
Útvarpsfréttir.
Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýja skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands varpa ljósi á mjög háar fjárhæðir sem útgerðin hafi fjárfest í íslensku atvinnulífi. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir þær óverulegar.
Mikill viðbúnaður er í suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum vegna hættu á eiturefnaleka úr tanki. Óttast er að hann geti sprungið og hefur fjörutíu þúsund manns verið gert að yfirgefa heimili sín.
Oddviti Sjálfstæðismanna í borginni liggur undir feldi og metur stöðuna eftir einkafundi með þremur oddvitum í gær. Dregið gæti til tíðinda í dag.
Veitur ætla að bæta eftirlit við framkvæmdir í Skammadal í Mosfellsbæ vegna litarmengunar þaðan sem sett hefur mark sitt á ána síðustu daga. Veitur stefna að því að bora tuttugu og níu holur á komandi árum, þar af fimmtán í ár.
Úrslitaleikur Meistaradeildar kvenna í fótbolta er í dag. Sigursælasta lið keppninnar, Lyon, mætir þar stórliði Barcelona sem er að leika til úrslita sjötta árið í röð.
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Doddi litli settist í stólinn hans Kristjáns Freys í þætti dagsins og fékk til sín frábæra gesti.
Unnur Eggertsdóttr, söng og leikkona og Vilhelm Neto, Leikara og grínara.
Við fengum að heyra hvað þau eru að horfa á, hlusta á og hver sé þeirra uppáhalds matarupplifun upp á síðkastið.
Þemað þessa stóru ferðahelgi var auðvitað, ferðalög.
Lagalisti dagsins.
GUS GUS, NÝDÖNSK OG HJALTALÍN - Þriggja daga vakt.
Sumargleðin - Á ferðalagi.
Þormóður Eiríksson, GDRN - Manstu.
THE BEACH BOYS - Little Honda.
LES NEGRESSES VERTES - Les Yeux de Ton Père.
CROSBY, STILLS, NASH & YOUNG - Our House.
Magdalena Bay - Image.
KUSK - Sommar.
Eilish, Billie - Birds of a Feather.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
Laufey - Madwoman.
ÞÚ OG ÉG - Í útilegu.
ALBATROSS - Ég ætla að skemmta mér.
SCRITTI POLITTI - The word girl.
BOB DYLAN - I Want You.
BOB DYLAN - Beyond Here Lies Nothin'.
Birnir, GusGus - Walk away.
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina).
Les Rythmes Digitales - Jacques your body (make me sweat).
Úlfur Úlfur Hljómsveit, Herra Hnetusmjör - Sitt sýnist hverjum (feat. Herra Hnetusmjör) (Explicit).
Bríet - Gleymmérei.
Sálin hans Jóns míns - Ævin er augnablik.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í þrettánda þætti eru árin 2010 til 2013 til umfjöllunar þegar Bubbi gaf út plöturnar Ég trúi á þig, Þorpið og Storminn. Hér má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er og Plata vikunnar.
Viðmælendur í þrettánda þætti eru Bubbi Morthens, Börkur Birgisson, Daði Birgisson og Davíð Berndsen.
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Jógvan - One More Time
Bubbi - Röðin
Bubbi - Strákarnir okkar
Bubbi & Sólskuggarnir - Blik þinna augna
Bubbi & Sólskuggarnir - Sól
Bubbi & Sólskuggarnirs - Háskaleikur
Bubbi & Sólskuggarnir - Ísabella
Bubbi & Sólskuggarnir - Verið djörf alla leið
Berndsen & Bubbi - Úlfur Úlfur
Bubbi & Sólskuggarnir - Óskin
Bubbi & Sólskuggarnir - Fjórtán öskur á þykkt
Bubbi & Sólskuggarnir - Óttinn
Bubbi & Sólskuggarnir - Vonir og þrár
Bubbi & Sólskuggarnir - Ballaðan um bræðurna
Bubbi & Sólskuggarnir - Bankagæla
Bubbi & Sólskuggarnir - Þorpið
Björgvin og Bubbi - Það er gott að elska
Bubbi - Brosandi börn
Bubbi - Best er bara að þegja
Bubbi - Tíðindarlaust af Vesturvígstöðvunum
Bubbi - Allt var það krónunni að kenna
Bubbi - Afmælið
Bubbi - Trúðu á ljósið
Bubbi - Stormurinn

Útvarpsfréttir.
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Lovísu er söngkonan Elín Ey

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
