10:15
Sumargjöfin

Í tæp tuttugu ár hefur Inga Þöll Þórgnýsdóttir gefið fjölskyldu og vinum eigin ritverk í sumargjöf. Í textunum rannsakar hún fjölskyldusöguna og kafar ofan í eigin minningar um staði og fólk. Í gegnum skrifin hefur hún lært margt um sjálfa sig og uppgötvað ýmislegt sem hefur svo sannarlega komið á óvart.

Í þættinum fer dagskrárgerðarkonan Gígja Hólmgeirsdóttir í heimsókn til Ingu Þallar og fær að vita meira um þessa persónulegu hefð að gefa texta í sumargjöf.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 39 mín.
,