16:05
Brúðkaupslög

Hvaða lög hitta okkur beint í hjartastað? Er við hæfi að spila rosalega skrýtið lag við hjónavígslu, því að þið fóruð í sleik við það fyrir tíu árum? Skiptir textinn máli?

Margrét Erla Maack, einhleypasta kona Íslands, hefur verið viðstödd fleiri brúðkaup en margir. Hún er veislustjóri, DJ og athafnastjóri en áður en hún fór að vinna við þetta fylgdi hún föður sínum prestinum við embættisstörf.

Í þættinum er rætt við tónlistarfólk, plötusnúða, hjón og verðandi hjón, prest, athafnastjóra og goða, danskennara og reynda brúðkaupsgesti.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 54 mín.
,