12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 23. apríl 2026

Útvarpsfréttir.

Átján eru slasaðir eftir að tvær lestir rákust saman á Norður-Sjálandi í morgun. Fimm eru í lífshættu.

Líbanar saka Ísraelsher um hafa framið stríðsglæp eftir að einn blaðamaður var drepinn og annar særðist í loftárás á suðurhluta landsins. Herinn hafi beint árásum gegn blaðamönnunum og hindrað björgunarstarf.

Sviptingar í alþjóðamálum gæti þýtt breytta nálgun Evrópusambandsins til mögulegra aðildarviðræðna við Ísland en áður, segir alþjóðastjórnmálafræðingur. ESB sjái hag sinn í því að reyna að höfða til Íslendinga, Norðmanna og ekki síst Breta.

Óboðleg staða á leigumarkaði bitnar sérstaklega mikið á aðfluttu vinnuafli, segir formaður Eflingar. Stjórn Eflingar vill að stjórnvöld setji á leigubremsu.

Í dag er sumardagurinn fyrsti og veður virðist með skaplegasta móti víðast hvar um landið. Við tölum við veðurfræðing um útlitið.

HK varð í gærkvöldi Íslandsmeistari kvenna í blaki eftir sigur á KA í æsispennandi leik, 3-2. HK vann alla þrjá leiki úrslitanna og vann þrefalt í vetur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,