Salka Valka kom út í tveimur hlutum, sá fyrri árið 1931 og nefndist Þú vínviður hreini, og seinni árið 1932 og nefndist Fuglinn í fjörunn. Bókin hefur eftir það komið út undir heitinu Salka Valka og þar er uppvaxtarsaga Salvarar Valgerðar Jónsdóttur sögð, en hún er kölluð Salka Valka af móður sinni, Sigurlínu.
Umsjón: Þorgerður Sigurðardóttir.
Sumarkomuljóð - Matthías Jochumsson - Herdís Þorvaldsdóttir les.
Vorar samt - Sigvaldi Kaldalóns/Jón Magnússon
Ó blessuð vertu sumarsól - Ingi T Lárusson - Ólafur Gaukur og Jón Páll Bjarnason leika á gítara.
Sólbrúnir vangar/Vor við sæinn - Oddgeir Kristjánsson - Kvartett víbrafónleikarans Reynis Sigurðssonar leikur.
Sólskríkjan - Jón Laxdal/Þorsteinn Erlingsson - Þuríður Pálsdóttir og Fritz Weishappel
Smalastúlkan - Skúli Halldórsson/Jón Thoroddsen
Vorkoma - Ólöf Arnalds flytur eigið lag og texta
Vorkveðja - Lárus Pálsson les ljóð eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson
Vorgleði - Bragi Hlíðberg leikur eigið lag á harmoniku
Hlíðin mín fríða - Friedrich F Flemming/Jón THoroddsen
Lóan í flokkum flýgur - Þjóðlag/Magnús Grímsson
Nú sefur jörðin sumargræn - Þorvaldur Blöndal/Davíð Stefánsson - Schola Cantorum
Smávinir fagrir - Jón Nordal/Jónas Hallgrímsson - Schola Cantorum
Hjá lygnri móðu - Jón Ásgeirsson/Halldór Laxness - Hamrahlíðarkórinn syngur
Lífið er lotterí - írskt þjóðlag/Jónas Árnason - Þrjú á palli
Kría - Rósa Guðrún Sveinsdóttir /Sveinn Kristinsson
Umsjón: Pétur Grétarsson

Veðurstofa Íslands.
Í tæp tuttugu ár hefur Inga Þöll Þórgnýsdóttir gefið fjölskyldu og vinum eigin ritverk í sumargjöf. Í textunum rannsakar hún fjölskyldusöguna og kafar ofan í eigin minningar um staði og fólk. Í gegnum skrifin hefur hún lært margt um sjálfa sig og uppgötvað ýmislegt sem hefur svo sannarlega komið á óvart.
Í þættinum fer dagskrárgerðarkonan Gígja Hólmgeirsdóttir í heimsókn til Ingu Þallar og fær að vita meira um þessa persónulegu hefð að gefa texta í sumargjöf.

Dánarfregnir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Útvarpsfréttir.
Átján eru slasaðir eftir að tvær lestir rákust saman á Norður-Sjálandi í morgun. Fimm eru í lífshættu.
Líbanar saka Ísraelsher um hafa framið stríðsglæp eftir að einn blaðamaður var drepinn og annar særðist í loftárás á suðurhluta landsins. Herinn hafi beint árásum gegn blaðamönnunum og hindrað björgunarstarf.
Sviptingar í alþjóðamálum gæti þýtt breytta nálgun Evrópusambandsins til mögulegra aðildarviðræðna við Ísland en áður, segir alþjóðastjórnmálafræðingur. ESB sjái hag sinn í því að reyna að höfða til Íslendinga, Norðmanna og ekki síst Breta.
Óboðleg staða á leigumarkaði bitnar sérstaklega mikið á aðfluttu vinnuafli, segir formaður Eflingar. Stjórn Eflingar vill að stjórnvöld setji á leigubremsu.
Í dag er sumardagurinn fyrsti og veður virðist með skaplegasta móti víðast hvar um landið. Við tölum við veðurfræðing um útlitið.
HK varð í gærkvöldi Íslandsmeistari kvenna í blaki eftir sigur á KA í æsispennandi leik, 3-2. HK vann alla þrjá leiki úrslitanna og vann þrefalt í vetur.
Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Theodór Gunnlaugsson (1901-1985) var lengst af bóndi á bænum Bjarmalandi í Axarfirði og jafnframt rómuð refaskytta. Árið 1955 flutti hann erindi í útvarpið um refinn og kynnti þá fyrir hlustendum hljóð refanna – gagg, dekurhljóð og væl, sem og hljóð sem túlkuðu söknuð, aðvörun um yfirvofandi hættu og angist deyjandi dýrs. Athyglisverðast var að Theodór líkti sjálfur eftir öllum þessum hljóðum refanna.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er við núverandi og fyrrverandi nemendur ásamt brautarstjóra garðyrkjubrauta. Vöngum er velt yfir gróðri í formi gjafa með þátttöku Vilmundar Hansens garðyrkju- og þjóðfræðings.
Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Vilmundur Hansen.
Það getur vakið upp ýmsar tilfinningar að hugsa aftur til bernskunnar. Þetta þekkja flestir en margir leyfa huganum að hvarfla aftur til æskuáranna um jólin. Þátturinn fjallar um bókmenntatexta sem sprottnir eru upp úr einskonar endurliti rithöfunda. Hvað veldur því að skáld grípa stundum til þess að máta löngu slitna barnskóna þegar þeir vinna að sögum sínum? Í því samhengi er sérstaklega rætt við höfundana Einar Má Guðmundsson og Guðrúnu Evu Mínervudóttir en þau hafa bæði skrifað um barnið og bernskuna í bókum sínum. Tónlist er eftir Snorra Hallgrímsson og umsjónarmaður þáttarins er Magnús Örn Sigurðsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2011

Sara Mjöll Magnúsdóttir djasstónlistarkona var valin bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi við afhendingu íslensku tónlistarverðlaunanna í mars 2026.
Í tilefni af því endurflytjum við viðtal sem Pétur Grétarsson tók við Söru Mjöll í Djasslandi Rásar 1 í upphafi árs.
Sara Mjöll, sem leikur jöfnum höndum á píanó og Hammond-orgel, hefur á liðnum árum komið fram með eigin hljómsveitum og er einnig eftirsóttur meðleikari. Árið 2025 steig hún svo fram sem hljómsveitarstjóri með útgáfu fyrstu plötu sinnar, A Place to Bloom. „Metnaður hennar, frumkvæði og framhaldsnám í New York, einni af helstu höfuðborgum djassins, undirstrika að hér er á ferðinni tónlistarkona sem á eftir að láta mikið að sér kveða á komandi árum,” sagði forseti Íslands - Halla Tómasdóttir, þegar hún afhenti Söru Mjöll verðlaunin.

Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 5 í F-dúr eftir Ludwig van Beethoven.
Sayaka Shoji leikur á fiðlu og Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó.
Hljóðritað á tónleikum í Hörpu á Reykjavík Midsummer Music tónlistarhátíðinni, árið 2015.

frá Veðurstofu Íslands
Samin við sögu Messíönu Tómasdóttur þar sem segir frá stráknum Trompett sem óskar þess af öllu hjarta að dúkkan hans, hún Sónata, lifni við. Trompett verður vinur stóra Logadrekans og sigrast á hræðslu sinni við frekjuna hann Ansans Ára. Þannig bjargar hann líka prinsessunni Sónötu og óskin hans rætist.
Óperan var samin árið 1994 og er hér flutt í hljóðritun sem JAPIS gaf út árið 1995.
Flytjendur:
Marta G. Halldórsdóttir, sópran: Sónata, Lífsfuglinn, Logadrekinn og sögumaður.
Sverrir Guðjónsson, kontratenór og barítón: Ansans Ári, Faðirinn og sögumaður.
Kolbeinn Bjarnason leikur á flautu og bassaflautu og Guðrún Óskarsdóttir leikur á sembal.
Umsjón: Pétur Eggertsson.
Gunnar Hansson fær góða gesti í hljóðstofu í upphafi sumars. Það eru Sævar Helgi Bragason, Þórunn Jarla Valdimarsdóttir og Kolbrún Vaka Helgadóttir.
Þátturinn var áður á dagskrá 2018
Í þættinum Sumarspjall fékk Gunnar Hansson þau Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur, rithöfundur, Kolbrúnu Vöku Helgadóttur, kynningarfulltrúa og dagskrárgerðakonu og Sævar Helga Bragason, stjörnumann til að spjalla við sig um sumarið. Hvað þýðir sumarið fyrir þeim? Hvað tengja þau við sumarið? Hvaða lykt er sumarlykt og svo framvegis, auk þess bað Gunnar þau um að velja hvert fyrir sig eitt lag sem minnir þau á sumarið.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er við núverandi og fyrrverandi nemendur ásamt brautarstjóra garðyrkjubrauta. Vöngum er velt yfir gróðri í formi gjafa með þátttöku Vilmundar Hansens garðyrkju- og þjóðfræðings.
Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Vilmundur Hansen.


frá Veðurstofu Íslands
Tónskáldið Jón Nordal fæddist þann 6. mars 1926 og því voru 100 ár liðin frá fæðingu hans í mars sl. Af því tilefni hélt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands glæsilega tónleika til heiðurs tónskáldinu 8. mars sl. þar sem fluttar voru tvær af perlum Jóns, Óttusöngvar að vori fyrir tvo einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og Konsert fyrir selló og hljómsveit. Á tónleikunum var einnig frumflutt nýtt verk eftir Daníel Þorsteinsson.
Með hljómsveitinni koma fram sönghópurinn Hljómeyki og Kór Akureyrarkirkju.
Einsöngvarar: Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Hanna Dóra Sturludóttir mezzo-sópran.
Einleikari á selló: Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir.
Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Felix fór fram og til baka með hlustendum að morgni sumardagsins fyrsta, spilaði sumartóna, talaði um það sem hægt væri að njóta á deginum og fékk góða gesti í morgunkaffi. Skátarnir Inga Auðbjörg og Sædís Ósk voru fyrsta, svo kom Kristjana Stefánsdóttir tónlistarmaður og síðan hljómsveitin Tab en hana skipa þau Tinna Kristinsdóttir, Arna Rún Ómarsdóttir og Bjartmar Þórðarson. Að lokum hringdi Felix í Sigyn Blöndal hjá Unicef.
Útvarpsfréttir.
Átján eru slasaðir eftir að tvær lestir rákust saman á Norður-Sjálandi í morgun. Fimm eru í lífshættu.
Líbanar saka Ísraelsher um hafa framið stríðsglæp eftir að einn blaðamaður var drepinn og annar særðist í loftárás á suðurhluta landsins. Herinn hafi beint árásum gegn blaðamönnunum og hindrað björgunarstarf.
Sviptingar í alþjóðamálum gæti þýtt breytta nálgun Evrópusambandsins til mögulegra aðildarviðræðna við Ísland en áður, segir alþjóðastjórnmálafræðingur. ESB sjái hag sinn í því að reyna að höfða til Íslendinga, Norðmanna og ekki síst Breta.
Óboðleg staða á leigumarkaði bitnar sérstaklega mikið á aðfluttu vinnuafli, segir formaður Eflingar. Stjórn Eflingar vill að stjórnvöld setji á leigubremsu.
Í dag er sumardagurinn fyrsti og veður virðist með skaplegasta móti víðast hvar um landið. Við tölum við veðurfræðing um útlitið.
HK varð í gærkvöldi Íslandsmeistari kvenna í blaki eftir sigur á KA í æsispennandi leik, 3-2. HK vann alla þrjá leiki úrslitanna og vann þrefalt í vetur.
Andri Freyr Viðarsson tekur á móti sumri með hlustendum og leikur lauflétta tóna á sumardaginn fyrsta.
Hlustendur tóku að mestu stjórn í þættinum með sumarlegu lagavali og kveðjum.
Lagalisti þáttarins:
GCD – Sumarið er tíminn
BAGGALÚTUR – Gleðilegt sumar
BRÆÐRABANDALAGIÐ – Sólarsamba
PULSUMAÐURINN – Frosin pulsa (ísköld og svalandi)
DANS Á RÓSUM – Sól í dag
THE STRANGLERS – Always The Sun
JÓNFRÍ – Andalúsía
KATRINA AND THE WAVES – Walking On Sunshine
MANNAKORN – Það Er Komið Sumar
NORAH JONES – Sunrise
SÚKKAT – Kúkur í lauginni
HJÁLMAR – Manstu
STEVIE WONDER – Signed, Sealed, Delivered
PREFAB SPROUT – The king of rock 'n' roll
MUNGO JERRY – In the summertime
CULTURE BEAT – Mr. Vain
JOHNNY NASH – I Can See Clearly Now
ÞURSAFLOKKURINN – Gegnum Holt Og Hæðir
INGIMAR EYDAL – Í Sól Og Sumaryl
SPILAGALDRAR – Sumarteiti
TEXAS – Summer Son
ROD STEWART – Do Ya Think I'm Sexy
ÚLFUR ÚLFUR – Sumarið
BRYAN ADAMS – Summer Of '69
SIGGA ÓZK – Um allan alheiminn
ÁSGEIR TRAUSTI – Sumargestur
MUGISON – Sólin Er Komin
BILL WITHERS – Ain't no sunshine
SÓLDÖGG – Svört Sól
STUÐMENN – Tætum og tryllum
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON – Sumarnótt
STJÓRNIN – Sumar Nætur
WHAM! – The Edge of heaven
LADDI – 19 gráður
HELGI BJÖRNSSON – Allt ljómar
EGILL ÓLAFSSON, VALGEIR GUÐJÓNSSON, STUÐMENN – Söngur dýranna í Týról
PETER GABRIEL – Sledgehammer
B.G. OG INGIBJÖRG – Sólskinsdagur
OPEE, GABRÍEL & UNSTEINN MANUEL – Sólskin
DR. MISTER AND MR. HANDSOME – Kokaloca
SANTANA & ROB THOMAS – Smooth
SNIGLABANDIÐ – Selfoss
HVANNDALSBRÆÐUR – LaLa lagið
HREKKJUSVÍN – Sumardagurinn fyrsti
STEBBI JAK – Voru allir hér
PRIMAL SCREAM – Movin' on up
ELÍN EY & PÉTUR BEN – Þjóðvegurinn
KK – Lífið er
Hvaða lög hitta okkur beint í hjartastað? Er við hæfi að spila rosalega skrýtið lag við hjónavígslu, því að þið fóruð í sleik við það fyrir tíu árum? Skiptir textinn máli?
Margrét Erla Maack, einhleypasta kona Íslands, hefur verið viðstödd fleiri brúðkaup en margir. Hún er veislustjóri, DJ og athafnastjóri en áður en hún fór að vinna við þetta fylgdi hún föður sínum prestinum við embættisstörf.
Í þættinum er rætt við tónlistarfólk, plötusnúða, hjón og verðandi hjón, prest, athafnastjóra og goða, danskennara og reynda brúðkaupsgesti.

Matthías Már spilar létta tóna í eldhúsinu um páska.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Fjallað verður um rofið á milli listgreina með sérstaka áherslu á samband hljóðs og myndar. Í þáttunum segja listamenn frá eigin rofum í listsköpun, mómentið þegar miðlar mætast, skarast eða brjóta upp hefðbundin mörk eða viðmið. Samtölin varpa ljósi á hvernig slík rof móta bæði listsköpunina sjálfa og hvernig listheimurinn virkar, kerfislegt mengi og listþróun í þessu samhengi.
Umsjón: Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir.
Í fyrsta þættinum Rof ræðir Curver Thoroddsen um list sína í takt við rofið á milli list miða. Verkið sem spilað er í upphaf þáttars er Nóttin 1. hluti (snjór) eftir Curver Thoroddsen frá árinu 1991.

Tónlist að hætti hússins.