
Í slitnum skóm
Það getur vakið upp ýmsar tilfinningar að hugsa aftur til bernskunnar. Þetta þekkja flestir en margir leyfa huganum að hvarfla aftur til æskuáranna um jólin. Þátturinn fjallar um bókmenntatexta sem sprottnir eru upp úr einskonar endurliti rithöfunda. Hvað veldur því að skáld grípa stundum til þess að máta löngu slitna barnskóna þegar þeir vinna að sögum sínum? Í því samhengi er sérstaklega rætt við höfundana Einar Má Guðmundsson og Guðrúnu Evu Mínervudóttir en þau hafa bæði skrifað um barnið og bernskuna í bókum sínum. Tónlist er eftir Snorra Hallgrímsson og umsjónarmaður þáttarins er Magnús Örn Sigurðsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá árið 2011