15:03
Sögur af landi: Endurlit
49. þáttur

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur frá 9. apríl 2017: Þessi þáttur er helgaður bláa litnum. Hugrenningatengsl okkar við bláa litinn eru mörg. Í tónlist myndlist og mannlegum samskiptum. Við tölum við tónlista- sem og myndlistamenn. Við færum okkur inn í dökkbláan skugga einmannaleikans og út úr honum aftur. Við spilum bláar nótur, spáum í bláma himinsins og höldumst bláeyg í hendur.

Innslög í þennan þátt unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Þórgunnur Oddsdóttir.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
,