12:42
Þetta helst
Ört stækkandi risi Jóns Ásgeirs kaupir 25 fasteignir af kaupfélagi

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Í byrjun mánaðarins var sagt frá því að Kjörbúðin í Bolungarvík, sem er í eigu smásölufyrirtækisins Dranga, myndi loka.

Degi áður en þessi frétt var sögð sendu Drangar frá sér tilkynningu um að fyrirtækið ætlaði sér að kaupa 25 fasteignir af dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja víða um allt. Ein af þessum eignum er fasteignin á Bolungarvík sem hefur hýst starfsemi Kjörbúðarinnar.

En hvað liggur á bak við þessi viðskipti hjá Dröngum og Kaupfélagi Suðurnesja? Rætt er við Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, og Sigurbjörn Gunnarsson, stjórnarformann Kaupfélagsins á Suðurnesjum, um það.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,