Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í byrjun vikunnar fjölluðum við um að þúsund íslensk ungmenni mun leggja undir sig eyjuna Krít í byrjun júní. Rúmlega 700 útskriftarnemar dvelja þar saman á risavöxnu hóteli og stemningin er eflaust í algleymingi. Við ætlum að hringja út og kanna hvernig gengur til að róa foreldra og þjóðina alla. Þórhildur Lilja Hafsteinsdóttir, forseti Keðjunnar - nemendafélags Kvennaskólans í Reykjavík, var á línunni.
Jólagarðurinn í Eyjafjarðarsveit verður 30 ára á sunnudaginn en garðurinn er vinsæll áningarstaður allt árið um kring. Hvernig gengur að halda úti jólastemnignu í 30 ár? Í vikunni bárust líka fréttir af því að Jólagarðurinn fái hús BSO – Bifreiðastöðvar Oddeyrar – afhent án endurgjalds en flytja þarf húsið frá Strandgötunni á Akureyri í júní. Benedikt Ingi Grétarsson kom til okkar í spjall.
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með hlutverk Fisto í stórmyndinni Masters of the Universe, sem fjallar um ævintýri vöðvatröllsins He-Man. He-Man naut mikilla vinsælda á níunda áratugnum, bæði sem leikföng og teiknimyndaþættir. Jóhannes Haukur lék sér með He-Man-leikföng í æsku og það hefur því eflaust verið súrealísk upplifun að leika í kvikmynd um hetjuna. Við fengum hann til okkar í spjall.
Við fórum yfir þessa risavöxnu fréttaviku í beinni útsendingu frá Akureyri og fengum til okkar söngvarann ástsæla Magna Ásgeirsson og Hildu Jönu Gísladóttur, samskiptastjóra Sjúkrahússins á Akureyri.
